Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

David er ákærður fyrir að drepa eiginkonu sína: „Hún grátbað mig um að hjálpa sér“

Breskur maður sem myrti eiginkonu sína á dvalar­heimili þeirra í Kýpur, segir hana hafa „grátbeðið“ hann um að drepa hana.

David Hunter, fyrrum kola­námumaður frá Norhumberland, hefur verið ákærður fyrir morð að yfirlögðu ráði en eiginkona hans lést af völdum köfnunar árið 2021. Mirror segir frá þessu.

Meðan á vitnis­burði hans stóð, talaði David um hið „fullkomna“ hjónaband þeirra, sem stóð yfir í 52 ár. Hinn 75 ára maður hefur viðurkennt að hafa myrt eiginkonu sína og halda verjendur hans því fram að um líknar­dauða hafi verið að ræða, að hennar beiðni en hún þjáðist af hvítblæði á lokastigi.

Læknir konunnar sagði hins vegar fyrir rétti í síðustu viku að hún hefði verið með sjaldgæft blóð­krabbamein, en hafi mögulega ekki verið með banvænt hvítblæði.

Í dag sagði David frá því að Janice, eiginkona hans, hefði sífellt orðið veikari og veikari af blóð­krabbanum og að lífsgæði hennar hafi ekki verið nein.

„Hún grátbað mig um að hjálpa sér,“ sagði David með hjálp túlks við réttinn. „Fimm eða sex vikum áður en hún dó, var hún að biðja mig að hjálpa sér, hún spurði sífellt meira um það á hverjum degi.“

Beiðni David í desember um að vera ákærður fyrir manndráp af gáleysi var ekki samþykkt og hefur hann því verið ákærður fyrir morð. Saksókn­arar féllust ekki á að eiginkona hans hafi beðið hann um að binda enda á líf sitt án sannana.

„Ef við samþykkjum þetta, myndu framvegis allir menn sem drepa konur segja „Við vorum með samkomulag“,“ sagði ríkis­saksókn­arinn Andreas Hadjikyrou við blaðamenn.

„Hún var sofandi í leður­stólnum niðri og síðustu viku höfum við sofið saman í þessum stólum,“ sagði David fyrir rétti í dag. „Mér fannst ég svo hjálpar- og vonlaus að ég gæti ekkert gert fyrir hana. Á hverjum degi bað hún mig um þetta af meiri ákefð. Ég vildi það ekki eftir 57 ára samband með henni. Ég vildi það alls ekki. Hún byrjaði að grátbiðja mig. Ég vildi ekki gera það, ég neitaði. Hún sagði „Ég get ekki haldið áfram, þetta er ekkert líf fyrir mig. Við förum bara á spítalann og höngum heima. Ég get ekki haldið áfram“. Hún fór að vera hysterísk, þannig að ég sagði við hana „Já, ég skal hjálpa þér. Ég mundi ekki segja þér hvenær eða hvernig“. Ég ætlaði ekki að láta verða að því. Ég sagði henni þetta til að róa hana niður.“

Lögfræðingar Davíðs sögðu að hann hafi verið illa áttaður á þessum tíma og að hann þyrfti að fara í geðmat. Hins vegar komst dómstóllinn að því að Hunter hafi verið skýr þegar hann framdi verknaðinn og vitað hvað væri að gerast. Það hafi sannast er hann hringdi í bróður sinn eftir á þar sem hann sagðist ætla einnig að drepa sjálfan sig.

David sagðist hafa vonað síðustu níu dagana fyrir andlát hennar, að hún myndi skipta um skoðun. „Ég myndi aldrei drepa eiginkonu mína,“ sagði hann saksókn­aranum Andreas Hadjikyrou undir yfirheyrslu.

Verjandi hans, Ritsa Pekri spurði hann hvernig síðustu dagar fram að andláti konu hans hafi verið en David svaraði: „Hún grátbað og grátbað og grátbað. Hún var ekkert að hugsa um sig. Síðustu tvær til þrjár vikur gat hún ekki hreyft hendurnar sínar og átti í vandræðum með fæturnar, hún náði ekki að halda jafnvægi. Hún borðaði bara súpur, hún gat ekki haldið neinu niðri. Hún missti mikla þyngd. Hún misst svo mörg kíló að það var ekkert hold til að sprauta hana í.“

Veikindi hennar ollu því að Janice þjáðist af svo slæmum niður­gangi að síðasta þrjú og hálfa árið hefði hún þurft að ganga með bleyju, sagði David í réttar­höldunum.

„Ég hugsaði um það allan sólar­hringinn hvað ég ætti að gera. Ég var að reyna að fá hana til að skipta um skoðun allan tímann. Ég var að segja henni að þetta væri ekki auðvelt.“

Hann lýsti því hvernig hann að lokum hélt lófum sínum yfir vitund hennar. „Ég man ekki mikið frá þessum lokadegi. Ég fór að laga kaffi og hún byrjaði að gráta,“ sagði David.

„Ég man að ég hafði lófana yfir munn hennar og nef. Ég veit ekki einu sinni hvernig mér datt það í hug. Ég veit ekki hversu lengi ég hélt höndunum mínum þar. Hún reyndi ekki að stöðva mig. Ég sagði í yfirheyrslunni sagði ég að hún hefði veitt mótstöðu, en hún gerði það ekki. Hún hreyfði höfuðið en ég held hún hafi ekki einu sinni opnað augun.“

Lögmaður David, Michael Polak frá Justice Abroad samtökunum sagði: „Ég held að hann hafi gert vel [miðað við sönnunar­gögnin]. Hann er ánægður að geta talað um þetta. Hann var eina manneskjan sem var á vettvangi þegar þetta gerðist. Enginn veit í raun hvað gerðist fyrir utan hann. Þetta er mjög sorglegt mál. Þau áttu langt og ástríkt samband. Hann tók einu erfiðustu ákvörðun sem nokkur getur verið beðinn um af ástvini.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár