Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Karl III ferðast um með bangsa úr barnæsku: „Það sem hann gekk í gegnum þar er alveg skelfilegt“

Karl III Bretlands­konungur ferðast með bangsa sem hann hefur átt síðan í barnæsku.

Í viðtali við Rachel Smith hjá ET, útskýrir Christopher Andersen, höfundur bókarinnar The King, hvers vegna Karl verður „einn sérvitrasti kórónu­beri í sögu Stóra Bretlands.“

„Hann ferðast ennþá með bangsa sinn úr barnæsku,“ heldur Andersen fram í viðtalinu. „Hann hefur átt hann síðan hann var mjög ungur … Eina manneskjan sem hefur mátt laga og ditta að bangsanum er gamla barn­fóstra hans, Mabel Anderson, en hann er enn mjög náinn henni.“

Þá heldur Andersen einnig fram að Karl III „ferðist um með sérsmíðaða klósett­setu.“ Þó að konungurinn hafi neitað því segir höfundurinn einnig að „fólk sem vinnur í höllinni, fólk sem hefur unnið fyrir hann, segja að þegar hann fari í matarboð heim til fólks, tekur hann oft með sér sinn einka kokk, svo hann geti útbúið máltíð fyrir hann sem hann borðar aukalega við borðið,“ segir Andersen og bætti við: „Hann vill það sem hann vill, þegar hann vill.“

„Mér finnst eitt fyndnasta sérkenni hans, en fjöldi kónga­fólks deilir þessu með honum, þar á meðal Elísabet drottning, eru þau að honum er illa við ferkantaða ísmola,“ segir Andersen ennfremur í viðtalinu. „Þau ganga um með sérstaka ísmola­bakka sem þau taka með sér hvert sem er, því þeim líkar ekki klingjandi hljóðið sem kemur frá þeim.“

Hrikaleg æska Karls

Þá segir rithöfundurinn aukreitist að Karl III sé „mjög skapstór.“

„Hann hefur eldgosa­skap, í raun. Hann er mjög fær um að fá brjál­æðisköst.“

Segir Andersen ástæðuna fyrir skap­styggð hins nýkrýnda konungs vera uppeldið sem hann fékk hjá foreldrum sínum.

„Það er svo margt í fari Karls sem hægt er að rekja aftur til barnæsku hans, sem var skelfi­lega einmannaleg. Hann hefur lýst móður sinni sem kaldri og fjarlægri og að faðir sinn, Filippus prins, hafi verið hrotta sem ógnaði honum, grætti hann fyrir framan annað fólk og níddist á honum líkamlega. Ég held að það útskýri ansi margt að Karl eyddi aðeins fimmtán mínútum á dag með foreldrum sínum. Þegar hann fór í háls­kirtlatöku, þegar hann fékk mjög slæma flensu, þegar hann féll í stiga og ökla­brotnaði og þegar hann fór í bráða­uppskurð vegna botnlanga­bólgu þegar hann var 13 ára, heimsóttu hvorugir foreldrar hans á sjúkra­húsið.“

Seinna var Karl III sendur í heimavista­skóla í Skotlandi. Hefur konungurinn lýst þeirri dvöl sem „hreinu helvíti.“

„Það sem hann gekk í gegnum þar er í raun alveg skelfilegt. Sem drengur, sem ungur maður, var hann ítrekað laminn af eldri nemendum, þeir hengdu hann upp nakinn í sturtunni þar sem hann var spreyjaður með köldu vatni og skilinn þar eftir. Hann var sleginn og hent í jörðina,“ segir Andersen. „Hann grátbað foreldra sína í bréfum, um að taka hann úr skólanum … Í dag myndi það sem hann gekk í gegnum teljast til barnaníðs hreinlega en samt sem áður lokuðu foreldrarnir augum sínum fyrir þessu. Ég held að það hafi valdið gríðarlegri gremju gagnvart þeim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“