Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Upp úr sauð á milli þjálfara Chelsea og Tottenham: „Margt annað sem gerðist þarna sem var óþarfi“

„Horfðu í augun á mér!“
„Horfðu í augun á mér!“ Mynd: Skysports.com-skjáskot

Upp úr sauð í lok leiks Chelsea og Tottenham í kvöld. Byrjaði þegar stjórarnir tókust í hendur.

Samkvæmt Fotbolti.net var Thomas Tuchel, stjóri Chelsea ósáttur við dómgæsluna en leikurinn fór 2-2.

Chelsea var með mikla yfirburði í leiknum og í tvígang tók liðið forystuna en í bæði skiptin náði Tottenham að jafna leikinn. Seinna jöfnunar­markið kom á síðustu sekúndum leiksins en Tuchel saðgi eftir leikinn að hvorugt Tottenham-markið hefði átt að standa.

Á Fotbolti.net er mörkunum lýst á eftir­farandi hátt:

Í fyrsta markinu var Kai Havertz tæklaður og skoraði Tottenham í kjölfarið af því, en þó heilum 44 sekúndum seinna. Í seinna markinu var Richarlison í rangstöðu en óljóst hversu mikil áhrif hann hafði á leikinn en í horn­spyrnunni sem kom á undan hafði Cristian Romero rifið Marc Cucurella niður á hárinu án þess að fá dæmt brot á sig.

Þegar stjórarnir, Antonio Conte og Tuchel tókust í hendur sauð heldur betur upp úr. Svo virðist sem Tuchel hafi neitað að sleppa Conte og lá við slags­málum. Að endingu fengu þeir báðir rauða spjaldið.

„Við vorum algjör­lega frábærir í þessum leik. Það var bara eitt lið sem átti skilið að vinna þennan leik og það vorum við. Bæði mörkin þeirra voru ólögleg og áttu því ekki að standa,“ sagði Tuchel við frétta­menn eftir leikinn.

„Fyrst var augljóst brot á Kai Havertz og þeir skora svo beint í kjölfarið af því. Svo í seinna markinu var Richarlison í rangstöðu að trufla mark­manninn og ég hélt að það væri bannað að rífa í hár á fótbolta­velli? Við stjórnuðum þessum leik í 90 mínútur og við erum ótrúlega óheppnir að fá ekki stigin sem við áttum skilið.“

Þegar Tuchel var spurður út í barninginn milli hans og Conte svaraði hann:

„Ég hélt að maður ætti að horfa í augun á hvorum öðrum þegar maður tekst í hendur. Hann var með aðra skoðun á því. Þetta var óþarfi en það var líka margt annað sem gerðist þarna sem var óþarfi.“

Hér fyrir neðan má sjá atvikið:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“