Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Niðurfelling málsins gegn Aroni og Eggerti kærð til Ríkissaksóknara: Aron Einar ekki valinn í liðið

Aron Einar Gunnarsson og Eggert Gunnþór Jónsson
Aron Einar Gunn­ars­son og Eggert Gunnþór Jónsson

Konan sem kærði knattspyrnu­mennina Aron Einar Gunnarsson og Eggert Gunnþór Jónsson fyrir nauðgun hefur kært niður­fellingu héraðs­saksóknara á máli hennar til Ríkis­saksóknara. Mbl greinir frá þessu en skrif­stofa Ríkis­saksóknara hefur staðfest málið við frétta­stofu RÚV.

Eins og áður hefur verið greint frá kærði konan þá Aron Einar og Eggert Gunnþór fyrir nauðgun sem á að hafa átt sér stað í Danmörku árið 2010. Héraðs­saksóknari felldi málið niður fyrr í mánuðinum.

Aron Einar er fyrrum fyrirliði íslenska landsliðs karla í knatt­spyrnu en hefur ekki verið valinn í liðið síðan málið kom upp. Arnar Þór Viðarsson, landsliðs­þjálfari, hafði fengið heimild frá KSÍ til að velja hann í landsliðs­hópinn á ný eftir að málið var fellt niður. Þjálf­arinn opinberaði lands­liðshóp sinn fyrir komandi lands­leiki á fundi í höfuð­stöðvum KSÍ eftir hádegið í dag og athygli vakti að Aron Einar var ekki í hópi leik­mannanna.

Þegar ljóst varð að niður­felling málsins hefði verið kærð til Ríkis­saksóknara var Arnari Þór enn á ný ekki heimilt að velja Aron Einar í hópinn. Er það vegna nýrrar samþykktar stjórnar KSÍ. Í henni segir að þegar mál einstaklinga séu til meðferðar hjá rann­sóknar- eða ákæru­valdi vegna meintra alvarlegra brota, skuli viðkomandi stíga til hliðar meðan á málinu stendur. Nú þegar niður­felling máls þeirra Arons og Eggerts hefur verið kærð til Ríkis­saksóknara telst mál þeirra enn til meðferðar hjá ákæru­valdinu.

Samþykkt þessarar nýju viðbragðs­áætlunar KSÍ nær yfir báða knattspyrnu­mennina, en þrátt fyrir að hafa áður spilað með A-landsliðs­hópnum hefur Eggert Gunnþór ekki gert það í um þrjú ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá