Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Mummi barðist við meingallað kerfi: „Félagsþjónustan í Hafnarfirði drap þessa stúlku“

Mummi í Götursmiðjunni
Mummi í Göt­ursmiðj­unni Mynd: Aðsend

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en Týr Þórarinsson sem er kannski betur þekktur sem Mummi í Götu­smiðjunni. Mummi er rokkari, mótórhaus, bindindis­maður og kvikmynda­gerðarmaður í grunninn og lista­spíra inn við hjartað.

Mummi gengur nú undir nafn­inu Týr.

Götusmiðjan

Mummi var villingur, tossi að eigin sögn. Gekk illa í ferköntuðu skóla­umhverfinu og fljótt var hann farinn að misnota fíkniefni. Honum var svo reyndar sparkað úr meðferð af Vogi eftir sjö daga fyrir að vera ekki nógu góður alki eins og hann orðaði það en nú hefur hann verið edrú í um 30 ár.

Mummi er einna helst þekktur fyrir ötult starf með unglingum í fíkni­vanda og rak í um 14 ár meðferðar­heimilið Götu­smiðjan sem að eigin sögn skilaði mjög góðum árangri. Hann fann sig í þessum bransa eftir að hann hóf störf í félags­heimili þar sem hann kenndi unglingum kvikmyndar­gerð. Þar hitti hann unglinga sem hann tengdi strax við, unglings­drengi sem virtust eiga erfitt uppdráttar og oft á tíðum bjuggu við mikinn óstöðu­leika heima fyrir. Segir hann að hann hafi fundið að þessar týpur sóttu mikið í hann og að hann nyti virðingar sem hann svo nýtti sér til fram­dráttar í vinnu sinni með þessum hópi seinna meir. 

Smátt og smátt færðist hann meira og meira yfir í að hýsa þessi ungmenni sem mörg hver áttu sér engan samastað. Allt frekar tíma­bundin verkefni sem ollu oft á tíðum fjarðar­foki hjá hinu opinbera. Hann hefur verið ásakaður um ýmislegt í gegn um tíðina og það lýsti sér strax í byrjun í viðtölum með hinu opinbera. Hann var meðal annars spurður út í þennan áhuga á ungun drengjum og hvort þær væru af einskonar anarlegum hvötum byggðar. 

Mummi horfði upp á þessi ungmenni fara inn og út úr meðferðum og sum hver deyja. Hann heyrði hið opinbera lýsa því yfir að vandi húsnæðis­lausra ungmenna í fíkni­vanda væri engin og því tók hann af skarið og opnaði Götu­smiðjuna, meðferðar­úrræði með óskilgreindan tíma þeirra sem nýttu sér úrræðið. Eina skilyrðið var að börnin væru undir 18 ára og hafði barna­verndar­stofa svokallaða yfir­umsjón með milli­göngu þeirra ungmenna sem nýttu sér úrræðið. Á þeim 14 árum sem Götu­smiðjan var starfrækt fóru um 2.000 ungmenni í gegnum úrræðið og með mjög góðum árangri að eigin sögn. Hann nefndi í viðtalinu tölfræði sem miðuðu við það að að tveimur árum liðnum úr meðferð voru um 50% ungmenna í góðum málum og sjálfbær félags­lega og fjárhags­lega, með vinnu og þak yfir höfuðið.

Kerfið drepur

Ferill var settur af stað með samkomu­lagi milli Mumma og Braga Guðbrands­sonar, þáverandi forstjóra Barna­verndar­stofu um að barna­verndar­yfirvöld myndu taka við heimilinu og Mummi myndi stíga til hliðar eftir öll þessi ár í 150% vinnu. Yfirtakan fór af stað eins og samið var um en áður en síðustu samningarnir höfðu verið undir­ritaðir fór af stað atburðarrás sem varð til þess að Götu­smiðjunni var lokað rétt sí svona, börnunum hrúgað upp í rútu og keyrð í burtu. Bragi og Mummi hafa síðan eldað grátt silfur saman og endaði þessi atburðarrás í réttarsal þar sem Mummi stefndi Braga vegna átta ummæla sem hann lét falla í fjöl­miðlum í tengslum við þetta mál og var Bragi sýknaður með öllu.

„Málið er það að Bragi fór ekkert dult með það að hann ætlaði að taka mig niður. Og það var talsvert áður en Götu­smiðjunni var lokað,“ sagði Mummi við bræðurna. Ástæðuna sagði Mummi vera margþætta. „Ég var kjaftfor, þetta gekk vel, þetta virkaði, ég var gagn­rýninn á kerfið, mjög gagn­rýninn. Eins og félags­fræðingar hvísluðu að mér sögðu, ég vildi að ég gæti talað en ég er bundinn þagnareið. Ég efast um að það sé mikið skárra en kerfið var svo grút­máttlaust og möskvarnir í öryggis­netinu voru svo stórir að það féllu einhvernveginn flestir niður um þá.“ Mummi nefnir svo dæmi um 16 ára stúlku sem kom upp í Götu­smiðju en saga hennar var mikil harmsaga, ofbeldi og misnotkun inni á heimilinu en mamma hennar seldi hana og systur hennar. „Þessi stelpa talaði ekki, hún bara urraði. Og reyndi að vera eins óaðlaðandi og hægt var. Nema hvað að hún er hjá okkur í tvö ár, tekur bílpróf, fær dellu fyrir hestum en við vorum með hesta og tónlistar­smiðjur og lista­smiðjur og fleira. En daginn sem hún varð svo 18 ára, þá þvoði félags­þjónustan í Hafnar­firði hendur sínar af henni. Við vildum halda henni til tvítugs en nei, það var engin miskun, hún átti bara að fara. Við fórum á fund eftir fund og bara „please“ en það var bara „computer says no“. Ég sagði þeim að þetta væri sérstakt tilfelli og ég vilji vera með hana áfram en að þau verði að hjálpa mér með þetta, borga henni vasa­pening eða eitthvað. En nei, hún er orðin 18, þá verður hún að fara. Það eina sem félags­þjónustan bauð henni var lítil stúdíó­íbúð lengst út í Hafnar­firði, því hún var þaðan. Stelpu­greyið náði að vera edrú í kannski mánuð. Hálfum mánuði seinna var hún dáin. Það var á þriðja hjarta­stoppi eftir að hún byrjaði að sprauta sig aftur. Ég segi, félags­þjónustan í Hafnar­firði drap þessa stúlku.“

Æviráðinn Bragi

Wiium bræður spurðu Mumma nánar út í þátt Braga í að ná honum niður.

„Hann hlustaði á enda­lausar kvartanir frá kerfinu um mig og einhversstaðar skapaðist alveg veruleg óvild í minn garð. Bragi var þarna forstjóri Barna­verndar­stofu. Og gargandi fylli­bytta. Það eru enda­lausar fyllerís­sögur af honum út í á einhversstaðar skilurðu, þetta er ekkert leyndarmál, þjóðin veit þetta. Hann er bara mjög tjónaður einstaklingur. En æviráðinn. Barna­verndar­stofa verður til í tíð Jóhönnu en þau eru góðir vinir. Bragi smíðar Barna­verndar­stofu, tekur forstjóra­stólinn og rekur það batterí alveg frá byrjun. Hann var með æviráðningu en einn ráðherrann sem var þá við völd hringdi í mig og spurði „hvernig í andskotanum losna ég við þennan mann?“, skilurðu, hann var sjálfur að koma sér út í horn. En hann Bragi var búinn að segja við mig að hann skyldi koma mér niður, með góðu eða illu.“

„En af hverju?“ spurði Gunnar Mumma. „Ég geri ráð fyrir að ég hafi verið illa liðinn af kerfinu, félags­þjónustum, barna­vernd. Ég hlífði engum. Ég var ekki að meiða fólk en ég réðist á stofnanirnar alveg einbeittur.“

Bragi hélt því fram að meðal annars að undirrót lokunar Götu­smiðjunnar væri stjórnunar­vandi forstöðu­mannsins Mumma sem væri farinn að bitna á meðferðinni og skaða börnin sem væru í meðferð. Bragi vildi meina að  samskipti Mumma við börnin væru farin yfir velsæmis­mörk og framganga hans farin að valda vanlíðan og óöryggi, auk þess átti Mummi að hafa lagt starsmenn í einelti og ekki síst hótað ungmennum líkams­meiðingum.

Sagan sem Mummi sagði hinsvegar í Þvotta­húsinu í miklum smáatriðum stangast hinsvegar algjör­lega á við ásakanir Braga sem nú gegnir hlutverki innan nefndar á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna sem fer með rétt­indi barna.

Viðtalið við Mumma í Götu­smiðjunni er eitt það lengsta sem Þvotta­húsið hefur tekið upp, heilar 2.5 klst. Handritið sem lagt var upp með í byrjun hljóðaði upp á rúma klukku­stund en flæðið bauð ekki upp á annað enda er Mummi mikil sögumaður og með mikið líf á bakvið sig. 

Viðtalið má sjá og heyra í heild sinni hér á spil­aranum fyrir neðan en einnig má finna Þvotta­húsið á öllum helstu streymis­veitum eins og Spotify svo eitthvað sé nefnt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt