Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Ivana Trump er látin – „Sleppti aldrei tækifæri til að hlæja og dansa“

Ivana Trump
Ivana Trump

Ivana Trump, fyrr­verandi eiginkona Donalds Trump, fyrrum Bandaríkja­forseta, er látin.

Ivana var 73 ára gömul og lést af völdum hjarta­áfalls á heimili sínu í New York. Hún lætur eftir sig börnin sem hún átti með Donald Trump meðan þau voru gift, þau Donald, Ivönku og Eric.

Ivana fæddist í Tékkóslóvakíu árið 1949 en fluttist til Banda­ríkjanna til að sinna fyrirsætu­störfum og keppa á skíðum. Hún giftist Donald Trump þegar hún var 28 ára gömul, árið 1977. Þau skildu árið 1992 og Ivana giftist tvisvar eftir það. Hún giftist þriðja eigin­manni sínum, Rossano Rubicondi, sem var rúmlega 20 árum yngri en hún sjálf, árið 2008. Þau höfðu verið saman í sex ár áður en þau giftu sig, en hjóna­bandið entist í tæplega ár. Rubicondi lést skyndi­lega í nóvember síðastliðnum úr húðkrabba­meini.

Meðan á hjóna­bandi Ivönu og Donalds stóð voru þau umsvifa­mikil í viðskiptum og áberandi í Bandarísku þjóðlífi. Þau voru fasta­gestir á síðum hinna ýmsu slúður­blaða. Hjónin ráku saman hótel, spilavíti og verktaka­fyrirtæki, en Ivana var í háum stjórnunar­stöðum hjá fyrir­tækjum Trump-samstæðunnar.

Dóttir Ivönu, Ivanka Trump, minntist móður sinnar í færslu sem hún birti á Twitter í gærkvöldi.

„Ég er í sárum eftir fráfall móður minnar. Mamma var afburða­snjöll, heillandi, ástríðu­full og hrikalega fyndin. Hún lifði lífi sínu til hins ýtrasta og sleppti aldrei tækifæri til að hlæja og dansa.

Ég mun ávallt sakna hennar og mun halda minningunni um hana á lífi í hjörtum okkar alla tíð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt