Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Brynja Dan Gunnarsdóttir: „Rasismi á ekki að líðast“

Brynja Dan Gunnarsdóttir
Brynja Dan Gunn­ars­dóttir Mynd: Aldís Páls.

„Ég held að fólk ætti ekki að láta úr úr sér rasísk ummæli af neinum toga. Ég svo sem veit að það verður líklega aldrei þannig því miður en að stór miðill leyfi svona hlutum að fara í birtingu er mér fyrir­munað að skilja og hvað þá að gangast ekki við því, axla ábyrgð og sýna það í verki að það sé ekki í lagi,“ segir Brynja Dan Gunnars­dóttir, vara­þingkona og einn eigenda Loppunnar, sem hefur gagnrýnt orðræðu Mörtu Maríu Winkel Jónasdóttur, ritstjóra Smart­lands, um svart fólk á miðlinum en þar er meðal annars minnst á verslun í Boston sem ku hafa selt „fínasta barna­dótið“ og að þar versluðu hvorki svartir né fátækir.

Við saman eigum að vinna í því að upp­ræta hann og passa orð­ræð­una.

„Rasismi er eitthvað sem á hvorki að líðast hér eða annars staðar og við saman eigum að vinna í því að uppræta hann og passa orðræðuna. Mér finnst það beinlínis hættulegt að senda svona frá sér og þetta vissulega endur­speglar viðhorf blaða­manns. Ég skil í raun ekki af hverju það eru ekki allir miðlar að fjalla um þennan pistil og þetta málefni.“

Jómfrúarræðan

Brynja settist inn á þing í viku sem varamaður Ásmundar Einars. Hvernig var upplifunin að setjast inn í þings­alinn?

„Það var bara algjör­lega frábært og spennandi og gaman að fá að takast á við nýtt verkefni. Þar sem þetta voru bara fimm vinnu­dagar þá náði ég að flytja jómfrúar­ræðuna mína og leggja fram fyrir­spurn til matvæla­ráðherra varðandi laxeldi í sjókvíum,“ segir hún og er fyrir­spurnin eftir­farandi:

Hyggst ráðherra setja reglur um tilgreiningu á uppruna­landi eða uppruna­stað eldislax sem seldur er á Íslandi? Ef ekki, hver eru þá rökin fyrir því að gera það ekki?

Telur ráðherra stöðu laxeldis á Íslandi ásættanlega með tilliti til heil­brigðis og dýra­velferðar? Ef ekki, hvað telur ráðherra að hægt sé að bæta og mun hann beita sér fyrir því?

Telur ráðherra þörf á að bæta reglur um losun lífræns úrgangs eða frárennslis­vatns í laxeldi?

Telur ráðherra þörf á því að bregðast frekar við með einhverjum hætti vegna vísbendinga um erfða­blöndun milli eldislaxa sem sloppið hafa úr sjókvíum og villltra laxa­stofna?

Það er alltaf bara draumur að fá að mögu­lega ná fram ein­hverjum smá­breyt­ingum í átt að betra sam­fé­lagi.

Hver er draumurinn varðandi stjórn­málin?

„Það er bara þannig að ég veit ekki enn hvað ég vil verða þegar ég verð stór. En það er alltaf bara draumur að fá að mögulega ná fram einhverjum smábreytingum í átt að betra samfélagi.“

Grænt fyrirtæki

Brynja er einn eigenda Loppunnar sem selur notuð föt.

„Loppan er grænt fyrirtæki sem hefur lagt áherslu á að breyta kaup­hegðun Íslendinga. Við erum með allt milli himins og jarðar, öll helstu merkin og því kjörið að byrja leitina þar.“

Auð­lindir heims­ins eru ekki ótak­mark­aðar.

Finnst Brynju vera að aukast að fólk horfi í budduna og kaupi notað?

„Já, svo sannarlega. Það er viss vitundar­vakning sem hefur átt sér stað og ég finn að til dæmis unga fólkið okkar hugsar öðruvísi en við gerðum og þetta er þeim frekar eðlislægt. Loppan er staðsett í verslunar­kjarna og fannst mér vera mikilvægt skref að vera innan um hinar verslanirnar til þess einmitt að gera þetta að „norminu“ – að koma fyrst og leita að því sem vantar hjá okkur og fara svo og skoða nýtt ef við eigum það ekki til. Og ég held að okkur sé að takast það bara vel að koma þessum skila­boðum áleiðis. Auðlindir heimsins eru ekki ótakmarkaðar og það er því af hinu góða fyrir okkur og umhverfið okkar að nýta betur það sem til er.“

Göngutúrar í haustveðri

Það urðu breytingar í lífi Brynju fyrr á árinu en þá kom nýr maður inn í líf hennar.

„Ég hef aldrei verið mikið fyrir að tjá mig mikið um einka­lífið en get sagt að lífið er bara dásamlegt og allir glaðir.“

Er hún rómantísk?

„Ætli hann verði ekki að svara því en svona í eðli mínu já já, ég á það alveg til en mér finnst oftast bara til dæmis kertaljós, kósí tónlist, samvera og göngutúrar í haust­veðri og þessir hversdags­legu hlutir hafa sinn sjarma.“

Ég held að traust og góð sam­skipti séu lyk­il­at­riði.

Hvað þarf að hafa í huga til að viðhalda sambandinu almennt hvort sem það er nýtt eða fólk er búið að vera lengi saman og jafnvel gift?

„Ég held að traust og góð samskipti séu lykil­atriði; að geta talað um allt milli himins og jarðar og fá að vera maður sjálfur; stundum grjót­harður en stundum bara lítill í sér.“

Fjöldi flóttamanna áskorun

Fréttir berast daglega um hörmungarnar í Úkraínu og Rússar eru farnir að flýja til annarra landa. Vara­þingkonan er spurð hvernig stríðið snerti hana.

„Það snertir mig svo sannarlega og það líður ekki dagur sem maður spáir ekki í það og hugsar til Úkraínu. Þetta er nátt­úrlega bara hræðilegt og áhrifin af því svo mikil.“

Það er áskorun að taka á móti svona mörgum flótta­mönnum með svo skömmum fyr­ir­vara.

Sífellt fjölgar þeim Úkraínu­mönnum – aðallega konum og börnum – sem koma hingað til lands. „Við höfum tekið við þeim sem koma hingað með opnum örmum og auðvitað er það okkar og þeirra von að flótta­fólk geti farið aftur heim að stríði loknu ef það kýs að gera svo. Það er áskorun að taka á móti svona mörgum flótta­mönnum með svo skömmum fyrirvara og á svo skömmum tíma en við höfum reynt að gera það eins vel og hægt er.“

Segja má að ógnin færist nær okkur en í síðustu viku komu í ljós eyði­leggingar á nokkrum stöðum í gasleiðslum í Eystraasalti.

„Það er verið er að rannsaka ástæður lekanna og ekki vitað hvað nákvæmlega orsakaði þá en vissulega bendir margt til skemmdar­verka. Það er auðvitað áhyggju­efni þegar ráðist er gegn mann­virkjum á alþjóð­legu hafsvæði. Við erum hér með sæstrengi til dæmis og verðum að vernda þá til að halda uppi samskiptum.“

Sendi­herra Rússlands hér á landi var nýlega kallaður á fund ráðuneytis­stjóra utan­ríkis­ráðuneytisins þar sem honum var tjáð einörð afstaða íslenska ríkisins til innlimunar Rússa á fjórum héruðum í austan­verðri Úkraínu.

„Við eigum allt okkar undir því að ríki fari eftir alþjóða­lögum og því er yfirtaka á landi með vopna­valdi óásættanleg. Það er því eðlilegt að Ísland komi sínum sjónar­miðum á framfæri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning