Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Páll Vilhjálmsson í ham: „Lára V. skilnaðarlögfræðingur er með öll ráð veiku konunnar í hendi sér“

Páll Vilhjálmsson. Samsett mynd.
Páll Vil­hjálms­son. Samsett mynd.

Kennarinn Páll Vilhjálmsson bloggar sem aldrei fyrr:

Lára, RSK-miðlar og veika konan er yfir­skrift nýjustu færslu Páls, en þar segir meðal annars:

„Í gögnum lögreglu í RSK-saka­málinu er tölvu­póstur frá andlega veikri konu dagsettur 3. október í fyrra. Viðtak­endur eru Lára V. Júlíusdóttir lögfræðingur, Þóra Arnórs­dóttir á RÚV, Aðalsteinn Kjartansson og Ingi Freyr Vilhjálmsson, báðir á Stundinni.

Texti tölvu­póstsins er eftir­farandi: Sæl Lára. Ég gef hér með Þóru Arnórs­dóttur og Aðalsteini Kjartans­syni umboð til að ná í símkortin mín til þín ef þau óska eftir því að fá þau í hendur ásamt öðru efni sem þú kannt að hafa frá mér.

Lára er skilnaðar­lögfræðingur veiku konunnar. Hversu eðlilegt er að skilnaðar­lögfræðingur fái símkort skjólstæðinga sinna? Símkortin eru í fleirtölu, konan hafði a.m.k. tvo síma, líklega sinn eigin og afritaðan síma skip­stjórans. Hversu algengt er að fólk veiti blaða­mönnum að öllu sínu persónulegasta? Hvorki er þetta eðlilegt né algengt. Andleg veikindi þarf til. Veika konan er eins og leir i höndum RSK-blaða­manna sem fá umboð til að hnýsast í einkagögn konunnar, væntanlega til að eyða upplýsingum fyrri samskipti þegar lagt var á ráðin með að byrla Páli skip­stjóra, stela síma hans og afrita.“

Og Páll heldur áfram að skrifa og er hvergi banginn:

„Dagsetningin 3. október er mikilvæg. Samkvæmt greinar­gerð lögreglu var veika konan í sinni fyrstu yfirheyrslu tveim dögum síðar, 5. október. Slíkar yfirheyrslur eru boðaðar með minnst tveggja daga fyrirvara. Lára og RSK-miðlar vissu um yfirheyrsluna. Innköllun Láru á símkortunum átti að girða fyrir að upplýsingar í sakamáli kæmust til lögreglu.“

Lára V. Júl­í­us­dóttir lög­maður.

Ennfremur:

„Blaða­mennirnir ætluðu að mæta á lögfræði­stofu Láru, allir með umboð, til að fletta upp á fyrri samskiptum við veiku konuna og eyða til að lögreglan sæi ekki aðild þeirra að byrlun og gagna­stuldi. Án efa var lögreglan viðbúin og vissi hvers kyns yrði, hún hafði verið með málið í rannsókn frá miðjum maí. Hver var verjandi veiku konunnar í yfirheyrslu lögreglunnar? Jú, skilnaðar­lögfræðingurinn Lára V.

Í greinar­gerð lögreglu segir X [veika konan] var yfir­heyrður 5. október sl. Í þeirri yfirheyrslu viðurkennir X að hafa óskað eftir að fá að skoða síma brotaþola [Páls skip­stjóra] og þegar hann neitaði því kveðst X hafa snöggreiðst og farið fram og náð í svefnlyf sem hann vissi ekki hvaða tegund var og sett út í drykk brotaþola. Þegar þarna var komið í yfirheyrslunni greip verjandinn inn í og truflaði yfirheyrsluna með þeim afleiðingum að X tjáði sig ekki frekar.“

Páll bætir þessu við orð sín:

„Lára V. skilnaðar­lögfræðingur og verjandi er með öll ráð veiku konunnar í hendi sér. Lára er milli­göngumaður um að afhenda RSK-blaða­mönnum aðgengi að persónu­legu lífi skjólstæðings, símkortunum og „öðru efni“, og kemur í veg fyrir að konan tjái sig um nánari málsatvik eftir að hún byrlaði Páli skip­stjóra. Það er andstætt reglum um stöðu verjenda við yfirheyrslur sakborninga að þeir grípi frammí og stöðvi yfirheyrslur. En Láru lá á að hylma yfir aðild RSK-blaða­manna. Hér var meira í húfi en æra og orðspor fjölmiðla­manna. (Innan sviga: hér að ofan er játning á glæp sem Þórður Snær ritstjóri segir að hafi ekki verið framinn. Ritstjórinn er sá veruleika­firrtasti norðan Alpa­fjalla, – en mun ekki vera geðveikur.)

Lára er, eins og áður hefur komið fram, einn af flokks­eigendum Samfylkingar. Hún er frá stofnun flokksins innsti koppur í búri valda­kjarnans.“

Páll nefnir að „þingmenn Samfylkingar voru í start­holunum eftir að veika konan stal síma Páls skip­stjóra og fór með hann til afritunar á Efstaleiti áður en hún skilað tækinu aftur á sjúkrabeð skip­stjórans – til að hann skyldi ekki gruna neitt misjafnt. Um leið og Stundin og Kjarninn fengu fréttir frá Glæpa­leiti, unnar upp úr síma Páls, til að birta samtímis þustu þingmenn Samfylkingar á opinberan vettvang til að blása upp málið um meinta deild Samherja. Þingmenn Samfylkingar höfðu forskot. Skæruliða­deildin átti að verða stóra málið í haust­kosningunum í fyrra.

Helga Vala Helga­dóttir þingmaður Samfylkingar var fljót til, „Er þakklát fyrir fjölmiðla­fólk sem þorir,“ skrifaði hún á Twitter.

Þingmaður sem þakkar glæpi ætti kannski að leita sér að öðru starfi. Ef Helga Vala vill vera í návist við fólk sem hún er þakklát gætu verið lausar stöður á Hólms­heiði eða Litla-Hrauni.“

Páll spyr hvort Lára „notaði aðstöðu sína sem skilnaðar­lögfræðingur að koma á sambandi milli RSK-miðla og veiku konunnar? Lögreglan hefur enn ekki skilað af sér gögnum sem eru eldri en frá ágúst í fyrra. En það var í apríl og byrjun maí sem atlagan að Páli skip­stjóra var skipulögð og framkvæmd. Gögn um þá atburðarás eru enn ekki lögð fram, verða mögulega ekki kynnt fyrr en í réttarsal.“

Párar að lokum:

„Með umboðinu sem blaðamenn fengu 3. október til að lúslesa eldri samskipti sín við tilræðis­manninn er augljóst að þeir voru verulega áhyggju­fullir að sann­leikurinn yrði opinberaður; blaðamenn sem óttast sann­leikann eru verr settir en þorskur á þurru landi. Enginn spyr þorsk um heiðar­leika. Stjórn­málaflokkar geta skipt um nafn. En það verður erfiðara fyrir brotamenn RSK-saka­málsins að breiða yfir nafn og númer þegar öll gögn málsins verða lögð fram. Um RÚV og hjáleigurnar, Stundina og Kjarnann, þarf ekki að hafa mörg orð. Fjöl­miðlar sem stunda skipulagða glæpa­starfsemi eru feigðinni merktir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning