Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ingibjörg segir forsætisráðherra mega dansa og drekka: „En á endanum eru konur bara hot or not“

Ingibjörg Dögg Kjartans­dóttir, ritstjóri Stundarinnar, kemur forsætis­ráðherra Finnlands til varnar á Facebook. Sanna Marin, forsætis­ráðherra Finnlands, hefur verið gagnrýnd eftir að myndband af henni dansandi og syngjandi var birt á netinu.

„Í hvaða heimi má forsætis­ráðherra ekki dansa, drekka og skemmta sér? Er það vegna þess að hún er ung, falleg kona sem það þykir ekki viðeigandi. Af því að ég er nokkuð viss um að ráðherrar hafi nú í gegnum tíðina skemmt sér allskonar,“ skrifar Ingibjörg.

Hún segir málið sýna þá hræsni sem konur í valda­stöðu verða fyrir. „Fyrr­verandi ráðherra lýsti til dæmis samskiptum sínum við vændis­konur í opinberum heim­sóknum: „Í Austur-Evrópu er alltaf fullt af háklassa­hórum á slíkum stað. Til að fá frið bauð ég einni með mér í mat. Hún var sirka átján,” sagði hann meðal annars,“ segir Ingibjörg.

Hún segir málið minna á ýmis sambærileg mál á Íslandi. „Annars minnir þetta fíaskó að forsætis­ráðherra Finnlands þurfi að skila fíkniefna­prófi á það þegar Áslaug Arna mætti í sjónvarps­viðtal til að ræða kynferðis­lega áreitni gagnvart stjórn­málakonum og einhver karlfúskur hneykslaðist yfir prófíl-myndinni hennar, sem var bara falleg mynd af ungri konu en honum þótti of þokkafull, eða það lá í orðum hans. Eða þegar Kolbrún Benedikts­dóttir saksóknari þurfti að undir­gangast opinbera umræðu um brjósta­skoruna á sér í miðjum réttar­höldum yfir morðingja. Og Klaustur­málið eins og það lagði sig, alla kven­fyrirlitninguna sem birtist í orðum þeirra sem þar sátu. Þar á meðal fyrr­verandi forsætis­ráðherra og utan­ríkis­ráðherra sem töldu sig hafa ríkulegt frelsi til að vera fullir og ruglaðir. En á endanum eru konur bara hot or not.

Verst að það er hvorki hægt að virða þær fyrir það sem þær eru ef þær eru of sexý og skemmtilegar né ef það „fellur hratt á þær“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið