Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fjölmiðlapistillinn – TikTok – Tifandi tímaþjófur

TikTok er ávanabindandi
TikTok er ávana­bind­andi Mynd: Ashutosh

Hvað í fjandanum er þetta TikTok? er spurning sem miðaldra fólk eins og ég hefur sjálfsagt spurt sig síðan þetta fyrirbæri kom fram á sjónar­sviðið. Við vitum að Facebook er eitt stórt markaðs­torg, þar sem við sjálf erum varan, og að Instagram er aðallega vettvangur þar sem sjálf­miðaðir fá allt sem þeir þrá; athygli og samþykki. Þá vita líka flestir að Twitter er partí vinsæla og flotta fólksins sem venjulegu fólki var ekki boðið í. En hvað í fjandanum er þetta TikTok?

Dóttir mín er algjör­lega ofurseld TikTok og erum við foreldrarnir í miklu basli við að hafa hemil á notkun hennar en náðum því þó í gegn að hún sé bara með vini sína sem fylgjendur, til að reyna að koma í veg fyrir neteinelti sem ku þrífast á miðlinum. Dóttir mín hjálpaði mér, tækni­heftum pabba sínum, að búa til aðgang á þennan miðil sem er það vinsæll að lag frá níunda áratug síðustu aldar, toppar aftur vinsælda­lista heims eftir að hafa birst í mynd­böndum á TikTok. Valdi hún frekar óheppilegt nafn handa mér, en það fattaði ég eftir á. Nafnið er pabbigamli… Ekki stefni ég á heims­frægð, vildi bara athuga af hverju dóttir mín á erfitt með að stjórna notkun sinni á miðlinum og hvaða læti þetta væru eiginlega.

Nú hef ég notað TikTok í nokkra mánuði og get sagt að ég sé kominn með undirstöðu­skilning á þessu fyrirbæri. Þetta er sem sagt ekki bara kjána­legir TikTok-dansar sem gerir flinka dansara að milljarðamæringum heldur er þetta talsvert meira en það. Þetta er helsti tíma­þjófur internetsins í dag. Nafnið á miðlinum er því afar vel viðeigandi þar sem klukkan tikkar og tokkar ansi oft á meðan maður er fastur þar. Ef maður vill sem sagt slökkva á heilanum og gleyma stund og stað, er TikTok tilvalinn vettvangur. Þar er hægt að sjá fólk rembast við að vera fyndið, sumum tekst það, öðrum ekki eins og gengur og gerist, svo eru það beinu útsendingarnar sem sumar eru það furðulegasta sem ég hef séð, en þar er fólk til dæmis að strjúka míkró­fóninum sínum og hvísla í hann og smella tungunni og gefa frá sér furðuleg hljóð, en þetta finnst mörgum þægilegt. Ég er ekki einn af þeim. Svo eru það smakk-mynd­böndin þar sem fólk smakkar hitt og þetta og gefur því einkunn. Ég viðurkenni að ég hef lúmskt gaman af slíku. Margt annað má finna þarna sem festir mann í vef heila­lausrar skemmtunar, hvort sem það er gott eða slæmt. Svo að lesendur fái skýrari hugmynd um TikTok ákvað ég að kíkja á tíu myndbönd af handahófi og lýsa þeim í stuttu máli.

1. Amerískur maður í yfirvigt segir brandara. Ég er feitur en ég auðkenni mig ekki sem feitan, ég er trans-slinder. Drep­fyndið…
2. Bandarískur grínisti bregst við skrítnu matreiðslu­myndbandi. Hann hefur verið fyndnari.
3. Bein útsending þar sem bresk stelpa talar um nagg­rísinn sinn og sýnir búrið hans. Afar áhugavert.
4. Hinn íslenski Maggi Mix er staddur í skóglendi og segir að það sé í lagi að vera aumingi, en reynir svo við að lyfta upp trjá­drumbi og tekst það að lokum. Vel gert.
5. Myndband frá Grindavík sem sýnir jarð­skjálfta í verslun. Svakalegt.
6. Hin íslenska Thelma keppir við vin sinn í lyftingum, þykist taka 100 kíló. Nokkuð fyndið.
7. The Lovely Boys-grín­tvíeykið með fyndið hnerrmyndband. Guð hjálpi þeim.
8. Breskur maður bregst við matar­smakk­myndbandi og er alveg stein­hissa. Ég setti ekki „like“ við það.
9. Grín­istinn Jesse Joseph spyr spurninga sem fá heilann til að taka heljar­stökk. „Ef þú kýlir þig í andlitið og þú meiðir þig, ertu þá sterkur eða aumur?“ Gott stöff.
10. Kafari skoðar skrítinn fisk. Dýr eru alltaf skemmtileg.

Ég ætla hvorki að mæla með TikTok né hitt, þetta er fínt ef maður þarf ekkert að nota heilann í einhvern tíma eða er búinn með púslið og leiðist. En þarna þrífast líka alls konar leiðindi heyrir maður, þótt ég hafi ekki tekið eftir því. Allt er gott í hófi sagði skáldið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið