Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ráðherrar senda Hannesi stuðningskveðjur vegna handtöku í Svíþjóð: „Við höfum öll misstigið okkur“

Hannes Steindórsson, formaður félags fasteigna­sala og bæjar­fulltrúi í Kópavogi, hefur fengið mikil og góð viðbrögð við færslu sem hann birti á Facebook í gær. Meðal þeirra sem hafa sent Hannesi kveðju eru fjármála­ráðherra og dómsmála­ráðherra.

Hannes sagði frá því í gær að hann hefði nýlega verið hand­tekinn í Svíþjóð og gist fanga­geymslur eftir slagsmál á veitinga­stað þar í landi. Slags­málin segir hann hafa brotist út eftir að hann sat að drykkju með tveimur ókunnugum mönnum. Hannes segist í færslunni hafa ákveðið að segja frá málinu eftir hótanir ónafn­greindra fjölmiðla um „að birta lygasögur og kjafta­sögur.“ Hann segist ekki sætta sig við „hótanir fjölmiðla.“ Hannes segist vera alkóhól­isti. Hann hafi verið edrú í tæp 11 ár en hafi fallið og gert þessi mistök á fyrr­nefndum veitinga­stað nýverið.

Hannes var í fjórða sæti á lista Sjálfstæðis­flokksins í Kópavogi fyrir síðustu sveitar­stjórnar­kosningar og situr nú sem bæjar­fulltrúi í sveitar­félaginu. Hann er eigandi fasteigna­sölunnar Lind.

Ótalmargir hafa brugðist við frásögn hans og sent honum kveðjur. Meðal þeirra eru þeir Bjarni Benediksson, fjármála­ráðherra og formaður Sjálfstæðis­flokksins, og Jón Gunnarsson, dómsmála­ráðherra. „Gangi þér vel Hannes!“ skrifar Bjarni, á meðan kveðja Jóns er lengri: „Kæri vinur. Við höfum öll misstigið okkur á lífs­leiðinni. Þú setur þetta í reynslu­bankann og stendur sterkari á eftir.“ Marta María Winkel, drottning Smart­landsins á mbl.is sendir Hannesi einfald­lega hjarta.

„Hvaða ömurlegu fjöl­miðlar eru það sem ætluðu sér að velta sér upp úr þessu? Þvílíkt ruslaralið,“ segir Þór Saari, fyrrum alþingis­maður, í athugasemd við færsluna.

„Elsku vinur! Upp og áfram, ekki dvelja við þetta, þú ert fyrir löngu búinn að sigra og eitt lítið hliðar­skref breytir engu um það,“ segir Jóhannes Ásbjörnsson, afhafna- og veitinga­maður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið