Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Ég er með fjöldann allan af beinbrotum eftir grófustu árásirnar“

Sindri Viborg menntar sig sem kennari með áherslu á eineltisforvarnir.
Sindri Viborg menntar sig sem kenn­ari með áherslu á ein­elt­is­for­varnir.

Formaður Tourette-samtak­anna á Íslandi, Sindri Viborg, telur að breyta þurfi aðferðunum við að taka á eineltis­málum hér á landi; Sindri segir að afar illa gangi að leysa úr eineltis­málum innan skóla­kerfisins hér á landi, þar sem ekki er ljóst hver ber ábyrgð á því að taka á slíkum málum.

Sindri var viðmælandi í útvarps­þættinum Reykjavík síðdegis, á Bylgjunni.

Áberandi hafa verið fréttir um hræðilegt einelti sem tólf ára stúlka í Hafnar­firði hefur verið beitt – og eru lýsingarnar hreinlega ekki fyrir viðkvæma.

Í dag steig móðir stúlkunnar fram og ræddi um hið hrotta­lega einelti sem dóttir hennar hefur orðið fyrir í Hafnar­firði.

Sindri þekkir á eigin skinni að vera beittur einelti:

„Ég verð fyrir margra ára líkamlegu og andlegu einelti, ég er með fjöldann allan af bein­brotum eftir grófustu árásirnar; ég var stunginn með hníf,“ sagði Sindri og bætti þessu við:

„Þetta er líkamlega dótið, fyrir utan minni mál eins og að sauma saman göt á höfði eða einhvers staðar í andliti; gera að brákuðum útlimum. Það er svo fyrir utan hið andlega einelti og annan níðings­skap.“

Sindri segir tourette-sjúk­dómurinn sem hrjái hann hafi án vafa verið afdrifa­ríkur þáttur í eineltinu sem hann varð fyrir; lýsir því hvernig andlega hliðin á eineltinu var; segir útskúfun hafa þar spilað afar stórt hlutverk:

„Það kemur enginn í afmælið þitt, er gott dæmi; þú býður tvöföldum bekk með sextíu nemendum, en það mætir enginn. Þér er ekki boðið í afmæli, eða færð rangar dagsetningar og tíma­setningar; þú færð ekki að taka þátt í skóla­lífinu almennilega; það er gríðarlegt regn af niðrandi ummælum og öðru í frímínútum. Maður er útskúfaður í rauninni alls staðar.“

Sindri færði í tal að með tilkomu netsins hafi gerendum í eineltis­málum verið veittur enn greiðari aðgangur að þolendum. Segir að ekki hafi verið gripið inn í þegar hann var lagður í hrottalegt einelti, þrátt fyrir að hafa leitast eftir því sjálfur:

„Það skilaði ekki neinum árangri; eftir nokkur ár var ég sjálfur kominn í sjálfsvígs­hugsanir og tilraunir. Þetta sligar mann.“

Eins og áður var nefnt telur Sindri að illa muni gangi að leysa úr eineltis­málum innan skóla­kerfisins á Íslandi, þar sem ekki er ljóst hver ber ábyrgð á því að taka á slíkum málum. Þangað til verði erfitt að koma í veg fyrir einelti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning