Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Geir Ólafs söng fyrir Vladimir Pútín: „Mér var hætt að lítast á blikuna“

Geir Ólafsson.
Geir Ólafsson.

Geir Ólafsson söngvari bauð sig nýlega fram í sveita­stjórn fyrir Miðflokkinn, eftir símtal sem hann hélt að væri símaat. Geir er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggva­sonar og segir í þættinum meðal annars frá þessarri undarlegu atburðarrás:

„Ég fæ reglulega alls konar símtöl frá alls konar fólki og ég svara oftast. Svo er það einn daginn að það er hringt í mig og ég beðinn um að vera á lista fyrir Miðflokkinn í síðustu kosningum. Ég hugsaði með mér að þetta væri enn eitt grínið og ákvað að taka bara þátt og sagðist vera klár í þetta og hlakka til. Svo pældi ég ekkert meira í þessu og hélt að þetta hefði verið símaat. En svo fæ ég símtal skömmu fyrir kosningar þar sem ég er beðinn um að skrifa undir einhver plögg og þá hugsaði ég með mér að ég gæti ekki bakkað út úr þessu. Ég var settur í annað sætið á listann og það var bara mjög gaman að taka þátt í þessu. En almennt er ég ekki hrifinn af hjarðar­hegðun og flokka­pólitík og mér finnst að það ætti að gefa Íslendingum kost á að kjósa fólk með því að hafa persónu­kjör.“

Geir hefur glímt við kvíða síðan hann var barn og segir frá þeirri baráttu í þættinum:

„Ég er búinn að vera mikill kvíða­sjúklingur síðan ég man eftir mér og auðvitað hefur það háð mér mikið í gegnum tíðina. Ég man eftir fyrstu kvíða­köstunum mínum þegar ég var bara 6 ára og hefði líklega átt að fá alvöru aðstoð þá, sem ég fékk ekki. En það sem er kannski erfiðast núna er félags­fælnin. Ég fæ oft vanlíðan og einkenni þegar ég er í margmenni og þarf að passa mig þegar ég kem fram og syng. Þá er ég ekki of nálægt fólkinu og undirbý mig vel og er yfirleitt með einhverjum sem ég treysti. En almennt er ég ekki mikið í margmenni og þegar ég fer í bíó verð ég að vera í sæti nálægt útganginum svo dæmi sé tekið. Það verður auðvitað lýjandi að glíma við svona lagað í langan tíma. En ég er þakklátur fyrir það hvar ég er staddur í dag og hef lært að lifa með þessu.“

Í þættinum fer Geir einnig yfir eftir­minnilega atburði frá ferlinum. Meðal annars þegar hann söng fyrir Vladimir Pútín og fleiri valdamenn í höll í Moskvu:

„Maður labbar ekkert bara í gegnum venjulega hurð þegar maður hittir svona menn. Ég var leiddur af öryggis­vörðum í gegnum einar dyr sem læstust síðan á eftir mér og svo aðrar dyr sem læstust líka og svo koll af kolli. Mér var hætt að lítast á blikuna þegar ég var kominn í gegnum helminginn af dyrunum og kominn með innilokunar­kennd á háu stigi. Þegar ég var svo mættur fyrir framan Putín og hina valda­mennina voru þeir allir frekar þungir á brún eins og Rússar eru oft og ég var orðinn hálf­smeykur. En svo byrjuðu þeir að brosa og léttast þegar ég byrjaði að syngja ,,My Way” og það var mikill léttir. Eftir á að hyggja var þetta mjög skemmtileg reynsla og eins og svo margt í mínu lífi hálf óraunverulegt. En ég er gríðar­lega þakklátur fyrir það hvað ég hef fengið að koma fram víða og fyrir marga.“

Aðrir eftir­minnilegir tónleikar hjá Geir áttu sér stað í Bógóta í Kólombíu, þar sem hann endaði í sjúkrabíl:

„Ég var bara nýkominn til Bógota þegar tónleikarnir áttu sér stað og hafði ekki undirbúið líkamann nægilega vel. Þetta var stór kvikmynda­hátíð og mikið tækifæri fyrir mig, en borgin er vel á þriðja þúsund metra yfir sjávar­máli og fann það fljótt eftir að ég byrjaði að syngja að eitthvað var að. Ég varð andstuttur, fékk höfuðverk og sjón­truflanir og svo versnaði það bara og vernsaði þar til ég var sendur á spítala með háfjalla­veiki. Ég þekki kvíða vel, en þetta var allt öðruvísi og eiginlega bara ömurleg vanlíðan. Það er líklega ekki það sniðugasta sem maður gerir þegar líkaminn er í hæða­aðlögun að fara upp á háa C-ið og það endaði bara í sjúkrabíl. En reynslan sem ég fékk af heilbrigðis­kerfinu í Kólombíu var frábær.“

Geir segist gera sitt besta alla daga til að koma vel fram við náungann og finnst á köflum stemmningin á Íslandi vera full grimm og neikvæð:

„Það er alltaf einhver að gagnrýna einhvern og svo kemur einhver annar og gagnrýnir þann fyrir að vera að gagnrýna og þetta endar bara eins og hver önnur hringa­vitleysa. Það leiðir mann ekki neitt að vera stans­laust með neikvæðar skoðanir á öðru fólki. Ég held að eitt það besta sem ég hef lært er að verða betri í að halda kjafti. Það lagar mjög mörg vandamál að vera ekki alltaf með skoðanir á öllu saman og læra að anda í magann áður en maður hefur eitthvað mjög neikvætt til málanna að leggja. Skoðanir og gagnrýni kallar mjög oft bara á fleiri skoðanir og meiri gagnrýni. Þetta er fámennt land sem við búum í og við hljótum að geta gert betur í að koma vel fram við hvort annað og róað okkur í að vera að segja eitthvað neikvætt um náungann.“

Geir segist með árunum hafa lært að tileikna sér auðmýkt og þakklæti:

„Þegar maður eldist verður maður að nota skynsemina. Maður hefur ekkert leyfi til að setja sig á háan hest og þykjast betri en annað fólk. Besta leiðin til að ná til fólks er að vera hógvær, koma vel fram við fólk og draga úr dómhörku. Það eru allir að gera sitt besta við misjafnar aðstæður. Maður má ekki sofna á verðinum og láta hrokann koma aftan að sér. Ég minni mig alla daga á að vera þakklátur fyrir konuna mína og dóttur mína. Ég væri ekki þar sem ég er í dag ef ég hefði ekki kynnst konunnni minni og hún er það besta sem hefur komið fyrir mig. Ég er líka gríðar­lega þakklátur fyrir tækifærin sem ég fæ í tónlist og fjöl­skylduna mína og reyni að jarð­tengja mig alla daga og minna mig á að vera auðmjúkur og þakklátur.“

https://www.youtube.com/watch?v=B4zqRlqqYEw

Þáttinn með Geir og alla aðra Podcastþætti Sölva Tryggva­sonar má nálgast inni á: https://solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis