Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Helgi Björns dáður í áratugi og á fjölda sígildra laga: „Ég held ég hafi verið góður pabbi“

Helgi Björns.
Helgi Björns.

Sól Helga Björns­sonar hefur líklega aldrei risið hærra en á Covid tímanum þegar hann efndi til eins stærsta sjónvarps­viðburðar sögunnar á Símanum með hljómsveit sinni. Á hverju laugardags­kvöldi flykktist þjóðin að sjónvarps­skjánum til að horfa á Það er komin Helgi með Helga Björns og Reið­mönnum vindanna.

„Ég veit það ekki. Við nátt­úrlega gerðum þessa sjónvarps­þætti eða -útsendingar sem auðvitað náðu inn í hjarta þjóðarinnar þó ég segi sjálfur frá,“ segir Helgi Björnsson í viðtali við Mannlífið með Reyni Trausta­syni en Það er komin Helgi sló í gegn í Sjónvarpi Símans og var í opinni dagskrá þar sem Helgi og félagar í Reið­mönnum vindanna tóku lagið sem og gestir þeirra. Það má einfald­lega segja að stofu­tónleikar þeirra hafi slegið í gegn í samkomu­banninu.

Merkilegt fyrirbæri.

„Já, og það var nátt­úrlega alveg ótrúlegt. Fyrir okkur auðvitað var þetta ákveðið ævintýri en eftir á hefur maður líka fundið að þetta hefur verið mikil sáluhjálp hjá fullt af fólki. Þetta var kannski eðlilega ansi stórt þegar við byrjuðum með þessar útsendingar og við eins og allir aðrir í þjóð­félaginu og úti í heimi vissum svo sem ekkert hvað þetta var, við hverju mætti búast og hvað var að fara að gerast yfirleitt. Og þá er það tónlistin sem er alltaf mikil sáluhjálp. Tónlistin er alltaf nálægt okkur hvort sem er á sorgar­stundum eða gleði­stundum. Þannig að ég sá fyrir mér að við gætum sameinast þar og náð slökun og náð kannski utan um hvert annað með því að syngja saman lög sem allir þekkja. Og þetta tókst svona óskaplega vel.“

Maður hafi bara bjargað lífi þess.

Þú getur ekki hafa séð þetta fyrir.

„Nei, en ég sá það kannski fyrir að þetta væri eitthvað sem væri gott að væri til staðar,“ segir Helgi og bætir við að áhorf hafi verið svipað og áhorf á fréttir RÚV.

Helgi hefur fundið fyrir miklu þakklæti frá fólki vegna útsendinganna. „Fólk kemur til manns úti á götu eða hvar sem er og hefur þörf fyrir að þakka fyrir; maður hafi bara bjargað lífi þess. Maður verður nátt­úrlega bara feiminn og hrærður og roðnar.“

„Passið árarnar, strákar.“

Helgi Björnsson er frá Ísafirði.

Varstu villingur?

„Ég var orku­mikill.“

Það heitir villingur.

„Við vorum mjög frjáls­legir í fasi og uppátækja­samir. Fótboltinn var ríkjandi þegar maður var sex til tíu ára; það var alltaf farið út á völl að spila fótbolta, út á skólavöll Ég hef alltaf hugsað með mér hvað maður hefur verið heppinn að því leytinu til að alast upp úti á landi í ljósi þess hvert leik­svæðið var sem maður fékk að njóta; úti á bæjar­bryggju og niðri í fjöru. Maður var svo nálægt atvinnu­vegunum; maður var hoppandi um borð í togarana og bátana, maður krækti í þorskinn og rak fé í slátur­húsið og stal löppum til að flá og gera slíður fyrir hnífana. Frændi minn var sjö og ég sex og við fórum niður á dokku sem kallað var, það var norður­fjaran í rauninni, og bönkuðum upp á og fengum lánaðan bát og rerum út. Sex ára og sjö ára.“

Það var bara sjálfsagt.

„Það var bara sjálfsagt. „Passið árarnar, strákar, og skilið þeim svo þarna.“ Hann lét okkur fá árarnar.“

Fórum niður í Gamla bak­aríið að kaupa kók með lakk­rís­röri.

Þetta var mikið frelsi.

„Þetta var rosalegt frelsi. Svo tókum við fötu og fylltum hana í fjörunni af kúskel. Ég man þegar smokkurnn synti upp í fjöru. Við vorum niðri í fjöru að tína smokk í fötu til að fara upp í beitninga­skúr til að selja fyrir fimmkall eða tíkall. Og fórum niður í Gamla bakaríið að kaupa kók með lakkrís­röri. Þegar maður hugsar til baka; þarna var þessi dýrindis fæða, smokk­fiskur, sem er eitt það besta sem ég fæ í dag.“

En það hvarflaði ekki að okkur að borða hann þá.

„Nei, ekki að ræða það. Þetta fór bara í beitu. Það er svo auðvelt að beita þessu.“

Barnaskemmtanir

Helgi er spurður hvað hafi orðið til þess að vestfirskur drengur, hálf­gerður villingur, hafi farið í tónlistina, leikhúsið og bíómyndirnar í stað þess að fara á sjóinn.

„Ég fékk snemma áhuga á tónlistinni. Ég lá og hlustaði á útvarpið og leitaði að músík og sönglaði mig í svefn er mér sagt.“

Helgi og vinur hans, Hörður, fengu bunka af þýsku Bravo-blöðunum hjá bróður Harðar og klipptu út myndir af Bítlunum. „Ég vegg­fóðraði allt herbergið mitt. Áhuginn var svo mikill.“

Helgi segist hafa verið svo heppinn að Margrét Óskars­dóttir, sem var mikill forkólfur í Litla leik­klúbbnum á Ísafirði, hafi kennt sér í barna­skólanum. „Hún var svo mikil áhuga­manneskja um leiklist. Það var frjáls stund einu sinni eða tvisvar í viku á stunda­skránni og þá vorum við að leika; spinna og búa til litla þætti. Ég hafði mjög gaman af þessu og var síðan fenginn í barna­skemmtanir sumar­daginn fyrsta. Þá voru einhverjir krakkar að gera eitthvað og ég var dreginn inn í það. Ég fór síðan 13 eða 14 ára að leika með Litla leik­hópnum og lék aðeins með þeim sem unglingur.“

Þannig að það kom ekkert annað til greina en þessi leið.

„Nei.“

Helgi segir að þegar hann var 10-12 ára hafi hann sagt að hann ætlaði annaðhvort að verða poppstjarna eða atvinnu­maður í knatt­spyrnu.

Hann varð ekki atvinnu­maður í knatt­spyrnu. Hann segir að þegar hann hafi farið að fá áhuga á stelpum þá hafi gítarinn verið meira aðdráttarafl heldur en fótbolta­skórnir.

Í banni

Hann var í skóla­hljómsveit í gegn­fræða­skólanum.

„Ég og Hörður Ingólfsson, vinur minn, vorum mikið saman og sömdum meira að segja lög á þessum tíma, 14-15 ára. Við fluttum frumsamin lög á gagn­fræðaskóla­skemmtunum sem var ekki algengt á þeim tíma.“

Hann spilaði á skóla­böllum og svo fór hann að koma fram í hléi á tónleikum Dans­hljóm­sveitar Vestfjarða.

Þá skiptu þeir allir um hljóð­færi og fengu mig til að syngja.

Var það kikk að koma fram í hléi?

„Já, að sjálfsögðu var það ákveðið kikk. Þá var þetta atriði í hléi; þá skiptu þeir allir um hljóðfæri og fengu mig til að syngja. Þetta átti að vera gesta­hljómsveit; allir fóru í einhverja búninga og þetta átti að vera pönk­hljómsveit sem hét Skítkast. Í félags­heimilinu í Hnífsdal. Það var gaman að þessu öllu saman.“

Svo fór Helgi í Leiklistar­skóla Íslands og þá mátti hann ekki koma fram; ekki einu sinni í sumar­fríum.

„Ég man að ég fékk boð um að koma vestur og syngja með hljómsveit yfir sumarið en það var ekki í boði. Ég var í banni.“

Hver voru rökin fyrir því?

„Ég held að upphafið að þessu hafi verið það að leiklistar­skólanemar voru svolítið þjóð­nýttir í Þjóð­leikhúsinu. Þeir náðu í þá; fengu þá til að vinna og tóku þá út á fyrsta eða öðru ári. Það kom smáó­ballans í skólanum; það voru strax einhverjir orðnar stjörnur.“

Helgi málaði eitt sumarið og annað sumar var hann í Kaupmanna­höfn. „Ég málaði svolítið. Pabbi var málari áður en hann fór að vinna sem íþrótta­fulltrúi hjá bænum þannig að maður var liðtækur á penslinun.“

Þetta var í blóðinu; málningin.

„Já.“

Rosalega skemmtilegt

Hljóm­sveitin Grafík var búin að gefa út tvær plötur áður en Helgi gekk til liðs við hana.

„Ég útskrifaðist frá leiklistar­skólanum vorið 1983 og Grafík var með söngvara sem var einhvern veginn ekki að ganga upp hjá þeim. Þeir voru búnir að bóka sig á böll þarna fyrir vestan; allan Vestfjarðar­kjálkann. Það var Patró, Bíldu­dalur, Flateyri og svo framvegis – allar helgar föstudaga og laugar­daga sem sýnir hvernig þetta var í þann tíð. Þú gast verið á Vestfjörðum og spilað allt sumarið. Rabbi hringdi í mig og sagði að þá vantaði söngvara fyrir næstu helgi og spurði hvort ég væri klár. Ég hugsaði mig um en kíldi svo á þetta. Ég var búinn að ráða mig í kvikmynd; fyrsta kvikmynda­hlutverkið sem var í Atóm­stöðinni sem var tekin upp allt sumarið. Þetta átti að verða mikið stórvirki á þeim tíma og ætlað til útflutnings. Það var stefnt á heims­markað. Þess vegna var myndin í rauninni tekin upp bæði á íslensku og ensku. Ég lék í kvik­myndinni í miðri viku og flaug svo vestur um helgar. Og svo var keyrt á Patró, Flateyri eða hvert sem var.“

Þetta var rosa­lega skemmti­legt, maður.

Var þetta ekkret þreytandi líf?

„Þetta var rosalega skemmtilegt, maður.“

Helgi var 25 ára.

„Endalaus orka.“

Hljóm­sveitin samdi ný lög og þar á meðal Mér finnst rigningin góð.

„Það er merkilegt að „Rigningin“ er eitt af fáum lögum að ég held sem öðlaðist vinsældir áður en það var nokkurn tímann spilað í útvarpi af því að við byrjuðum að syngja þetta á böllum. Og svo fór liðið út eftir böll og söng þetta.“

Svo kom plata út og hún sló í gegn en á henni eru meðal annars lögin Þúsund sinnum segðu já, 16  og einmitt Mér finnst rigningin góð.

Helgi hætti í Grafík árið 1986.

„Stóri faktorinn var að ég var kominn inn í leikhúsið að leika í sýningu sem hét Lands míns föður og hún varð svo gríðar­lega vinsæl. Við vorum að leika hana sex kvöld í viku; allan veturinn 1985/1986. Það var ekkert kvöld laust hjá mér. Þeir í Grafík vildu eðlilega gera eitthvað meira þannig að það flosnaði aðeins upp. Svo átti sýningin að fara í gang næsta vetur á eftir þannig að við tókum þessa ákvörðun nokkuð sameiginlega að þetta væri orðið gott og við tókum farvel-túr fyrir vestan. Tókum nokkur gigg.“

Helgi Björns í stúd­íói Mannlífs ásamt spyrj­anda.

SSSól

Kvöld eftir kvöld í Lands míns föður.

„Við náðum vel saman, ég og Pétur Grétarsson trommari, sem var að tromma í þeirri sýningu, og ákváðum við að gera eitthvað saman. Í fram­haldinu hafði ég samband við Jakob sem hafði verið með mér í Grafík. Við hættum saman í Grafík. Hann tók Eyjólf Jóhannsson sem var með honum í Tappanum ásamt Björk og Eyþóri. Við byrjuðum að æfa og vinna saman og það var ekki mikill tími vegna þess að þeir voru í dagvinnu og við vorum alltaf á kvöldin og eini tíminn sem við fundum til að byrja með, sem sýnir ákveðnina í að láta eitthvað verða af þessu, var messutími; á sunnu­dögum klukkan 11.“

Þetta var upphafið að Síðan skein sól sem síðar varð SSSól og heldur hljóm­sveitin upp á 35 ára afmælið í ár og verða afmælis­tónleikar í Háskóla­bíói á næstunni.

35 ár.

Rolling Stones eru 60 ára.

„Já, og Stuðmenn 50 ára.“

Fjórðu tón­leikar hljóm­sveit­ar­innar voru í Laug­ar­dals­höll.

Þið þurftuð ekki langan tíma til að slá í gegn.

„Nei, það er alveg rétt. Það var merkilegt að fyrsta árið sem við störfuðum þá byrjuðum við á að spila á tónleikum í Hlað­varpanum í Grófinni. Síðan héldum við tónleika í Tónabæ, svo voru einir tónleikar á Hótel Borg og fjórðu tónleikar hljóm­sveitarinnar voru í Laugar­dalshöll.“

Ég segi það. Þetta er bara alvöru.

„Það var mjög fyndið en svona gekk þetta fyrir sig.

Svo kom ekki plata fyrr en árið eftir, 1988, og þá gáfum við fyrst út 12 tommu plötu þar sem var til dæmis lagið Bannað sem sló strax í gegn. Síðan um haustið kom út fyrsta stóra platan.“ Á henni er til dæmis lagið Geta pabbar ekki grátið?, Svo marga daga og fleiri lög sem náðu strax mikilli hylli.

Þið eigið bara marga hittara þannig að fólk á von á góðu í Háskóla­bíói.

„Já.“

Og þeir voru margir tónleikarnir sem voru haldnir eftir útgáfu plötunnar.

„Ég gerði fljótt samning við Íþróttta- og tómstundaráð Reykavíkur; ég seldi þeim þá hugmynd að ég myndi spila í öllum félags­miðstöðvum og fengi eingreiðslu fyrir það. Mig minnir að það hafi verið 250 kall á þeim tíma. Þetta var samþykkt og ég fór beint með þetta upp í hljóðfærabúð og keypti lítið kerfi þannig að við mættum með kerfi og stillum upp og svo spiluðum við í öllum félags­miðstöðvum borgarinnar. Og það var svo skemmtilegt þar. Ég virkaði alltaf krakkana þegar við vorum búnir að spila nokkur lög og spurði hvort einhver kynni að spila á trommur. Það var alltaf einn sem rétti upp hönd, eða tveir, og hann var tekinn upp og spilaði eitthvað. Wild Thing eða eitthvað sem hann kunni. Svo spurði ég hvort einhver spilaði á bassa og svo endaði þetta þannig að ég var kominn með nýtt band fyrir aftan mig og við sungum eitthvað einfalt lag sem allir kunnu.

Þá vorum við að kynna þessar hljóm­sveitir fyrir lands­byggð­inni.

Svo fannst mér sérstak­lega gaman að því kannski 10 árum seinn þegar einhverjir hljóm­sveitar­gaurar voru að koma til mín og sögðu að þeir hefðu spilað með okkur í félags­miðstöð. Mér fannst þetta ótrúlega skemmtilegt. Þetta hefur alltaf verið partur af minni sýn; eins og þegar við vorum orðnir vinsælir og vorum að spila sem mest úti á landi og vorum með full hús  – Ýdalir, Miðgarður, Njálsbúð og hér og þar og þúsund manns – þá tók ég alltaf með mér hljóm­sveitir til þess að spila bæði á undan og líka í pásu; og þá vorum við að kynna þessar hljóm­sveitir fyrir lands­byggðinni. Það voru til dæmis hljóm­sveitir úr bænum sem höfðu aldrei komið út á land. Þetta var stórt stökk fyrir þær og þær fengu þarna mega kynningu. Þetta voru hljóm­sveitir eins og Botnleðja, Kolrassa krók­ríðandi, Quarashi og 200.000 naglbítar. Þetta voru hljóm­sveitir sem urðu síðar þekktar.“

Helgi er spurður um tilurðina að nafni hljóm­sveitarinnar, Síðan skein sól, og segir að það megi segja að það hafi verið svar við þekktasta laginu með honum og Grafík: Mér finnst rigningin góð.

Það svín­virkar og síðan breyttist þetta í skamm­stöfun; SSSól.

„Það var þegar við ákváðum að fara erlendis og reyna fyrir okkur úti. Þá breyttist þetta í SSSól.“

Geta pabbar ekki grátið?

Helgi segir að hugmyndin að textanum í laginu Geta pabbar ekki grátið? tengist syni hans. „Hann sagði: „Pabbi, geta pabbar ekki grátið?“ Og mér fannst þetta nátt­úrlega alveg frábær spurning. Þannig að ég sneri þessu fljótt yfir í texta. Ég hef ekki nákvæmar skýringar á hvað er að gerast í hausnum á manni þegar manni dettur hitt og þetta í hug en ég hef alltaf verið frjór og mér finnst gaman að leika mér að svona hlutum; og kannski líka að koma á óvart. Og auðvitað í dægur­lagatextum skiptir máli að grípa athygli og hafa grípandi frasa.“

Helgi og eiginkona hans, Vilborg Halldórs­dóttir, eiga nokkur börn og er Helgi spurður hvernig pabbi hann hafi verið.

Maður var eins og sjó­maður.

„Ég held ég hafi verið góður pabbi en ég sé það eftir á að ég var allt of mikið í burtu. Þegar maður hugsar til baka og vill breyta einhverju þá hefði maður viljað vera miklu meira til staðar. Maður var eins og sjómaður; maður var ansi mikið „á sjónum“ og sérstak­lega á tímabili. Þessi ár þegar við vorum að taka þennan ballrúnt þá voru þetta allar helgar, föstu­dagur og laugar­dagur, og maður var kannski að koma heim um miðjan dag á sunnudegi. Þannig að margar fjöl­skyldu­stundir eru farnar og það er kannski sárast þegar maður hugsar til baka. En þegar ég var á staðnum þá held ég að ég hafi verið nokkuð góður.“

Gera meira

Helgi Björnsson hefur komið víðar við.

Þú ert „business-maður“ líka; þú ert í alls konar bixi ef maður má orða það sem svo.

„Það kom af því að ég þurfti fljótlega að fara að reka þetta batterí sem hljóm­sveitin var. Við vorum með umboðs­mann þegar við vorum að byrja en það var bara tómt vesen og endaði yfirleitt í einhverju rugli. Þannig að ég tók þetta fljótlega yfir sjálfur og síðan varð þetta meiri og meiri rekstur og eftir því sem við urðum vinsælli, stærri og spiluðum meira þá fór þetta að verða útgerð.“

Þetta er eins og skip.

„Já; leigja rútu, hljóð­kerfi og mannskap og vera að búa til auglýsingar og hitt og þetta. Þannig að þetta er bara orðið fyrirtæki og ég var nátt­úrlega að reka þarna fyrirtæki sem velti milljónum. Þannig byrjaði þetta. Þá fór maður að hugsa um þessa hluti. Síðan þegar ég var orðinn pínulítið þreyttur á þessum hring og þessari spila­mennsku í bili af því að við vorum búnir að keyra svo helvíti stíft þá ákvað ég að taka frí og þá bauðst mér að reka lítinn matsölu­stað, pítsustað, niðri í Austur­stræti sem hét Pisa. Hann var við hliðina á stað sem hét þá Berlin þar sem gamli Karnabær var. Ítalski staðurinn var í portinu. Þá kom í ljós að gestir skemmtistaðarins Berlin gátu gengið í gegnum eldhúsið og niður á annan skemmtistað niðri í kjallara sem hét Rosenberg. Það var sami leigjandi með báða staðina og ég sagðist ætla að taka þá báða og gera alvöru stað úr þessu. Og þá bjó ég til Astro. Skemmtistaðinn Astro.“

Það gekk vel.

„Það gekk rosalega vel. Þetta gjör­samlega sló í gegn. Í dag er talað um Astro-kynslóðina.“

Vilborg hafði verið í heimspeki­námi við Háskóla Íslands og segir Helgi að hún hafi viljað fara í skiptinám til Ítalíu. Helgi seldi hlut sinn í Astro og fjöl­skyldan flutti til Florens. „Það var kærkomið frí og þar náðum við miklum kærleiks- og yndistíma saman, fjöl­skyldan. Við þurftum að stóla á hvert annað.“

Þau fluttu svo heim 1998 og nokkrum árum síðar keypti Helgi leikhús í Berlín og flutti þangað 2006. „Ég var kominn með íbúð þar en var alltaf með annan fótinn hér; við vorum búin að vera með stelpuna okkar yngstu á Ítalíu og það var svolítið mikið að rífa hana aftur upp úr skólanum til að fara með hana til Þýska­lands allt í einu. Við vorum svona að fljúgast á.“

Helgi vann á þessu tímabili hjá Skjá einum sem markaðs­stjóri. Þá vissi hann ekki að hann ætti eftir að halda stórum hluta lands­manna við skjáinn mörgum árum síðar þegar heims­faraldur reið yfir og samkomu­bann gilti.

Þetta er í sjálfu sér ekki kalkúlerað.

Hvernig nærðu að endurnýja þig svona aftur og aftur? Þú hefur horfið í smátíma en kemur alltaf aftur.

„Þetta er í sjálfu sér ekki kalkúlerað, skipulagt eða úhugsað; þetta gerist meira í flæðinu og ég hef haft það að leiðar­ljósi að nota innsæið svolítið mikið og leyft hlutunum að koma til mín og það hefur reynst mér mjög vel í gegnum tíðina. Svo held ég að það hljóti að vera ákveðin forvitni og ástríða sem gera það að verkum að maður hefur löngun til að gera betur. Gera meira.“

Podcastið er að finna í heild sinni hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning