Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Átján ára nektardansmær: „Leyfðu þeim að þukla sig að vild, bæði um brjóstin og milli fótanna“

Mynd/samsett skjáskot timarit.is
Mynd/sam­sett skjá­skot tima­rit.is

Á tíunda áratuginum átti sér stað bylgja innan skemmtanbransans á Íslandi. Nektar­dansstaðir nutu mikilla vinsæla og virtist landinn ekki fá nóg. Þegar ásóknin var sem mest voru til dæmis um átta slíkir staðir á höfuð­borgar­svæðinu og áttu Akureyringar metið miðað við höfðatölu en þrír staðir voru starf­ræktir á Akureyri.

Þann 13. mars 1995 birtist grein í Helgar­póstinum. Heimilda­maður lýsti fyrir blaða­manni aðbúnaði á starfs­aðstæðum kvennanna á nektar­sýningu á Café Bóhem.„Stúlkurnar virtust frekar ungar og virtust ekki hafa neina stjórn á neinu. Þær gengu bara þægar á milli manna þegar þær voru orðnar naktar og leyfðu þeim að þukla sig að vild, bæði um brjóstin og milli fótanna.“

Lýsing heimilda­mannsins líkist einna helst starfsemi vændis­húss en í samtali við Helgar­póstinn þvertók framkvæmda­stjóri staðarins, Guðjón Sverrisson, fyrir það og sagði það með öllu rangt.

800 króna aðgangs­eyrir var greiddur til að komast inn á Café Bóhem og þetta umrædda kvöld greinir í fréttinni að um 100 manns hafi verið á staðnum þá lýsti heimilda­maðurinn aðstæðum þannig: „Um leið og stúlkurnar, sem virtust mjög ungar, voru orðnar alls­naktar gengu þær á milli manna sem þukluðu þær að vild bæði um brjóstin og milli fótanna og þegar ferðinni var lokið milli ótal karlmanna í salnum klæddi stúlkan sig í nærföt og settist við borð í salnum og fylgdist með hinum þar til röðin kom aftur að henni en staðurinn býður upp á sýningar allt kvöldið með tíu til fimmtán mínútna hléum inn á rnilli.

Heimilda­maðurinn sagði í samtali við blaðið að honum hefði verið nóg boðið enda hefði hann fylgst með slíkum sýningum erlendis og þær væru einfald­lega allt annars eðlis en sýningarnar á Café Bóhem. Annar maður sem sá sýninguna á föstudags­kvöldið, þegar nokkuð færri voru viðstaddir, sagði í samtali við blaðið að menn hefðu mátt koma við stelpurnar meðan þær gengu um salinn. Einnig hefðu þeir mátt ganga að þeim meðan á dansinum stóð og stinga peningum í sokka eða nærbuxur.“

Nektardansmær stígur fram

Þann 16. mars 1995 eða þremur dögum eftir birtingu fréttar Helgarpóstins birtist hjá sama miðli, nafnlaust viðtal við 18 ára stúlku sem hafði starfað sem dansari á staðnum í tvo mánuði. „Mamma mín og pabbi eru brjáluð út í mig eftir fréttina sem birtist í PÓSTINUM. Þau vissu að ég væri að vinna þarna en ekki hvað ég væri að gera.“

Í viðtalinu útskýrir hún aðstæður og vísar á bug lýsingum heimilda­mannsins í fyrri frétt: „Það er ekki rétt að við leyfum þeim að þukla okkur að vild. Við látum þá ekkert káfa á okkur. Þeir fá aðeins að koma við brjóstin á okkur, en það telst varla káf. Ef þeir gerast of ágengir er okkur ráðlagt að slá á hendurnar á þeim. Auk þess að sýna eigum við í mesta lagi að setjast til borðs með þeim og athuga hvort þeir bjóði okkur í glas og svoleiðis.“ Stúlkan segir hins vegar ekki nema fáeina karlmenn drukkna og ágenga, og aðeins einu sinni hefði hún þurft að henda karlmanni frá sér, en að öðru leyti gengi þetta vel. „En þetta er ekki drauma­starfið og maður fær heldur ekki góðan pening fyrir að vinna þama. Það er bara rétt svo að maður geti lifað af þessu. Það sem bætir þetta þó upp er að stundum fáum við tips sem karlarnir stinga í nærbuxurnar okkar.“ Aðspurð sagði hún íslensku stúlkunar ekki fara úr öllu, bara þá dönsku sem fýrir mánuði bættist í hópinn. Sú væri öllu reyndari en þær og hafi því kennt þeim talsvert. „Við íslensku stelpurnar viljum ekki fá slæmt orð á okkur, því reynum við að sleppa því að fara úr öllu.“ Hún staðfesti það sem fram kom í blaðinu á mánudag að sýningar væru stans­lausar allt kvöldið með um það bil korters millibili og að aðeins ein stúlka sýndi í einu.

Úr því þú segir að þetta sé ekki drauma­starfið, hvað kom til að þú fórst að starfa sem nektar­dansmær á Café Bóhem?

„Mér datt þetta bara í hug þegar ég sá þetta auglýst enda hafði ég enga aðra vinnu. Ég tek það fram að ég hef aldrei unnið við svona áður. Ástæðan fyrir því að ég missti vinnuna mína sem ég var áður í var sú að ég datt og brotnaði og þurfti því að vera lengi í gifsi og var þá tilkynnt að ég gæti ekki haldið vinnunni. En um leið og ég fæ aðra vinnu hætti ég hér.“

Lögbann árið 2010

Lögbann var sett á nektar­dansstaði á Íslandi 1. júlí 2010. RÚV fjallaði um málið:

„Hinsti nektar­dansinn var stiginn á nektar­dansstaðnum Vegasi í gær. Lög sem banna nektar­dans tóku gildi á miðnætti en með þeim falla úr gildi undanþágur til að starf­rækja nektar­dansstaði.

Nektar­dansstaðir spruttu upp eins og gorkúlur víða um land seint á 10. áratugnum. Á tímabili voru starf­ræktir 8 slíkir staðir á höfuð­borgar­svæðinu, 3 á Akureyri og 1 í Keflavík. Þeim hefur smám saman fækkað. Undan­farin ár hefur þurft að sækja um sérstaka undanþágu frá lögum til að starf­rækja slíka staði en frá og með deginum í dag er einfald­lega bannað að gera út á nekt á skemmtistöðum.

Eigendur nektar­dansstaða hafa margir brugðist við nýju lögunum með því að skipta um starfsemi. Á Vegas er til að mynda verið að umturna öllu. Staðnum verður breytt í bítlabar og þar verða engar fáklæddar meyjar.

Þrátt fyrir laga­breytinguna munu súlu­dans­sýningar ekki hverfa með öllu. Dæmi eru um að menn ætli að halda sínu striki með örlitlum breytingum þó.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning