Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Í góðum málum / Í slæmum málum

Auðun Lúthersson
Auðun Lúth­ers­son

Í góðum málum

Tónlistar­maðurinn Auðunn Lúthersson, öðru nafni Auður, er í mjög góðum málum í augna­blikinu enda var hann að gefa út glænýtt lag með þjóðar­gersemi Íslands, Bubba Morthens. Lagið heitir Tárin falla hægt og þykir passa vel við söngvarana en Bubbi hefur ekki alltaf verið allra enda verið óheflaður og opinn um eitur­lyfjaneyslu fyrri ára sinna. Auður dró sig í hlé eftir að ásakanir komu fram á samfélags­miðlum árið 2021 þar sem hann var sagður stigið yfir mörk nokkurra kvenna. Hann viðurkenndi síðar að hafa farið yfir mörk ungrar konu árið 2019. En nú er hann sem sagt kominn aftur á ról og byrjar af krafti en búast má við að nýja lag þeirra félaga muni skríða hægt og rólega upp vinsældar­lista útvarps­stöðvanna eins og fyrri lög þeirra beggja. Af tilefni útgáfu lagsins sagði Auður: „Það er heiður að gera lag með þjóðar­skáldi. Þegar Bubbi bað mig um að vinna með sér gat ég ekki annað en sagt já. Sem krakki mæmaði ég með Utan­garðsmönnum, spilaði á luftgítar, hoppaði í rúminu og þóttist vera á sviði einn inni í herbergi. Fjöllin hafa vakað er fyrsta lagið sem ég lærði á gítar. Núna er ég að gefa út lag með honum.“ Bubbi sagði af sama tilefni: „Frá því ég heyrði í Auð í fyrsta skipti vissi ég að þarna væri kominn lista­maður sem hefði vægi. Og ég hugsaði: Ég verð að vinna með honum einn daginn.“ Fallegt.

Í slæmum málum

Vináttan er í slæmum málum þessi dægrin. Nánast í hverri viku birtast fréttir af vina­slitum þekktra einstaklinga sem áður voru óaðskiljanlegir, þannig séð. Fyrstur í þessari bylgju var  sjálfur seðla­banka­stjórinn, Ásgeir Jónsson sem sleit vináttu sinni við verk­fræðinginn og tónlistar­manninn Val Arnarsson. Eða hann „unfriendaði“ Val á Facebook vegna misheppnaðs (að mati Ásgeirs) gríns á kostnað Katrínar Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra. Valur tók vinaslitinum við seðla­banka­stjórann ekki illa og sagði af því tilefni: „Mikið væri nú gott ef stýri­vextirnir hans unfrienduðu mig líka.“

Stuttu síðar kom frétt sem fæstir bjuggust nokkurntímann við að lesa, enda voru líkurnar stjarnfræði­lega litlar að slíkt gæti gerst. Aldar­gömlu vinirnir Davíð Oddsson, fyrr­verandi seðla­bankastjóri og hitt og þetta og núverandi ritstjóri Morgun­blaðsins, og Jón Steinar Gunnlaugsson fyrr­verandi hæstaréttar­dómari, slitu vináttu sinni. Sagði dómarinn fyrr­verandi frá þessu sorglega máli í hlaðvarps­þætti Sölva Tryggva­sonar þar sem hann sagði að þeir fyrrum BFF hefðu ekki talast við í meira en ár. Sagði hann meðal annars í þættinum: „Hann hætti bara að tala við mig og hefur líklega farið í fýlu út í mig. Hann hefur ekki fengist til að segja mér hvað veldur þessum vinslitum. Kannski af því að ég lét ég í ljósi andúð mína á meðferð hæstaréttar á broti þar sem bankamenn voru dæmdir umvörpum í fangelsi fyrir umboðssvika­brot.“ Á dauða mínum átti ég von á en ekki þessu. En Davíð hefur þó alltaf Hannes.

Nýlegasta dæmið í þessari bylgju vinaslita eru slit vináttu Birgis Hólm Björgvins­sonar, fyrr­verandi gjaldkera Sjómanna­félags Reykja­víkur og Jónasar Garðars­sonar, þáverandi formanns Sjómanna­félagsins. Þeir félagar höfðu ávalt verið einmitt það, félagar og studdi Birgir við bakið á Jónasi er hann strandaði bát sínum með þeim afleiðingum að tvennt lést. En í hlaðvarps­þættinum Sjóarinn sagði Birgir frá vinslitunum en vildi ekki fara nánar út í málið að svo stöddu. Vonandi líkur hér með vina­slitum merkilegra einstaklinga og öll dýrin í skóginum haldi áfram að vera vinir. Svona eins og Bubbi og Auður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning