Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Múlaþing biður íbúa afsökunar: „Þetta er náttúrulega til skammar“

Seyðisfjörður- Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Seyð­is­fjörður- Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: east.is

Mikil röskun hefur orðið á sorp­hirðu í Múla­þingi í vetur sam­kvæmt íbúum sveit­ar­fé­lags­ins og hefur málið valdið svo miklum vand­ræðum að sveit­ar­fé­lagið baðst afsök­unar í færslu á sam­fé­lags­miðlum.

„Múlaþing vill aftur biðja íbúa sína afsök­unar á þeirri röskun sem hefur orðið á sorp­hirðu og þakkar um leið fyrir þær ábend­ingar sem hafa borist vegna hennar,“ segir í færsl­unni sem birt­ist meðal ann­ars á Facebook en óhætt er að segja að sú afsök­un­ar­beiðni hafi fallið í grýttan jarð­veg hjá íbúum en ein­hverjir íbúar halda því fram að sorp hafi ekki verið sótt heim til þeirra síðan í októ­ber.

Gert til þess að spara

„Èg legg til að a) við borgum ekki fyrir sorp­hirðu b) allir íbúar rukki sveita­fé­lagið fyrir tím­ana sem við eyðum í sorp­hirðu sem sveit­ar­fé­lagið ætti að sinna en sinnir sann­ar­lega ekki. Þá er lík­lega „sparn­að­ur­inn“ sem fæst með að taka lægsta til­boði í útboði far­inn út um glugg­ann,“ segir Rannveig Þór­halls­dóttir í athuga­semd­ar­kerfi Múla­þings á Facebook.

„Á virki­lega ekki að taka bland­aðan úrgang fyrr en 23. jan­úar á Seyð­is­firði? Eftir jól og ára­mót? Þetta er nátt­úru­lega til skammar fyrir sveita­fé­lagið, að þið skulið ekki gera meiri kröfur á þetta bless­aða fyr­ir­tæki sem er tekið við. Hrikaleg aft­ur­för í þjón­ustu,“ skrifar hún Urður Arna Ómars­dóttir um málið.

Greini­legt er að mikil óánægja er með þjón­ust­una og telja sumir íbúar að sveit­ar­fé­lagið hafi ákveðið að spara pen­ing með því að taka lægsta til­boði þegar verkið var boðið út. Það sé nú byrjað að bíta íbúa í rass­inn. Þá gera nokkrir íbúar kröfu á að fá sorp­hirðu­gjöld 2024 end­ur­greitt í ljós þess að þeir fengu litla sem enga þjón­ustu, að þeirra mati.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Landið

Landið

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Tuttugu ár eru liðin frá því að vatni úr fossaröðinni í Fljótsdal var veitt inn í Hálslón
Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Landið

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Landið

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu