Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Samviskulaus leigubílstjóri sveik Dagnýju eftir bílslys: „Ég hef lagt fram kæru hjá lögreglunni“

Dagný Haf­steins­dóttir var heldur betur svekkt með leigu­bíl­stjóra sem ók í veg fyrir hana árið 1997 en DV fjall­aði um málið á sínum tíma.

Forsaga máls­ins var að Dagný var aka bíl sínum á Vatns­enda­vegi við BSÍ þegar leigu­bíl­stjóri ók í veg fyrir hana. Dagný slapp sem betur fer ómeidd og sömu sögu er að segja um vin­konu Dagnýjar sem var með henni í bílnum. Samkvæmt frétt DV skemmd­ist bíll Dagnýjar tölu­vert en fram­bretti og annað fram­ljósið brotn­uðu og ýmsar aðrar skemmdir urðu á bílnum.

„Ég ætl­aði að kalla á lög­reglu en hún sagði mér að hafa engar áhyggjur því hún mundi bara borga tjónið. Hún skrif­aði nafn og síma­númer og sagði mér að hafa sam­band við sig heim en ekki á bíla­stöð­ina því hún væri í fríi næstu daga. Ég og vin­kona mín vorum í vafa hvað við ættum að gera en þar sem við erum óvanar svona aðstæðum þá ákváðum við að treysta kon­unni, sér­stak­lega af því hún var leigu­bíl­stjóri. Síðan kom í ljós að þetta síma­númer er ekki til og hún laug til nafns. Það er aðeins ein önnur kona í þjóð­skrá með þessu nafni og ég hef gengið úr skugga um að það er ekki hún. Mér finnst það aga­legt að leigu­bíl­stjóri skuli gera svona. Þetta var stein­grár bíll með venju­legu gulu taxa­merki á þak­inu,“ sagði Dagný sem sat uppi með tjónið en ætl­aði að reyna finna bíl­stjór­ann.

„Það voru vitni að þessu atviki. Það var par aftur í leigu­bílnum og svo voru tveir strákar þarna á silf­ur­grárri Toyota Corolla. Ég vona að þetta fólk gefi sig fram og hjálpi mér í þessu máli. Ég læt svona atvik mér að kenn­ingu verða og ljóst að það er engum að treysta,“ sagði hún við DV en blaðið kom svo með fram­halds­frétt dag­inn eftir þar sem greint var frá því að bíl­stjór­inn hafi fund­ist.

Hvetur fólk til að treysta ekki öðru fólki

„For­svars­menn leigu­bíla­stöðv­ar­innar voru okkur afskap­lega hjálp­legir og vildu gera allt til að finna bíl­inn og öku­mann­inn. Við fórum yfir möppu með öllum leigu­bíl­stjórum og bílum. Eftir tölu­verða leit bar ég kennsl á bíl­inn. Við fórum og skoð­uðum hann og það var beygla aftan á honum sem pass­aði alveg við árekst­ur­inn. Síðan fundum við út hver konan er þannig að búið er að finna söku­dólg­inn. Ég hef lagt fram kæru hjá lög­regl­unni vegna þessa máls. Mér finnst þetta afskap­lega óheið­ar­legt hjá kon­unni aö ljúga svona til nafns og síma­núm­ers eftir að hafa valdið þessu tjóni. Ég var voða­lega græn að láta hana plata mig svona og ég vil beina þeim til­mælum til fólks að það passi sig ef það lendir í því sama og ég lenti í. Það borgar sig greini­lega ekki að treysta náung­anum of vel,“ en sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem DV hafði konan sem ók leigu­bílnum unnið sem slíkur í 28 daga þegar atvikið átti sér stað en hún hafði afleys­ingum fyrir annan bíl­stjóra.

Samkvæmt hinni ónefndu leigu­bíla­stöð var kon­unni meinað að starfa fyrir stöð­ina eftir þetta atvik.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni