Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Ef allir MH-ingar hefðu verið jafn hugrakkir og þið væri Elísabet Segler enn á lífi“

Brynhildur Karlsdóttir.
Bryn­hildur Karls­dóttir. Mynd: Guðrún Ósk Guðjónsdóttir

Klukkan ellefu í dag yfirgáfu framhalds­skóla­nemendur víðs vegar um landið skóla­stofur sínar, og talið er um það þúsund þeirra hafi safnast saman á skólalóð Mennta­skólans við Hamrahlíð.

Þar mótmæltu nemendur viðbragðs­leysi skóla­stjórnenda MH í kynferðis­brotamálum innan veggja framhalds­skólanna.

Nú hefur menntamála­ráðherra beðist afsökunar á því að ekki hafi hingað til verið hlustað á óánægju­raddir nemenda, en þetta og meira kemur fram í grein Vísis.

Mótmælin voru skipulögð í gær og er alveg óhætt að segja að framhalds­skólanemar um allt Ísland hafi brugðist afar vel við kallinu; flestir söfnuðust saman við MH – bæði nemendur skólans sem og annarra framhalds­skóla á höfuð­borgar­svæðinu.

Þá mótmælti töluverður fjöldi á Laugar­vatni; einnig á Akureyri.

Fyrr­verandi nemandi við MH, Brynhildur Karls­dóttir, flutti ræðu í dag fyrir framan skólann og gríðar­legan fjölda nemenda.

Hún sagði meðal annars:

„Það var einu sinni karl sem var starfs­maður hjá fyrirtæki niðri í bæ. Einn daginn stal hann prentara fyrir­tækisins og tók hann með sér heim. Meintur prentara­þjófur er rekinn úr vinnunni strax daginn eftir. Héraðs­dómari er aldrei spurður álits,“ sagði Brynhildur, sem nefndi fleiri dæmi um refsiverða háttsemi þar sem ekki þyrfti dómsmál til að afleiðingar yrðu af því:

„Ekkert þessara mála er næstum því eins alvarlegt og nauðgun og allt of lengi hafa þolendur kynferðis­ofbeldis þurft að bera sárs­aukann í hljóði, en nú breytum við því.“

Brynhildur kvaðst vita vel hvað nemendur í MH í dag væru að upplifa, og minntist Elísabetar Segler Guðbjarts­dóttur, sem var nemandi við MH og tók sitt eigið líf vegna kynferðis­brots sem hún varð fyrir:

„Ég trúi því að ef allir MH-ingar hefðu alla tíð verið jafn hugrakkir og þið, þá væri Elísabet Segler Guðbjarts­dóttir enn á lífi. Blessuð sé minning hennar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning