Grindvíkingurinn og samfélagsrýnirinn, Björn Birgisson, sendi Kristrúnu Frostadóttur, alþingiskonu og formannsframbjóðanda í Samfylkingunni, nýverið bréf, þar sem hann lagði fyrir hana einfalda spurningu.

Flest bendir til þess að Kristrún verði næsti formaður Samfylkingarinnar, en formenn þeirra flokka sem sitja ekki í ríkisstjórn fá nokkuð veglega greiðslu ofan á laun sín; spurði Björn Kristrúnu hvort hún myndi þiggja þessi laun:
Hann birtir svo færslu á Facebook-síðu sinni:
„Kristrún hefur svarað,“ og bætir við að hann hafi sent spurninguna fyrir nokkrum dögum; ítrekað hana í tvígang, áður en svar barst:
Spurning Bjarnar var svohljóðandi:
„Munt þú þiggja þessi rúmlega 673 þúsund á mánuði sem formenn flokka – án ráðherradóms – fá frá ríkinu?“
Síðan birtir hann svarið frá Kristrúnu:
„Já, verði ég kosin formaður mun ég þiggja þessi formannslaun.“
Björn er ekki vera sáttur við svar Kristrúnar:
„Þá liggur það fyrir. „Mútur Davíðs“ hef ég stundum kallað þessa aukasporslu til formanna sem ekki eru ráðherrar og ég tel hana með öllu siðlausa og sérlega taktlausan átroðning á skattfé almennings. Ég mun ekki styðja flokk sem lýtur formennsku einhvers sem hefur geð í sér til að þiggja aukalega rúmlega 8 milljónir á ári úr ríkissjóði án nokkurs vinnuframlags á móti eða kröfu um slíkt framlag. Það þarf ekkert að ræða það frekar, en mun alltaf líta á mig sem jafnaðarmann að upplagi. Margir eiga sína pólitísku sýn án þess að eiga aðild að stjórnmálaflokki.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir