Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Björn Leví: „Píratar eru ekki alþýðuflokkur“

Björn Leví Gunnarsson þingmaður
Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður

Ef marka má umræðu á samfélags­miðlum þá virðast Píratar vera helstu andstæðingar verkalýðs­hreyfingarinnar, í það minnsta kvarta þeir sárast undan Sólveigu Önnu Jóns­dóttir, formanni Eflingar, Vilhjálmi Birgis­syni, formanni Starfs­greina­sambandsins, og Ragnari Þór Ingólfs­syni, formanni VR. Þetta hefur komið sumum á óvart enda flokkurinn talinn hallast til vinstri í huga margra.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður flokksins, tekur af allan vafa um þetta í athugasemd við færslu Jæja. Sú færsla fjallar einmitt um orð Helga Hrafns Gunnarsson, fyrr­verandi þingmanns, sem lýsir sig yfir sem andstæðing verkalýðs­hreyfingarinnar. Björn svarar athugasemd Guðnýjar Bjarkar Ármanns­dóttur en hún segir að Píratar hafi aldrei staðið með verka­fólki.

Hún skrifar: „Píratar eru ekki og voru aldrei alþýðu­flokkur. Þeir slá í og úr með fyrir hvað þeir standa til þess að hala inn atvæðum úr sem flestum áttum. Þeir voru alltaf með hroka gagnvart kjara­baráttu verka­lýðsins. En mjög hrifnir af baráttu BHM og hjúkrunar­fræðinga. Því hún er við ríkið þannig að hún gefur þeim tækifæri til þess að dansa í alþingis­pontunni og komast kannski í sjón­varpið.“

Björn svarar, maldar nokkuð í móinn en jánkar þó. „Píratar eru borgara­réttinda­flokkur. Mjög mikið af þeim borgara­réttindum hafa fengist í gegnum verkalýðs­baráttu. Við lögðum fram frumvarp um styttingu vinnuviku, sem var eitt af aðal baráttu­málunum í síðustu lotu kjara­samninga. Píratar eru lika lýðræðis­flokkur, með áherslu á beint lýðræði. Verkalýðs­baráttan hefur verið lýðræðis­barátta í gegnum árhundruðin,“ segir Björn.

Hann segir að Píratar séu engir jafnaðar­menn. „Píratar eru hins vegar ekki sósíal­istar. Við viðurkennum að eignar­rétturinn er til, við segjum bara að hann sé ekki til alls staðar (og erum þannig ekki kapítal­istar heldur). Þannig að það fer eftir því hvað þú meinar með alþýðu­flokkur, ef þú verður ekki alþýðu­flokkur nema hafna eignar­rétti þá eru Píratar ekki alþýðu­flokkur. Annars held ég að Píratar tékki í öll önnur boxin hvað það varðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið