Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Minning: Jóhannes Björn Lúðvíksson 1949-2022

Jóhannes Björn ásamt syni sínum Róberti
Jóhannes Björn ásamt syni sínum Róberti

Jóhannes Björn Lúðvíksson rithöfundur og skák­meistari lést á heimili sínu í New York í apríl s.l. á sjötugastaogþriðja aldursári.  Eftir­lifandi eiginkona er Beth Rose bóka­útgefandi en sonur hans og Þóru Ásbjörns­dóttur er Robert kerfis­fræðingur.

Gunnar Finnsson skák­kennari, æskuvinur Jóhannesar rifjar upp tæplega sjötíu ára kynni þeirra:

Jóhannes Björn byrjaði snemma á samsæris-kenningum sínum í portinu á Laugavegi 19.  Þar messaði hann yfir okkur strákunum, Óla Sig, Sverri Agnars, Sverri Guðjóns og mér og lagði út frá fjármála­spillingu heimsins eins og hann átti eftir að gera margoft síðar á lífs­leiðinni með góðum árangri í ræðu og riti.

Í bakgarði bernsk­unnar voru leikir frá morgni til kvölds enda ekki annað að hafa.  Þá var bara ein útvarpsstöð, ekkert sjónvarp, engar tölvur, engir gemsar og ekkert kynslóðabil.  Stöku sinnum var friðurinn rofinn af radd­sterkum mæðrum sem tilkynntu matmáls – og kaffitíma

Vaðnes­hringurinn afmarkaðist af Laugavegi, Smiðju­stíg, Hverfis­götu og Klappar­stíg. Við strákarnir hlupum gjarnan hringinn og tókum tímann. Jóhannes var snemma léttur á sér og frár á fæti.  Hann setti met sem stendur enn þó illar tungur segi að hann hafi stytt sér leið í gegnum portið á 19 en það er önnur saga!

Hverfis­gata 32 var æsku­heimili Jóhannesar. Þar ólst hann upp ásamt fimm systkinum, börnum Jónínu Jóhannesdóttur húsmóður og Lúðvíks Eggerts­sonar fasteigna­sala. Þuríður, fyrrum eigandi hússins, systir séra Árna Þórarins­sonar, sigldi með syni sína Eggert og Þórarinn til tónlistar­náms í Köben snemma á fyrsta áratug síðustu aldar.  Þeir voru sennilega fyrstu Íslendingar sem fóru utan til að læra músik.

Í húsinu voru margar vistar­verur og uppi í risi leigði Jónína, móðir Jóhannesar nokkrum einstaklingum herbergi.  Meðal minnis­stæðra leigjenda var Eggert Gilfer skák­meistari og píanó­leikari, sonur Þuríðar.  Í bakhúsinu voru svo Jakob, jafnan kallaður Kobbi kleina og Lína spákona.  Kobbi var bróðir Gilfers og Þórarins fiðlu­leikara.  Hann lék þann ljóta grikk að krækja stafnum í granda­laus ungmenni og draga þau til sín.  Því má nærri geta að börnin forðuðust að mæta þessum manni sem var sann­kallaður krakka­skelfir í hverfinu. Gilfer, eða Gilli, eins og við krakkarnir kölluðum hann, var hins vegar algjört ljúfmenni.  Hann var sífellt að segja gamansögur sem börnin botnuðu ekkert í en hló sjálfur dillandi hlátri.

1963 stofnuðum við JBL Smámeistara-klúbbinn ásamt Jóni Guðmari og Gunnar Birgis.  Seinna bættust fleiri í hópinn s.s. Sigtryggur glímu­kappi, Snorri Þorvalds, Gaui Magg, Harvey Georgs, Helgi Hauks og Bragi Halldórs, hrað­skák­meistari Norður­landa, svo nokkrir séu nefndir. Við tefldum grimmt í fyrstu og fögnuðum fertugs – og fimmtugsafmælum með veglegum skákmótum.  Á næsta ári verður vafalaust haldið upp á sextugs-afmælið í minningu fallinna félaga. Jóhannes Björn var einn efnilegast skákmaður sinnar kynslóðar og tefldi á Evrópu­móti unglinga 1969 í Amsterdam (og eftir það kallaður Hollands­farinn meðal smámeistara).  Nokkrar skákir hans birtust í þýska tíma­ritinu Schach-Echo.

Eftir að Jóhannes byrjaði að tefla fyrir alvöru og Gilfer fallinn frá sögðu gárungar í Tafl­félaginu að Gilfer tefldi í gegnum Jóhannes! Einu sinni var Jóhannes að tefla á alþjóð­legu skákmóti í New York og mætti í fyrstu umferð stór­meistaranum Formanek frá Ungverja­landi.

Flestir töldu að óþekktur skákmaður frá Íslandi yrði auðveld bráð fyrir stór-meistarann.  Það fór þó á annan veg því Jóhannes rúllaði meistaranum upp í 12 leikjum á gambít í franskri vörn! Þegar einvígi Fischers og Spasskís 1972 var að ljúka heim­sóttum við JBL Hollendinginn dr. Max Euwe forseta FIDE og heims­meistara 1935 á Hótel Esju. Þessi víðfrægi maður var einstakt ljúfmenni og höfðingi heim að sækja.  Hann bauð okkur upp á þjóðar­drykkinn sjenever úr leirbrúsa og yfir­dómari einvígisins Lothar Schmid slóst í hópinn. Þetta var ógleymanleg stund með minnis­stæðum manni.  Í kveðju­skyni áritaði Euwe nokkrar frum­samdar skákbækur sem JBL hafði meðferðis.

Jóhannesi Birni var margt til lista lagt.  Hann var m.a. dans­stjóri í forföllum í Alþýðuhús­kjallaranum við lítinn fögnuð söngvarans því þegar Jóhannes tilkynnti að næst yrði dansaður svellandi polki var hljóm­sveitin að spila hægan vals!

Jóhannes var snjall penni og skrifaði léttan og lipran stíl eins og bækur hans “Falið vald” og fleiri bera með sér.  Eldskírnina fékk hann þó á Mánudags­blaðinu hjá Agnari Bogasyni.  Þar var hann lausa­penni um skeið eftir að búið var að reka mig af blaðinu!  Jóhannes reit margar eftir­minnilegar greinar í blaðið og tamdi sér hvassan stíl Agnars sem skrifaði gjarnan þegar hrikti rækilega í þjóð­félaginu; “fólk er orðið lang­þreytt á ástandinu!”

1974 stofnuðum við Jóhannes viku­blaðið Hrað­tíðindi, HT sem við héldum að mundi valda straum­hvörfum í íslenskri blaða­mennsku.  Svo varð þó ekki þrátt fyrir að ýmislegt væri þar bitastætt.  Meðal annars bráð­skemmtileg grein JBL þar sem hann færir sterk rök fyrir því að nýr Gamli sáttmáli milli Íslands og Noregs væri í burðar­liðnum!  Þetta var því miður eina tölublað HT og kannski var það nóg – nýja­brumið var horfið.

Jóhannes var afar frjór í hugsun og hugmynda­ríkur.  Hann átti ýmis nýyrði eins og þegar hann kallaði presta­stéttina atvinnu­góðmenni og lögguna embættið. “Við þessir miklu menn” voru ávarpsorð okkar félaganna, sögð af meðfæddu lítillæti, kannski til að hefja sig hátt yfir pöpulinn “hinn hráa massa” að okkur fannst.

Hermann flösku­sali var áberandi persóna í miðbænum á sinni tíð.  Hann var ráðdeildar­samur í meira lagi … og lifði spart.  Einu  sinni lögðum við Jóhannes gildru fyrir hann. Við sáum hann koma vestur Hverfis­götu og Jóhannes ákvað í sama mund og karlinn fór framhjá 32 að láta 50 króna járnhlunk detta við fætur sér.  Það skipti engum togum að Hemmi beygir sig niður eftir spesíunni en Jóhannes verður fyrri til og nær henni. Þeir fara að deila og á því andartaki kem ég aðvífandi og blanda mér í málið.  Hemmi segist hafa slætt niður peningi sem Jóhannes þykist eiga.  Jóhannes fullyrðir að hann eigi peninginn sem hann hafi misst á gangstéttina.  Þeir karpa um þetta dágóða stund en að lokum segir karlinn: “En ég heyrði hann klyngja!” Síðan bætti hann við og beindi máli sínu til mín og benti á Jóhannes með þykkju:  “Þetta er svo mikill nýjari!”

Við brölluðum margt í gegnum tíðina; tefldum, ortum og skáluðum. Við sömdum gaman­þætti og lékum inn á segulband og leyfðum gestum og gangandi að hlýða á. Kiljan, Þórbergur, Tómas, Davíð og Steinn voru okkar menn í skáld­skapnum. 

Jóhannes Björn var mikill fagurkeri og kunni vel að meta lífsins lystisemdir í mat og drykk.  Hann rak áróður fyrir heil­brigðum lífsstíl þegar kom að mataræði en stóðst sjaldan óhollustu á borð við sætindi af ýmsu tagi!  JBL kunni að lifa lífinu minnugur orða Lúthers: “Sá óð ei elskar, vín né víf / hann verður glópur allt sitt líf.” (þýð. séra Guðm. Sveinsson). Það er svo sannarlega sjónar­sviptir af vini mínum Jóhannesi Birni.  Hann var einstakur.

Gunnar Finnsson

Minningar­grein þessi birtist í nýjasta tölublaði Mannlífs sem nálgast má í Bónus og Hagkaup fríkeypis. Þá má einnig lesa blaðið í rafrænni útgáfu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis