Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sanna berst fyrir leigjendur: „Lítið sem ekkert regluverk utan um réttindi leigjenda hér á landi“

Sanna Magdalena borgarfulltrúi sósíalista.
Sanna Magda­lena borg­ar­full­trúi sós­í­alista.

Borgar­fulltrúinn og baráttu­konan Sanna Magdalena Mörtu­dóttir ritar áhuga­verða grein er ber yfir­skriftina: Stöðvum okrið á leigj­endum.

„Leigjendur á Íslandi búa við mjög erfiða stöðu. Á síðustu árum hefur leiga farið hækkandi og var há fyrir. Þegar stærstur hluti heildar­ráðstöfunar­tekna þinna fer í húsnæðið, þá getur þú ekki leyft þér ýmislegt sem samfélagið hefur upp á að bjóða,“ segir hún og bætir við:

„Það er skortur á húsnæði, mörg eru í samkeppni um sömu íbúðina og mikið óöryggi fylgir því að vera á leigu­markaði. Það þarf að reiða fram tryggingu, sem er erfitt ef þú átt ekki kost á að gera slíkt í gegnum banka og þarft þá að leita á náðir fyrir­tækja sem græða á þér í ferlinu.“

Hún bætir við að „leigjendur þurfa að skila inn saka­vottorði þegar sótt er um leiguíbúð og þú þarft í rauninni að berskjalda þig gjör­samlega, bæði hver þú ert sem persóna og hvernig fjár­hagurinn þinn lítur út. Ef þú hefur einhverntíman átt í vanskilum, þá er það skuggi sem fylgir þér lengi og hefur neikvæð áhrif á stöðu þína til að útvega tryggingarfé og til að útvega leigu­húsnæði. Leigan getur hækkað fyrirvara­laust, án útskýringa, bara geðþótta­ákvörðun leigusala sem hefur engum skyldum að gegna gagnvart þér og þinni stöðu. Þú getur misst íbúðina skyndi­lega og misjafnt er hversu vel er tekið í beiðni þína um viðgerðir og viðhald.“

Sanna færir í tal að „það er lítið sem ekkert regluverk utan um réttindi leigjenda hér á landi og þeim er gert að bjarga sér á óvin­veittum einka­markaði. Stjórn­völd og samfélagið í heild sinni hafa lengi staðið með séreigna­stefnunni og litið svo á að það sé hark að útvega sér húsnæði en á endanum hljóti allir að redda sér. Það eru smávægileg úrræði til fyrir leigjendur en ekki allir sem fá stuðning þar og leigjendur búa oftar en ekki við þá stöðu að valið er tekið af þeim, valið um hvar þau vilja búa og hvernig þau vilja búa.“

Hún bendir á þá erfiðu og vondu staðreynd að „leigjendur þurfa oft að flytja á milli skóla­hverfa með börnin sín, því þau grípa auðvitað það sem er í boði þegar leigu­samningur rennur út eða er breytt fyrirvara­laust, t.a.m. með skyndilegri hækkun á leigu­fjárhæð,“ og nefnir einnig að „kröfur leigjenda­samtaka víðsvegar um heim, sem og hér á landi eru þær að viðmiðunar­verð fyrir leigu verði sett, þ.e.a.s. hversu hátt leiguverð á að vera fyrir íbúðir með tilliti til þátta eins og stærðar, stað­setningar, gæða og herbergja­fjölda.

Kröfurnar snúa að leiguþaki og leigu­bremsu; að settar verði hömlur á það hversu mikið leigan má hækka. Leiguþak vísar til þess að hámarks­leigu­verð er gefið út á húsnæði miðað við stærð, gæði og stað­setningu og má leigan þá ekki fara yfir þá upphæð sem mörkin eru sett við. Leigu­bremsa vísar til þess að það eru ákveðin viðmið um það hversu mikið leiga má hækka yfir ákveðið tímabil.“

Þá segir Sanna að „takmarkanir á hækkun húsnæðis­leigu eru víða við lýði með ýmsum útfærslum. Má þar til að mynda líta til Danmörku, Sviss, Vínar­borgar, Parísar og Kaliforníu. Barátt­unni lýkur aldrei, en við höfum einnig dæmi um takmörkun á hækkanir leigu sem hafa náð fram að ganga en hefur svo verið snúið við, eins og í Katalóníu og Berlín.“

Einnig að „þegar litið er hingað heim hafa Samtök leigjenda hafa barist fyrir leiguþaki og leigu­bremsu. Í kjölfar lífs­kjara­samninganna voru kynntar aðgerðir sem miðuðu að því að bæta stöðu leigjenda. Aðgerðirnar voru eftir­farandi:

„Ákvæði húsa­leigulaga verði endur­skoðuð til að bæta réttar­stöðu leigjenda, meðal annars hvað varðar vernd leigjenda þegar kemur að hækkun leigu­fjárhæðar og bættri réttar­stöðu leigjenda við lok leigu­samnings.“

Ekki hefur verið staðið við þessi fyrirheit,“ segir Sanna og bætir við:

„Sósíal­istar í borginni lögðu til í ljósi alls þessa að borgar­stjórn samþykki að skora á ríkið að koma á leiguþaki og leigu­bremsu. Yfir­gnæfandi meirihluti lands­manna vill að tekið verði upp þak á húsaleigu­verð og einnig að leigu­bremsa verði sett á.

71% aðspurðra í nýlegri skoðana­könnun Maskínu voru mjög eða frekar hlynnt því að leiguþak yrði sett á húsaleigu hér á landi. 72% aðspurðra voru mjög eða frekar hlynnt því að leigu­bremsa yrði tekin upp. Leiga hefur hækkað upp úr öllu valdi og leigjendur oft fastir á milli lágra tekna og okurleigu. Mikilvægt er að mæta þörfum leigjenda sem eru í erfiðri stöðu. Stöðug­leiki í lífi leigjenda Leiguþak virkar til að bæta aðstöðumun á milli leigusala og leigjenda, að jafna aðeins valda­hlutfallið þar á milli.“

Sanna segir að mikið hafi verið talað um að leiguþak virki ekki:

„En hér þurfum við að stalda við og spyrja okkur, út frá hvaða viðmiðum er verið að mæla? Erum við að mæla út frá kröfum þeirra sem leitast við að hagnast á húsnæðis­markaði og eru með gróðavon? Eða erum við að skoða og mæla árangurinn út frá vellíðan og jákvæðum áhrifum á leigjendur? Þegar við gerum hið síðarnefnda, þá sjáum við að takmarkanir á hækkun húsaleigu eru leigjendum til góða því það býður upp á fyrirsjáanleika, að fjöl­skyldur geti búið til langtíma í leigu­húsnæði sínu með tilheyrandi öryggi fyrir fjöl­skylduna í heild. Þannig geta börn átt samfellt nám í sama skóla og fylgt sínum vinum, fyrirsjáanleiki á leigu­verði og öryggi leiðir til færri flutninga. Slíkur stöðug­leiki er góður og nauðsyn­legur fyrir leigjendur, þetta er gott fyrir nærsamfélagið og skapar stöðug­leika í hverfunum. Leigu­bremsur og leiguþök virka til að vernda leigjendur.“

Að mati Sönnu er „nauðsynlegt að standa vörð um rétt leigjenda og setja hömlur á það hversu mikið megi hagnast á leigjendum. Á sama tíma þarf að berjast fyrir félagslegri húsnæðis­uppbyggingu, þar sem hagnaðar­sjónarmið eru fjarlægð úr jöfnunni.

Leiguþak og leigu­bremsu má útfæra með ýmsum leiðum. Slíkt þýðir að tekið er tillit til ýmissa sjónar­miða en grunnurinnn snýst um að tryggja fyrirsjáanleika og öryggi fyrir leigjendur. Þau sem eru á móti leiguþaki tala um að það trufli markaðinn. En há leiga truflar leigjendur og gerir mun meira en að trufla, há leiga heggur stórt skarð í lífsgæði leigjenda, hefur áhrif á hversdag­leika þúsunda og skerðir möguleika barna þeirra til viðunandi lífs.“

Að lokum bendir Sanna á að „sósíal­istar í borgar­stjórn, lögðu því til að skorað yrði á ríkið að koma á leiguþaki og leigu­bremsu. Það er miður að borgar­stjórn sjái sér ekki fært að senda frá sér áskorun um að þörf sé að setja hömlur á það hversu mikið leigan má hækka. Vitað er að staða leigjenda er oft mjög erfið og mikið óöryggi fylgir því að vera á leigu­markaði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning