Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Bálsýnir – Ný smáskífa með rapp dúettinum Eldmóðir væntanleg á fimmtudag

Holy, Thrilla og Dr. Vigdís
Holy, Thrilla og Dr. Vigdís

Rapp dúettinn Eldmóðir gefur út sína fyrstu plötu á Spotify, 25. maí næst­komandi.

Smáskífan sem ber nafnið Bálsýnir inni­heldur fimm lög og tekur hlustandann um víðan völl. Samkvæmt frétta­tilkynningu frá dúettinum gefur til að mynda lagið Há ljós, lág ljós bassa­mikla slökun sem tilvalin er fyrir sunnudags­rúntinn, Sáratugur aftur á móti er trommu­þungt og uppfullt af angur­værri sjálfs­vorkunn. Síðar upplifir hlustandi orku­miklar og ógnvekjandi elektró­nískar galdra­særingar í laginu Hermd‘ eftir mér þar sem Dr. Vigdís Vala kemur inn sem gestur með myrkri galdra­þulu á hápunkti plötunnar.

Móðir af eldmóð

Eldmóðir er skipuð Óla Hrafni Jónassyni; Holy Hrafn, og Þráni Gunnlaugi Þorsteins­syni: Thrilla GTHO.  Tónlistar­áhugi þeirra sameinaði þá á framhalds­skólaárunum og hafa þeir unnið margt samhliða síðan. Í gegnum tíðina hafa þeir báðir unnið tónlist undir hinum ýmsu merkjum og tónlista­geirum. Thrilla GTHO, áður kallaður Brisk, hefur komið fram á hinum ýmsu rapp plötum frá árinu 2006.  Holy Hrafn hefur verið öflugur síðastliðin áratug og er óhræddur við að tileinka sér ólíkar stefnur og strauma í tónlistar­sköpun, nýjasta efnið hans, Super Shady: Fjólu­blátt Flauel er funkskotin smáskífa og af henni rötuðu tvö lög á vinsældar­lista Rásar 2.

Að sögn þeirra einkennir sjálfbærni vinnu­brögð dúettsins, Óli Hrafn sá alfarið um taktsmíði og upptökur á plötunni en Þráinn hannaði plötu­umslagið. Þeir sækja sér innblástur fyrir stíl sinn í samvinnu­formi bandarískra rapps­veita á borð við Run the Jewels og Methodman & Redman, sem kemur meðal annars fram í því hvernig þeir halda hlustendum á tánum með því að grípa orðið af hvor öðrum jafnt og þétt í gegnum hvert lag.

Platan Bálsýnir er fyrsta verk sveitarinnar en Eldmóðir eru þó með mörg járn í eldinum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt