Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Gríðarlegar skemmdir af völdum jarðskjálftanna: „Börn og fullorðnir grátandi af hræðslu“

Úr eldhúsinu í húsi Sveinbjarnar á Hellu. Mynd/skjáskot frá tímarit.is
Úr eld­hús­inu í húsi Svein­bjarnar á Hellu. Mynd/skjá­skot frá tíma­rit.is

Jarð­skjálfti að stærð 6,5 reið yfir Suðurland á þjóð­hátíðardegi Íslands árið 2000. Skjálftinn átti upptök sín 9 kílómetra suður af Árnesi. Skjálftinn og afleiðingar hans er mörgum Íslendingum minnis­stæður enda fór hann ekki framhjá neinum sem voru staddir á suðvestur­hluta landsins.

Á vefsíðu Veður­stofu Íslands birtist eftir­farandi tilkynning:

„Jarð­skjálfti Í Holtum

Í gær kl. 15:41 varð jarð­skjálfti í Holtum, 9 km suður af Árnesi. Hann var 6,5 að stærð. Annar skjálfti varð kl. 15:42, 5,3 að stærð, 8,5 km austur af Þjórs­árbrú.“

Annar skjálfti að stærð 6,6 skók landið fjórum dögum síðar eða 21. júní 2000. Sá átti upptök á 10 kílómetra dýpi við Hestfjall.“

Skemmdir af völdum skjálftanna voru gríðarlegar þá sérstak­lega á húsum á Hellu, í Hverargerði og í sveitum Suður­lands. Innviðir eins og vegakerfi og hitaveita skemmdust. Malbik flettist af vegum og djúpar sprungur mynduðust með tilheyrandi raski á samgöngur. „Mikið tjón varð í jarð­skjálftanum, einkum á Hellu og í Holtum og Landsveit. Á milli 60 og 70 íbúar eru heimilis­lausir, en enn fleiri yfirgáfu heimili sín um helgina af ótta við annan skjálfta,“ segir í forsíðu­frétt Morgun­blaðsins 20. júní.

Í frétt DV frá 19. júní 2000 segir: „Rúmlega 30 hús á Hellu og nágrenni skemmdust eða eyði­lögðust og á annað hundrað milljóna króna tjón varð í gler­verksmiðju á Hellu en starfs­maður þar slapp naumlega frá gler­farginu með því að stökkva upp á borð. Þá lokaðist fyrir heitt vatn á Hellu og Hvols­velli þegar leiðslur fóru í sundur á nokkrum stöðum og enn var vatns­laust á Hvols­velli í gærkvöld.“

Svein­björn Jónsson við tröppur hús síns á Hellu. Mynd/skjá­skot frá tíma­rit.is

Í viðtali DV við Svein­björn Jónsson húseiganda í Hellu segir hann: „Ég hef í raun ekki enn þá áttað mig á þessu. Maður er enn í töluverðu uppnámi og líklega töluvert í það að ég nái
áttum,“ sagði Sveinbjöm þar sem hann stóð á stór­skemmdum tröppum húss síns.

Í sama tölublaði DV er rætt við Heiðrúnu Ólafs­dóttur húseiganda á Hellu: „ Fyrst kom högg, síðan smá bið síðan kom skjálftinn. Þá fór fólk að reyna að komast út, ég datt úti. Fólk varð allt mjög skelkað, börn og full­orðnir grátandi af hræðslu,“ sagði Heiðrún. Hús Heiðrúnar er eitt það verst farna eftir skjálftann á Hellu. Hvar ætlar hún að halda til næstu nætur? Alla vega ekki hér, það verður ekki sofið í þessu húsi framar – aldrei – það er ónýtt. Við sofum í tjald­vagni í nótt og fyrir utan tjald­vagninn er maður ekkert annað en heimilis­laus eftir þetta,“ sagði Heiðrún Ólafs­dóttir.“

Mynd/skjá­skot tíma­rit.is

Eitthvað var um minni­háttar slys á fólki sem rekja mátti til átroðnings eða óhappa við flótta undan skjálftanum.

Hér að neðan má sjá frekari myndir af tjónum sem skjálftarnir ollu:

Bóka­safnið á Hvols­velli. Tjón af völdum seinni skjálft­ans. Mynd/skjá­skot frá tíma­rit.is
Tjón af völdum seinni skjálft­ans. Mynd/skjá­skot frá tíma­rit.is
Tjón af völdum seinni skjálft­ans. Mynd/skjá­skot frá tíma­rit.is
Tjón af völdum seinni skjálft­ans. Mynd/skjá­skot frá tíma­rit.is
Úr eld­hús­inu í húsi Svein­bjarnar á Hellu. Tjón af völdum fyrri skjálft­ans. Mynd/skjá­skot frá tíma­rit.is
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið