Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Maður skotinn eftir partí á Kársnesi

Einn hefur verið hand­tekinn vegna málsins

Lögregla handtók mann og flutti annan á slysa­deild eftir meinta skotárás á Kársnes um og eftir hádegi í dag.

Agnes Eide Kristínar­dóttir, yfir­lögreglu­þjónn á rannsóknar­sviði lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu, stað­festir við RÚV að grunur sé um að annar mannanna hafi skotið hinn í höndina.

Hún segir að skotvopn hafi fundist á vettvangi, þó ekki hafi enn verið staðfest hvort það sé vopnið sem notað var í árásinni. Málið er nú til rann­sóknar hjá lögreglu.

Íbúar í hverfinu segjast hafa heyrt skothvell fyrr um daginn. Einn þeirra sagði að sér hefði ekki dottið í hug að um skothvell væri að ræða fyrr en lögregla mætti á staðinn.

Annar nágranni sagði að mikið partíhald hefði verið í húsinu um nóttina þar sem handtakan fór síðar fram. Hann sagðist hafa heyrt hróp um hjálp og síðan hvell, en ekki áttað sig á því fyrr en lögreglan mætti að líklega hefði verið um skot að ræða.

Þriðji viðmælandi frétta­stofu RÚV sagðist einnig hafa heyrt hvellinn.

Samkvæmt heimildum var blóð sjáanlegt á hurð að stiga­gangi hússins.

Fyrr í dag greindi Vísir frá því að blóðugur maður hefði komið inn í bakaríið Brikk við Hafnar­braut og sagt starfs­fólki að hann hefði verið skotinn í höndina. Hann var með handklæði vafið utan um höndina.

Lögregla sendi fjölmennt lið á vettvang, þar á meðal að minnsta kosti fjóra lögreglu­bíla og þrjá bíla frá Sérsveit ríkis­lögreglu­stjóra, sem yfirleitt er kölluð út þegar grunur leikur á um vopnaburð.

Maður var leiddur út úr húsinu í hand­járnum og sást lögregla leita í görðum í nágrenninu. Þá var svæði við einn stigagang afmarkað með lögreglu­borða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra