Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Drífa Snædal: „Ætli ég hafi ekki verið að undirrita dauðayfirlýsingu mína“

Drífa Snædal
Drífa Snædal

„Það var svo sem ekkert ákveðið sem gerðist,“ segir Drífa Snædal í viðtali við Reyni Traustason en hún tilkynnti í dag afsögn sína sem forseti ASÍ. „Ég er búin að vera að velta því fyrir mér síðustu mánuði hvort ég væri tilbúin til að gefa kost á mér aftur og ég svo sem hugsaði það þegar ég bauð mig fram á sínum tíma; ég hugsaði þetta til fjögurra til sex ára svona með sjálfri mér án þess að gefa það út. Svo hugsaði ég hvort ég ætti að bjóða mig fram aftur og það var alls ekkert víst að ég næði kjöri en ég hefði þurft að vera tilbúin til að ná kjöri og vinna áfram í tvö ár ef ég biði mig fram aftur. Og ég var bara ekki tilbúin til þess. Þetta er búið að vera erfitt og flókið og dregið úr mér svolítið kraft og mátt. Og þá hugsaði ég og ég get lýst því yfir núna að ég ætli ekki að bjóða mig fram og þá er ég einhvern veginn umboðs­laus og hringl­andi í tvo mánuði fram að þingi. Og það var heldur ekki einhver staða sem mig langaði að vera í. Þannig að mér fannst hreinlegast að segja af mér.“

Er þetta ekki sársauka­full ákvörðun?

„Ekki þegar búið er að taka hana. Það sem er sársauka­fullt í þessu er að mér finnst ég að einhverju leyti vera að bregðast stuðnings­mönnum mínum. Og það er sárt. Af því að það er mjög mikið af fólki sem ég átti í mjög góðu samstarfi við og mér þykir vænt um og vinátta hefur myndast í þessum störfum.“

Ekki samherji Gylfa

Þetta eru stór tíðindi. Það er ólga. Það er væntanlega Sólveig Anna, Ragnar og Vilhálmur á móti rest.

„Það er nú ekki alltaf kýrskýrt og það sem var alltaf verið að reyna að fanga var einhver málefna­legur ágrein­ingur. Hann liggur ekki alveg ljóst fyrir. Ég hef lýst þessu sem valda­bandalagi umfram annað og hafa verið að skýrast þær línur. Ég hef svo sem ekki skilgreint mig með einhverri blokk umfra aðra. Mitt viðhorf var þannig þegar ég bauð mig fram fyrir fjórum árum síðan að ég sóttist ekki eftir stuðningi frá neinum. Ég hef reynt að koma í veg fyrir að vera hluti af einhverjum blokkum einhvers staðar.“

Sólveig Anna eða Ragnar sagði að þú værir hluti af einhverjum valda­kjarna Gylfa, fyrr­verandi forseta.

Ég held að fólk hafi alveg orðið vart við það að það kom nýr tónn með mér inn í for­ystu ASÍ.

„Mér finnst það alveg ótrúlega langsótt. Ég held að fólk hafi alveg orðið vart við það að það kom nýr tónn með mér inn í forystu ASÍ. Ég var ekki samherji Gylfa á neinn hátt. Þannig að mér fannst þetta frekar langsótt skýring.“

Þessi valda­blokk; þetta er einhver blokk, Vilhjálmur, Ragnar og Sólveig. Hversu mikið afl hafa þau á þingi ASÍ?

„Það er ekkert alveg ljóst. Það eru margir fulltrúar sem eru á þinginu fyrir Eflingu og VR. Þeir eru ekkert endilega að greiða atkvæði samkvæmt einhverri harðlínu. Fólk er með sitt eigið atkvæði inni á þingunum.“

Þú kannski metur það sem svo að það myndi ekkert lagast þó þú héldir áfram; það væri ennþá klofningur?

„Ef ég biði mig fram þá yrði ég að vera tilbúin til að halda áfram og samskiptin hafa verið þannig að ég ákvað að gera það ekki. Ég er nátt­úrlega búin að vera að reyna ýmislegt; fjölga fundum og fækka þeim, fá utan­aðkomandi aðstoð og hitt og þetta,“ segir Drífa en með utaðkomandi aðstoð á hún við sérfræðing í samskiptum. Upp á að laga þau.

Þú talar svolítið um samskipti í yfir­lýsingunni. Í hverju felst „ekki boðleg samskipti“? Er þetta orðið svona illvígt og persónulegt?

Þegar þú getur átt von á hrylli­legum tölvu­póstum eða ömur­legum átökum á ein­hverjum fundum trekk í trekk.

„Já, þetta er það. Ofboðs­lega persónulegt. Ég held að fólk hafi séð það á yfir­lýsingunni að það er komin einhver stemmning. Fólk þorir ekki alveg að segja hug sinn af því að þá getur það orðið fyrir persónu­árásum. Það er einhver þannig stemmning og þegar þú getur átt von á hryllilegum tölvu­póstum eða ömurlegum átökum á einhverjum fundum trekk í trekk.“

Erum við að tala um skæting?

„Skæting. Og á tímabili voru enda­lausar hótanir um afsögn eða úrsögn einhverra stéttar­félaga úr ASÍ ef það væri ekki gert svona eða hinsegin. Þannig að þetta er búið að vera mjög óheilbrigt. Ég verð sjálf óheilbrigð við að taka þátt í þessu; maður er að taka þátt í einhverjum samskiptum sem maður er ekki sáttur við. Og á sama tíma að vera í stöðu sem forseti þá áttu erfitt með að segja hlutina eins og þeir eru. Það að segja af þér gefur þér ákveðið frelsi til að tala. Það er einhver stemmning þarna sem er alveg agaleg og engum líður þar sérlega vel held ég.“

Hvenær fór að bera á þessum klofningi? Var ekki ágætt á milli þín, Sólveigar og Ragnars í upphafi?

Ég held að þetta sé í fyrsta sinn sem verka­lýðs­for­ingjar segja af sér af því að það er ekki farið að kröfu þeirra um að skerða rétt­indi vinn­andi fólks.

„Jú, en ég veit ekki hvort einhverjir hafi átt erfitt með að sætta sig við það að ég væri í þessum stól yfir höfuð frá upphafi. En það var þannig þegar Covid skall á að þá héldum við marga fundi í samninga­nefnd ASÍ og ég setti á fundi nærri því á hverjum einasta degi út af þessu ástandi,“ segir Drífa og voru margar hugmyndir reifaðar og nefnir hún þrýsting á að frysta launa­hækkanir. „Síðan var það eindóma og mjög skynsöm ákvörðun og niður­staða samninga­nefndar ASÍ að standa vörð um samningana, slá hvergi af. Þá kom í ljós að Vilhjálmur og Ragnar höfðu verið í einhverjum öðrum samtölum hjá Samtökum atvinnu­lífsins um að fresta hluta af lífeyris­sjóðs­framlagi atvinnu­rekenda til vinnandi fólks. Og þeir voru ósáttir við niður­stöðu þessarar samninga­nefndar ASÍ og sögðu af sér í kjölfarið. Vilhjálmur var þá fyrsti vara­forseti og Ragnar í miðstjórn. Ég held að þetta sé í fyrsta sinn sem verkalýðs­foringjar segja af sér af því að það er ekki farið að kröfu þeirra um að skerða réttindi vinnandi fólks. Þannig að það var mikið sjokk og ótrúleg í rauninni þessi ákvörðun þeirra.“

Misbauð svo svakalega

Svo kom upp þetta makalausa mál varðandi brott­rekstur starfs­fólks á skrif­stofu Eflingar og Drífa tók mjög skýra afstöðu þar.

„Ætli ég hafi ekki verið að undirrita dauða­yfirlýsingu mína þar. Nei, ég ætla ekki að taka svona gróft til orða. Það er ekkert lítil ákvöðrun að tala gegn formanni í einu stærsta aðildar­félagi ASÍ og ákvörðun stjórnar Eflingar. Efling er stórveldi innan ASÍ. En mér bara misbauð svo svakalega og mér fannst eins og það væri verið að skilja fólk eftir úti á berangri sem þyrfti stuðning síns stéttar­félags ef allt væri með felldu. Þess vegna ákvað ég að stíga svolítið hressilega til jarðar þar. Þá vissi ég að þetta yrði ekki til vinsældar fallið víða.“

Þú hefur kannski vitað að þetta myndi kosta það að það væri heppilegra að stíga frá þessu?

„Ég var svo sem ekki búin að setja það í samhengi við mína stöðu þá en bara það að sitja sem forseti og tala gegn stjórnar­ákvörðun Eflingar og eins og þegar ég svaraði Ragnari þegar hann var búinn að skrifa svona 50 blaða­greinar um allt og ýmislegt og svolítið ófókuserað um hvað þetta væri agalegt hjá mér allt saman og ASÍ og ASÍ-báknið. Þá svaraði ég honum og það er erfitt að sitja sem forseti og vera að gagnrýna forystu­menn í verkalýðs­hreyfingunni. Og þegar Efling og ASÍ og nokkrir í viðbót leggja saman krafta sína þá eru þeir meira en helminguirnn innann ASÍ.“

Síðan var bara aum­ingja­sak­pur margra í hreyf­ing­unni að for­dæma þetta ekki.

Aftur að brott­rekstri starfs­fólks Eflingar. Hvernig gat þetta gerst? „Ég skil það bara mjög illa. Ég veit að Sólveig Anna hefur gert ákveðið listform úr því að búa til óvini og finna óvini. Það er nánast heillandi að fylgjast með því á köflum. Síðan var bara aumingja­skapur margra í hreyfingunni að fordæma þetta ekki. Alger aumingja­skapur. Og ég fann það þegar við fórum inn á fund miðstjórnar Alþýðu­sambandsins og ég var svo sem alveg viðbúin að leggja það fram við miðstjórn ASÍ að við myndum fordæma þetta sem miðstjórn en ég fann það starx að ég myndi ekki hafa það í gegn. En ég fyrir mitt leyti ákvað að fordæma þetta.“

Mikil orka í innri átök

Hver er vígstaða verkalýðs­hreyfingarinnar? Er hún þannig að það sé hægt að fara í hörð átök? Eða er fólk alltaf of upptekið af innri átökum?

„Það fer ótrúleg orka í innri átök sem ætti að fara annað. Nú veit ég ekki hvað gerist en ef fólk nær að stilla saman strengi og koma sæmilega sameinað til viðræðna þá getur það gengið vel. Ég sé ekki annað en að stjórn­völd þurfi að koma inn í þær viðræður því að húsnæðis­málin og efnahags­málin eru nátt­úrlega rosalegur þáttur í kaupmáttar­aukningu og lífsgæðum. Hvernig það tekst til er í höndum annarra en mín núna.“

Stundum hafa félögin farið hvert fyrir sig en svo hefur Alþýðu­sambandið stundum farið með umboð fyrir alla.

„Já, sérstak­lega gagnvart stjórn­völdum. Alþýðu­sambandið hefur í sjálfu sér aldrei farið með umboðið fyrir alla í því að gera stóra kjara­samninga. Það eru í rauninni lands­samböndin hvert um sig sem gera það og í rauninni er samnings­umboð hjá hverju einasta stéttar­félagi á landinu. Svo sameinast þau. En okkar aðkoma hefur aðallega verið gagnvart stjórn­völdum og stórum línum og þáttum sem hafa verið þeir sömu í ölllum kjara­samningum: Forsendu­ákvæði, tryggingar og eitthvað slíkt sem eru gegnum­gangandi grundvallar­réttindi á vinnu­markaði. Ekki endilega krónutölu­ákvæðin. Þannig að það hefur verið á borði ASÍ að taka stóru ákvarðanirnar.

Það eru ekki allir búnir að birta kröfu­gerðir; það eru ekki allir búnir að segja við ætlum að fara fram með þessa kröfu í komandi kjara­samningum og það er ekki byrjað að setjast niður og tala saman. Þannig að mér finnst vera ótímabært að vera að hóta verk­föllum áður en það er byrjað. Og það verður þá að koma í ljós hvernig það verður.“

Hins vegar var orðin pínu stemmn­ing í þess­ari blokka­myndun að ég væri vanda­málið.

Er kominn friður í verkalýðs­hreyfinguna fyrst Drífa er farin eða heldur þetta áfram að grassera?

„Ég veit það ekki. Hins vegar var orðin pínu stemmning í þessari blokka­myndun að ég væri vanda­málið. Ég er allavega búin að fjarlægja það. Þannig að þá kemur í ljós hvað verður. Ég á marga stuðnings­menn innan hreyfingarinnar. Það eru margir sem tala við mig; fólk sem kannski treystir sér ekki alltaf til þess að tala opinber­lega og er frekar í því að reyna að sætta og miðla málum.“

Kristján Þórður tekur við af Drífu. Er hann í einhverri blokk?

„Nei. Ég held að Kristján Þórður reyni að sigla á milli skers og báru. Ég veit ekki alveg hvernig hann ætlar að halda á þessu. Og ég var ekkert að gera honum sérstak­lega mikinn greiða með því að hringja í hann í morgun og segja honum hvað dagurinn bæri í skauti sér.“

Var honum brugðið?

„Já, ég held það.“

Sjá má viðtal Reynis við Drífu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið