Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Drífa gerir upp andlát Halla á Tenerife: „Einn dagur í einu og bara vona það besta“

Haraldur Logi
Haraldur Logi

Drífa Björk Linnet hefur fundið sig knúna til að segja frá því hvernig andlát eigin­manns hennar, Haraldar Loga Hrafnkels­sonar, bar að en hann lést í eldsvoða á Tenerife fyrr á árinu.

Drífa útskýrir í löngu máli á Instagram-reikningi sínum, hvernig andlátið bar að og af hverju það hefur gengið svona hægt að fá almennileg svör frá yfir­völdum á eyjunni. Segir Drífa að fólk hafi síðan slysið varð, búið til allskonar ósmekklegar útgáfur af málinu og það sé sérlega leiðinlegt í ljósi þess að börn séu á heimilinu sem mega ekki við því að heyra upplognar sögur af látnum pabba þeirra. Því hafi hún ákveðið að segja frá því hvað gerðist. Drífa gaf Mannlífi góðfúslegt leyfi til að fjalla um málið.

6. febrúar 2022

„Fréttirnar eru einfald­lega þær að það eru engar endanlegar fréttir enn sem komið er en það sem hefur gerst sl. 6 mánuði er í grófum þetta,“ skrifar Drífa og lýsir svo þessum afdrífa­ríka degi á Tenerife, þann 6. febrúar 2022.

„Við fjöl­skyldan vöknum á sunnudags­morgun við að það er komin upp eldur í húsinu okkar á Tenerife. Eftir að Sara Jasmín elsta dóttir mín vaknar og hleypur í panikki út og nánast inní eldinn – kallar hún á mig að það sé kviknað í. Ég hringi í geðs­hræringu á 112 og lögregla og slökkvilið mæta, koma okkur út og fara að ráða niður­lögum eldsins. Þegar það er búið, koma þeir til mín og segjast hafa fundið manninn minn í einni af tveimur bifreiðum í bílskúrnum og hafi hann strax verið úrskurðaður látinn. Ég fer strax uppá lögreglustöð þar sem skýrsla er tekin af okkur öllum og fer svo að reyna að finna hótel­herbergi fyrir okkur, enda var bæði húsið óíbúðarhæft og báðir bílarnir ónýtir. Á meðan ég er að reyna að finna hótel, vissu börnin ekkert og spurðu í sífellu hvort ég ætlaði ekki að hringja í pabba þeirra og segja honum að það hafi kviknað í. Eftir að ég er búin að innrita mig á hótelið segi ég börnunum fréttirnar um að pabbi þeirra sé dáinn.“

Við tók bið eftir að skýrsla lögreglu um bráða­birgða niður­stöðu í málinu yrði lesin af dómara og þá annaðhvort samþykkt eða ekki en þá þyrfti að rannsaka eitthvað betur. „Skýrslan beið í einhverjar vikur/mánuði á borði dómara þangað til að hún var lesin enda fer málið bara í röðina eins og önnur mál.“

Næstu þrjá mánuði dvaldi fjöl­skyldan á hótelinu en Drífa, ásamt móður hennar, lágu á spænskum yfir­völdum um það hvað hefði gerst og hvenær hún gæti fengið manninn sinn aftur og veitt honum jarðaför. „Að þessum 3 mánuðum loknum var ég komin með nokkurnvegin mynd á hvað hefði gerst þessa nótt en þó ekki komin með fullnægjandi svör hvort ég mætti taka hann með mér og því gat ég ekki gert börnunum það lengur að búa við þessar aðstæður og ákveð að bóka okkur til Íslands.“

Á Íslandi hélt Drífa svo áfram að reyna að knýja fram svör frá yfir­völdum á Spáni. „Dómstóll götunnar passaði að vera alltaf á vaktinni til að gera harm­leikinn okkar enn sorglegri á meðan ég reyndi að gera allt sem ég gæti í að kalla fram bros eins oft og ég gæti á lítil hjörtu sem enn voru í sjokki.“

Hvorki saknæmt né sjálfsvíg

Drífa segir svo frá því sem vitað er um andlátið.

„Fyrst var skoðað hvort eitthvað saknæmt hefði átt sér stað eða hvort um sjálfsvíg hafi verið að ræða. Það var staðfest eftir 2 vikur frá slysinu að hvorugt þetta átti sér stað. Enda allt morandi í mynda­vélum og auðvelt að sjá hvað gekk á. Það var enginn annar en Halli á staðnum og ekkert sem hann gerði sem benti til þess heldur að þetta hafi verið hans eigin vilji. Svo nú er verið að rannsaka upptök eldsins. Hvaðan kom eldurinn ef Halli kveikti ekki í sjálfur, né einhver annar? Getur það verið vindill eða ofhitnaði bíllinn? Þeir eru einfald­lega ekki búnir enn að átta sig á því og því er málið enn til rann­sóknar. Búið er að rannsaka lifrina í honum til að athuga hvort honum hafi verið byrlað í drykk á einhverjum stað því þá hefði verið hægt að draga viðkomandi til saka og hægt væri að kenna viðkomandi um að Halli hafi ekki vaknað við eldinn. En það fannst ekkert í lifrinni… annað en dass af rauðvíni hjá okkar manni enda vorum við í afmæli hjá góðum vini okkar um kvöldið og ekkert óeðlilegt við það. Öryggis­myndavélar voru skoðaðar bæði sem eru allstaðar á húsinu okkar og í götunni okkar og þar sést mjög greini­lega að Halli kom einn heim seint um nóttina, lyklalaus og vildi sennilega ekki vekja okkur og hann sest inn í bíl, ræsir vélina, kemur sér fyrir í sætinu og leggur sig. 20 mínútum síðar fer hann að húsinu til að athuga hvort einhver sé vaknaður en allir eru sofandi svo hann sest aftur inn í bílinn og sofnar. Tæplega 2 klukku­stundum seinna byrjar reykur að koma frá bílnum, svo eldur og síðan sprenging og þá vöknum við öll og martröðin hefst sem við erum enn í.“

Púslar fjölskyldunni saman

Segist Drífa vera búin að draga sex lögfræði­stofur í málið, bæði á Spáni og á Íslandi en einnig hefur hún verið í sambandi við ræðismenn úti sem og dómsmála­ráðuneytið. Þá hefur yfirmaður rann­sóknarinnar reynst henni mjög vel. Segir hún alla vera að gera sitt besta og séu með alla anga úti í tilraun til að flýta fyrir málinu. „Svörin eru bara „þetta tekur tíma“ ég hef ekki geta sætt mig við það en núna er svo komið að ég verð geðheilsu minnar og barnanna vegna að sætta mig við það svar og bíða bara. Ég nota tímann á meðan ég bíð í að púsla okkur saman og byggja okkar litlu fjöl­skylduna upp og vonast ég að með þessum pósti geti ég takmarkað spurningar­flóðið úr öllum áttum og fengið andrými til að tala um eitthvað annað í smá stund þangað til fleiri fréttir koma.“

Þá segist Drífa hafa krafist þess nú að fá jarðneskar leifar eigin­mannsins til Íslands svo hægt verði að halda jarðaför en í tvo mánuði hefur hún heyrt að hún ætti að geta fengið hann fljótlega en svo hefur ekkert orðið úr því ennþá. „Ég er núna í Madríd og fer til Tenerife í næstu viku. Kannski fæ ég að taka hann með mér heim. Vonandi. Einn dagur í einu og bara vona það besta er eina sem hægt er að vinna með í stöðunni.“

Halli vildi ekkert drama, bara hlátur og gott rauðvín

Að sögn Drífu er búið að staðfesta að minningar­athöfn og jarðaför verði haldin á Íslandi 23. ágúst næst­komandi en það er afmælis­dagur Halla. „Hann var mjög spenntur fyrir þessum degi og hlakkaði mikið til að halda uppá fimmtugsafmælið sitt. Ég bið ykkur af öllu hjarta að koma og vera með mér þennan dag svo við getum öll kvatt þennan eðalmann sem við elskuðum öll svo heitt.“ Bætti hún því við að Halli hafi oft rætt við hana um það hvernig jarðaför hans ætti að vera, ef hann myndi deyja á undan henni. „Ekkert drama, bara hlátur, mikið af músík og gott rauðvín til að skála fyrir lífinu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið