Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Senda út neyðarkall vegna þjónustu við einstaklinga með heilabilun á Íslandi

Þörf á tafar­lausri þjónustu til að létta undir aðstand­endum fólks með heila­bilun

Stuðningsnetið skiptir sköpum
Stuðn­ings­netið skiptir sköpum Mynd: Unsplash/Cathal Mac An Bheatha

Heilbrigðis­ráðuneytið hefur birt nýja aðgerða­áætlun um þjónustu við einstaklinga með heila­bilun til ársins 2030. Samhliða útgáfunni kalla hagsmuna­samtök eftir því að þjónusta verði stórefld svo umönnunar­byrðin lendi ekki að stærstum hluta á herðum nánustu aðstand­enda.

Áætlað er að hátt í sjö þúsund Íslendingar, sextíu ára og eldri, búi við heila­bilun. Sú tala byggir á nýlegum norskum rann­sóknum sem sýna að um átta prósent þess aldurs­hóps glími við sjúk­dóminn. Formlegar greiningar hér á landi eru þó mun færri.

Nýja áætlunin tekur við af fyrstu fimm ára áætlun stjórn­valda frá árinu 2019. Í henni er lögð áhersla á forvarnir, upplýsinga­gjöf, fjölgun úrræða og mikilvægi stuðnings­nets í kringum aðstand­endur. Málið var til umræðu á sérstöku málþingi Heila­hjálpar, samtaka um heila­bilun.

Þjónusta þarf að fylgja strax í kjölfar greiningar

Guðlaugur Eyjólfsson, framkvæmda­stjóri Heila­hjálpar, segir í viðtali við RÚV lykil­atriði að viðeigandi þjónusta sé veitt um leið og greining liggur fyrir. Hann bendir á að fólk sé að greinast æ yngra á Íslandi, jafnvel niður í fimmtugt. Í þeim tilfellum séu makar jafnan í fullu starfi á vinnu­markaði. Viðeigandi úrræði strax í upphafi séu því forsenda þess að aðstand­endur geti haldið áfram sinni vinnu og dregið úr heildar­álagi á fjöl­skyldur.

„Þetta var algjör skellur“

Meðal þeirra sem ræddu upplifun sína á málþinginu var Kolbrún Birna Halldórs­dóttir. Eigin­maður hennar var aðeins 51 árs gamall þegar hann greindist með Lewy body heila­bilun fyrir rúmum fjórum árum.

„Það fór allt á hvolf. Við vorum bara ung og hraust og í okkar besta formi,“ segir Kolbrún, en þau hjónin höfðu verið mjög virk í útivist og fjall­göngum. Hún segir aðstoð frá þjónustu­miðstöð fljótlega eftir greiningu, ásamt öflugu stuðnings­neti þriggja barna þeirra og stór­fjölskyldu, hafa skipt sköpum við að takast á við breytta lífshætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning