Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Þjóðin heldur í sér andanum vegna kindar í háska: „Hún þarf hjálp strax elsku dýrið“

„Mögulega berst þetta með ykkar hjálp á réttan stað. Við félagarnir gengum fram á kind sem lak blóð úr aftur­endanum á. Hún lá á hlið í grasinu og spriklaði við og við, annars bara hreyfingar­laus. Var með tvö ljónstygg lömb hjá sér. Staðsett í Kjósinni rétt fyrir ofan bæ sem heitir Eyjafell, hliðina á litlum fossi.“

Þetta skrifar Björn nokkur innan Facebook-hópsins Brask og brall. Hópurinn einn sá allra vinsælasti með Íslendinga en meðlimir eru 182 þúsund, um helmingur mann­fjölda Íslands. Óhætt er að segja að neyðar­kall Björn hafi vakið mikil viðbrögð á stuttum tíma. Margir hafa svarað kallinu. Til marks um það þá eru margir þræðir um málið innan Facebook-hópsins Sauðfjár­bændur, bæði til að hvetja bændur í nágreninu til að hjálpa kindinni og komast að því hver eigi skepnuna.

Í Brask og brall er einnig mörgum umhuga um kindina. Margir segja Birni að velta bara kindinni við. Björn segir málið ekki svo einfalt: „Erum farnir. Hún virtist vera særð. Vildum ekki gera neitt sem gæti gert illt verra. Hún var með 2 lömb í kringum sig sem við vildum heldur ekki hrekja á vergang meðvi að vera of lengi eða ofan í kindinni. Við kunnum ekkert á svona ferfætlinga hvorki til verka né neitt annað“. Hann segist hafa bankað upp á á næstu bæjum en þar hafi enginn svarað

Margir hrósa honum fyrir láta vita. „Gott hjá ykkur að láta vita, mjög mikilvægt, en kindin er varnar­laus núna gagnvart hrofnum. Vonandi fær hún hjálp sem allra fyrst,“ segir ein kona. Aðrir segja honum að snúa við, tíminn sé naumur til að bjarga lífi hennar. „Það væri æði að þið farið til baka Björn og réttið hana við þar sem þið vitið hvar hún er. Þið getið bjargað lífi hennar og kanski einnig lamba hennar.“

Enn aðrir leita að sökudólgi. Einn maður telur dýra­níðing á ferðinni. Sá gengur svo langt að segja Björn samsekan. „Þetta er ótrúlegt kæruleysi. Þarna hefur enginn dýranið­ingur verið á ferðinni. Rollan hefur orðið afvelta og Hrafninn farið í görnina á henni eða jafnvel Tófan, það er nóg til af þeim. Það má kalla það dýraníð að bjarga ekki skepnunni. Ég held að þessir pennar ættu að drullast til að fara og rétta rolluna við.“

Annar maður gerir svo grín að þessu öllu. „Það er með ólíkindum þessi umræða hérna. Hringja í 112 , lögregluna eða dýralækni. Semsagt gera allt annað en að bjarga rollunni. Af hverju ekki að hringja í prest líka.“

Fáir taka undir og fær hann skammir fyrir. „Fyrir­gefðu en hvað gengur eiginlega á hjá þér vinur? Ef þú lest það sem Björn hefur sagt þá vissi hann ekki hvað hann átti að gera og var hræddur um að gera illt verra. Það er hárrétt hjá honum að láta vita, hann er að gera það sem honum finnst rétt! Værir þú til í að virða það? Hér má fólk frekar þakka honum fyrir að auglýsa þetta í þeirri von að eigandi finnist! Hann hafði fyrir því að setja þetta inn, sýna hvar þetta var og þetta er það sem hann fær fyrir!? Verum kurteis og þakklát fyrir fólk sem reynir að hjálpa!“

Eftir því sem Mannlíf kemst næst þá er kindin enn í hættu nú rétt fyrir miðnætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá