Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Leigumarkaðurinn: „Leigendur á Íslandi búa við hvað verstu kjör í Evrópu…“

„Leigendur á Íslandi búa við hvað verstu kjör í Evrópu…“ segir Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður samtaka leigenda á Íslandi, í viðtali hjá Heimi Karlssyni og Lilju Katrínu Gunnars­dóttur, í Bítinu í morgun.

Óstöðug­leiki og sífelldar hækkanir einkenna íslenskan leigu­markað, en markaðurinn telur um 35 til 40 þúsund heimili. Samtökin berjast fyrir bættum kjörum og að ríki og sveita­félög sinni skyldum sínum.

„Ástæða þess að fasteigna­verð er að hækka svona mikið er út af því að leigu­markaðurinn er að skila mikilli ávöxtun,“ segir Guðmundur og bendir á að flestir kaupendur á íbúðar­húsnæði séu fjár­festar.

Í meirihluta­sáttmála Samfylkingarinnar, Fram­sóknar, Pírata og Viðreisnar, sem kynntur var í gær, er hvergi minnst á kjör eða úrlausnir fyrir íslenska leigjendur.

Skýrt í lögum

„Skyldur sveita­félaganna er að útvega húsnæði á viðráðanlegu verði, það stendur í lögunum, þarna hafa þau bara svikist um sitt hlutverk og skapað þessar aðstæður á leigu­markaði,“ segir Guðmundur.

Í 45. grein í 12. Kafla um húsnæðismál í lögum um félags­þjónustu sveitar­félaga, segir:

Sveitar­stjórnir skulu, eftir því sem kostur er og þörf er á, tryggja framboð af leigu­húsnæði, félags­legu kaup­leigu­húsnæði og/eða félags­legum eignar­íbúðum handa þeim fjöl­skyldum og einstaklingum sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslu­byrðar eða annarra félagslegra aðstæðna.

„Við verðum að átta okkur á því að á almennum íbúða­markaði, leigu­markaði í Reykjavík, er engin óhagnaðar­drifin íbúð – ekki ein!“ segir Guðmundur og bætir við að þau samtök sem kalla sig óhagnaðar­drifin standist ekki skoðun.

„Í Danmörku er hugtakið óhagnaðar­drifið skilgreint þannig að bara er tekið mið af uppruna­legum  byggingar­kostnaði […] Félags­bústaðir sem skila milljörðum í hagnað gætu lækkað húsa­leiguna hjá sér um 25% ef þeir myndu raun­verulega vera óhagnaðar­drifnir.“

 Vonbrigði til vinstri

Á fundi Samtaka leigjenda á Íslandi með öllum sveitar­stjórnar­flokkunum rétt fyrir kosningar kom í ljós að Píratar og Viðreisn voru hvað mest til hægri hvað varðaði húsnæðis­málin. „Þessi tveir flokkar settu sig alfarið upp á móti því að verja leigendur fyrir sjálftöku á leigu­markaði, með því að setja einhverjar takmarkanir á hversu mikið leigan mætti hækka,“ sagði Guðmundur. „Flokkarnir vildu meina að markaðurinn eigi og muni leysa vandann.“

Þá vill Guðmundur meina að hækkanir á leigu­verði sé bein afleiðing vanrækslu fyrrum meirihluta.

Fundað með forsætisráðherra

Krafa leigjenda er hávær en svörin engin frá meirihlutanum. Samtökin ganga til fundar klukkan 13 með forsætis­ráðherra, Katrínu Jakobs­dóttur, sem árið 2019 skrifaði undir þá kröfu í lífs­kjara­samningunum að komið yrði á leigu­bremsu sem tekur á árlegum hækkunum.

„Bremsan þýðir að ekki mega hækka leigu umfram eitthvað ákveðið hlutfall á hverju ári,“ útskýrir Guðmundur. „Framboðs­skorturinn er heima­tilbúinn og meðvitaðar aðstæður sem búnar eru til af sveitar­félögunum á höfuð­borgar­svæðinu…“

„35 til 40 þúsund leigendur borða erfitt í morgunmat. […] Nú er komið að leigendum – eigum inni bæði sanngirni og leið­réttingu.“ segir Guðmundur í lokin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá