Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Brynjar Leó dæmdur fyrir að nauðga barni

Í dóminum kemur fram að stúlkan hafi verið í mjög viðkvæmri stöðu

Héraðsdómur Reykjavíkur sá um málið
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sá um málið Mynd: Víkingur

Héraðs­dómur Reykja­víkur hefur dæmt 22 ára mann, Brynjar Leó Hjartarson, í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir nauðgun og kynferðis­brot gegn stúlku, þegar hún var 13 og 14 ára gömul, auk annarra brota sem framin voru á árinu 2024 í Reykjavík.

Samkvæmt niður­stöðu dómsins hafði Brynjar Leó ítrekuð kynferðismök við stúlkuna. Dómurinn taldi sannað að hann hefði haft samræði og önnur kynferðismök við stúlkuna án samþykkis hennar og nýtt sér yfirburði sína vegna aldurs- og þroska­munar, auk þess sem hún hefði verið háð fíkni­efnum og lyfjum.

Í dóminum kemur fram að stúlkan hafi verið í mjög viðkvæmri stöðu á þessum tíma. Hún var í forsjá Barna­verndar Reykja­víkur, hafði ítrekað strokið af vist­heimili og var komin í alvarlega fíkniefna­neyslu. Dómurinn taldi að Brynjar Leó hefði skapað henni aðstæður til áfram­haldandi neyslu og leynt henni fyrir lögreglu og barna­vernd þegar hennar var leitað.

Auk kynferðis­brotanna játaði Brynjar Leó fíkniefna­lagabrot, tilraunir til þjófnaðar, eigna­spjöll og vopna­lagabrot. Við handtöku hans fundust meðal annars Alprazolam- og OxyContin-töflur í fórum hans.

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn meðal annars til þess að brotin hefðu staðið yfir um nokkurt skeið og beinst að lífi, heilsu og velferð barns. Þá var tekið fram að Brynjar Leó hefði sýnt af sér mikla ófyrirleitni og nýtt sér aðstæður brotaþola í eigin þágu.

Brotaþola voru dæmdar 2,5 milljónir króna í miska­bætur auk vaxta. Þá var Brynjari Leó gert að greiða allan sakar­kostnað, þar á meðal verjanda sínum og réttar­gæslumanni brotaþola samtals 3,8 milljónir króna í þóknun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis