Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhöfn Guðnýjar ÍS 266 hengdi ísbjörn á sundi: „Það var ekkert nauðsynlegt frekar en annað“

Áhöfnin stolt af „veiðunum“
Áhöfnin stolt af „veið­unum“ Mynd: Bæjarins besta

Hvíta­birnir hafa verið nokkuð tíðir gestir við strendur Íslands um aldaraðir. Hafa þeir að jafnaði verið felldir með skot­vopnum enda stafar af þeim gríðar­mikil hætta, séu þeir svangir. En ekki hefur alltaf verið notast við skotvopn við að fella bjarndýrin. Í júní árið 1993 ákvað áhöfn skipsins Guðnýjar ÍS 266 frá Bolungarvík að fella hvíta­björn sem synti upp að skipinu. Það gerði áhöfnin með því að bregða snöru um háls bjarnarins og hengja hann.

Í Morgun­blaðinu er svo sagt frá málinu:

Snöruðu og drápu ísbjörn

SKIPSTJÓRINN á Guðnýju ÍS 266 frá Bolungarvík hafði samband við útgerðar­mann bátsins Magnús Snorrason í Bolungarvík í fyrra­kvöld og sagði að skips­höfnin hefði náð að drepa ísbjörn, sem kom upp að skipinu þar sem það var að línu­veiðum um 60 sjómílur norð­austur af Horn­bjargi. Virðist að skips­höfninni hafi tekist að bregða snöru um háls dýrsins og það hengst

Frá því að fréttist af hvíta­bjarnar­drápinu í gærmorgun hefur skipið ekki svarað ítrekuðum samtals­beiðnum, en það er utan þjónustu­svæðis farsíma. Engin leið hefur því verið að fá nánari upplýsingar um atburðinn, en Guðný er væntanleg til Bolungarvíkur í dag. Það kom fram í viðtali við Jón Oddsson refa­skyttu í ríkis­útvarpinu í gær að hann teldi sig hafa séð ummerki eftir ísbjörn í Hornvík þegar hann var við refa­veiðar um miðjan mánuðinn. Kjartan Sigmundsson, sem skaut ísbjörn í Hornvík 25. júní 1963 eða fyrir réttum 30 árum, er nýkominn að norðan. Hann sagðist ekki hafa séð nein merki um bjarndýr, en það segði þó ekkert um að það gæti ekki verið þarna. Það væri nóg æti í bjarginu, þótt hann hefði veitt því athygli að allur selur var horfinn af Horn­víkinni, en þar er jafnan mikið um sel á þessum árstíma. Hann sagði að nú væri um 25 manna hópur í húsi hans í Hornvík og fjórar stúlkur í Stígshúsi og sér liði ekkert of vel að vita af öllu þessu fólki þarna vopnlausu, en nú er bannað að vera með byssur í friðlandi Horn­stranda. Hann hélt að ekkert útvarp væri til staðar og ekkert fjarskipta­samband nær en austan Horn­bjargs í vitanum og fólk því óafvitandi um hættuna.

Önundur Jónsson lögreglu­varðstjóri á ísafirði, en Ísafjarðar­lögreglan hefur lögsögu á Horn­ströndum, sagðist hafa kynnt sér málin með að ræða við menn kunnuga háttum ísbjarna. Hann sagðist ekki gera neinar ráðstafanir þótt ísbjörn hafi hugsanlega verið á svæðinu fyrir 10 dögum. Slík dýr ferðist mjög hratt, jafnvel 30-40 km á dag, og séu því löngu horfin af svæðinu hafi þau verið þar.

Ekki fannst öllum aðferð áhafnarinnar mannúðleg gagnvart birninum en svo fór að áhöfnin var ákærð fyrir brot á lögum um dýravernd en Héraðs­dómur Vestfjarða sýknaði hana af brotinu.

DV tók viðtal við Rögnvald Guðmundsson, stýrimann á Guðnýju ÍS stuttu eftir

Rögnvaldur Guðmundsson, stýri­maður á Guðnýju ÍS: Aðferðin yrði öðruvísi

Rögnvaldur Guðmundsson er stýri­maður á Guðnýju ÍS en skip­verjar á Guðnýju rákust á ísbjörn á sundi um 60 mílur norður af Horni á fimmtudaginn og töldu best að koma dýrinu fyrir kattarnef. Margir hafa harðlega fordæmt drápið og stjóm Sambands dýra­verndunar­félaga hefur sent kæru til Rannsóknar­lögreglu ríkisins vegna málsins. Skip­stjóri á Guðnýju er Jón Pétursson en Rögnvaldur hefur verið í forsvari fyrir áhöfnina Rögnvaldur segist hafa byrjað sem púki til sjós en fyrir tveimur áratugum fékk hann vélstjóra­réttindi. Hann býr í Bolungarvík og er kvæntur Halldóru Þórarins­dóttur. Þau hjónin eiga fimm börn á aldrinum sex til 18 ára. Rögnvaldur segir að einu isbimimir sem hann hafi séð hingað til hafi verið birnirnir í Sædýra­safninu í Hafnar­firði. Þegar hann var spurður hvort nauðsynlegt hefði verið að drepa dýrið, svaraöi hann: „Það var ekkert nauðsynlegt frekar en annað.“

Hann taldi samt með öllu vonlaust fyrir ísbjörninn að komast í land þar sem hann var um 200 kílómetra undan landi. „Við sáum engan ís og enginn hafði talað um ís á skipunum sem voru þarna í kring. Það hefur enginn ís sést frá því snemma í vor, og það var langt í burtu,“ sagði Rögnvaldur er hann var spurður hvort ís hefði verið á þessum slóðum. Hann taldi að hann myndi gera það sama ef hann rækist á annan ísbjörn, en aðferðin yrði öðruvísi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis