Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

„Vemmilegt jesútal“ skemmir íslenskar jarðarfarir: „Auðvitað er þetta mikið tilfinningamál“

Jón Gnarr Mynd / Facebook
Jón Gnarr Mynd / Facebook

„Mikið ofboðs­lega eru þessar hefð­bundnu íslensku jarðar­farir leiðinlegar athafnir,“ segir Jón Gnarr á Twitter. Sitt sýnist hverjum og eru nokkrir sem mótmæla þessu. Bæði Andri Snær Magnússon rithöfundur og Stefán Pálsson sagn­fræðingur benda á að erlendis tíðkist ekki svo mikill tónlist. Þeim þykir það ekki skárra.

Andri segir: „Ekki sammála, þær eru miklu meira grand en víða erlendis, heims­klassa tónlistar­fólk, karla­kórar, selló etc.“ Jón segir það ekki vanda­málið. „Oft mjög flott músík og söngur, það er alveg rétt. en ég er meira að meina heila prógrammið.“

Stefán segir að íslenskar jarða­farir séu eitt að fáu sem sé sér-íslenskt. Jón hefur löngum haft áhuga slíku. „Mér finnst íslenska útförin vera gríðar­lega merkilegt fyrirbæri – og kannski eitt af fáu sem kalla má sér-íslenskt. Við erum frábær í útförum: mætum í miklu fleiri og hjá lítt-tengdu fólki en almennt gerist, það eru flottir artistar og fólk hefur mikla skoðun á framkvæmdinni,“ segir Stefán.

Jón svarar og segir: „Auðvitað er þetta mikið tilfinningamál og ég get alveg skilið að fólki finnist þetta æði þótt mér finnist það ekki.“ Stefán svarar að bragði: „Fyrir mér er þetta einmitt alls ekki tilfinningamál. Ætli ég nái ekki svona tíu jarðar­förum á ári. Yfirleitt gamlir vinnu­félagar eða fólk sem maður tengist úr félags­störfum. Þá fer maður að pæla í forminu. Sumar útfarir eru slappar, aðrar býsna vel gerðar.“

En hvað er það sem Jóni finnst verst við íslenskar jarða­farir? Það virðist vera allt hið trúarlega. Geir nokkur skrifar: „Stundum velti ég fyrir mér, sitjandi á óþægilegum kirkju­bekk og hlustandi á predikanir og tónlist um Jesú og Guð, hvort þetta sé virkilega rétta leiðin til að kveðja ástvini sína.“

Jón tekur undir og segir: „þetta vemmilega jesútal sem hefur enga tilfinninga­lega merkingu og hvað þá tengingu við manneskjuna sem verið er að kveðja.“

Annar maður kvartar líka undan presta­hjalinu. Sá segir: „Lista­fólkið gerir þetta bærilegt en hjalið í prestinum fjarlægir mann yfirleitt þeim látna. Væri fallegt ef hefðin væri sú að vinir og ættingjar segðu nokkur orð þann látna. Svo mætti alveg vera smá brennsi í erfi­drykkjum.“

Jón segist ekki geta verið meira sammála og segir: „Sammála því. Vemmilegt lúddavæl.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið