Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Þögnin rofin í Fjarðabyggð: „Okkur þykir mjög miður að vera komin á þennan stað“

Slökkvilið Fjarðabyggðar.
Slökkvi­lið Fjarða­byggðar. Mynd: Facebook

Nýjir stjórn­endur hafa verið skipaðir tíma­bundið, hjá slökkviliði Fjarða­byggðar eftir að slökkviliðs­stjóri og aðstoðar­slökkviliðs­stjóri létu af störfum um síðustu mánaðarmót. Óskuðu þeir eftir því að stíga til hliðar eftir að svört skýrsla mannauðs­fyrir­tækisins Attentus leit dagsins ljós en henni var ætlað að rannsaka ásakanir um óviðeigandi hegðun stjórn­endanna.

Sjá einnig: „Svört skýrsla“ um slökkvilið Fjarða­byggðar – Einelti og kynferðisleg áreitni í æðstu stöðum

Sakaðir um óviðeigandi hegðun

Fjarða­byggð hefur loksins rofið þögnina um skýrluna og starfslok yfirmanna slökkviliðs sveitar­félagsins en sveitar­stjórnar­menn funduðu með blaða­manni Austur­fréttar sem svo birti frétt í dag um málið. Mannlíf hafði ítrekað beðið um svör en samskipta­stjóri sveitar­félagsins hundsaði spurningarnar.

Samkvæmt frétt Austur­fréttar hefur vinnu­hópur með utan­aðkomandi sérfræðingum verið skipaður til að bæta andrúms­loftið í slökkviliðinu til frambúðar. Segir bæjar­stjórinn að búast megi við að það muni taka tíma að koma starfsandandum á góðan stað.

Líkt og fram hefur komið í fréttum Mannlífs um málið, voru yfir­mennirnir sakaðir um óviðeigandi hegðun, einelti og slaka stjórnar­hætti. Þá var aðstoðar­slökkviliðs­stjórinn sakaður um kynferðis­lega áreitni gagnvart nokkrum undir­mönnum sínum.

Forstöðu­maður stjórn­sýslu- og upplýsinga­mála hjá Fjarða­byggð, Þórður Vilberg Guðmundsson, segir í samtali við Austur­frétt að í desember í fyrra hafi kvartanir um starfs­anda og stjórnunar­hætti í slökkviliðinu, borist bæjarráði formlega en það fer með málefni slökkviliðisins innan stjórn­kerfis sveitar­félagsins.

Þær ásakanir hafi bæjarráð fjallað um og í kjölfarið farið í ferli sem leiddi til þess að strax var leitað að utan­aðkomandi aðila til að rannsaka þær. Attentus varð fyrri valinu vegna þess að það var tilbúið að fara hraðast í þá vinnu. Í janúar byrjuðu sérfræðingar fyrir­tækisins að rannsaka málin.

Tjá sig ekki um einstök atriði

Þórður segir aðspurður hvort stjórn­endur sveitar­félagsins hafi vitað af ásökununum fyrr en hefur komið fram, sagði hann að einhverjir starfs­menn hafi heyrt sögu­sagnir af slíku en að sveitar­félagið geti ekki unnið að neinum málum á grund­velli sögusagna. Þá sagði hann að enginn hafi verið sendur í leyfi á meðan á rann­sókninni stóð en að Fjarða­byggð svari að öðru leyti ekki spurningum um veikinda­leyfi einstakra starfs­manna, að öðru leyti en því að fyrir þeim leyfum eru ýmsar ástæður. Samkvæmt heimildum Mannlífs hefur aðstoðar­slökkviliðs­stjórinn verið í leyfi í tals­verðan tíma.

Er Þórður var spurður hvort Attentus hafi staðfest í skýrslu sinni ásakanirnar á hendur yfir­mönnum slökkviliðsins, svaraði hann á diplomatískan hátt. „Í skýrslunni koma fram ákveðnar ásakanir sem Attentus skoðar og metur. Niður­staðan er að starfs­andi og vinnulag innan slökkviliðsins hafi ekki verið í lagi. Við tjáum okkur ekki um einstök atriði.“

Föstu­daginn 31. mars á þessu ári skilaði Attentus skýrslu sinni til Fjarða­byggðar en tíma setningin var frekar slæm þar sem bæði stjórn­endur sveitar­félagsins og viðbragðs­aðilar, að meðtöldu slökkviliðinu, sem annast meðal annars sjúkra­flutningar á svæðinu, höfðu staðið í ströngu vegna snjóflóða í Neskaups­stað sem og vegna hættu­ástands af völdum ofanflóða um næstum allt sveitar­félagið. Þá urðu bæjarstjóra­skipti á sama tíma en þá tók Jóna Árný Þórðar­dóttir við af Jóni Birni Hákonar­syni.

Sérfræðihópur skipaður

Áður en Jóna og Þórður, ásamt Eyþóri Evarðssyni, M.A. í vinnu­sálfræði, funduðu með starfs­fólki þann 17. apríl, voru niðustöður skýrslunnar kynntar innanhús hjá Fjarðar­byggð. Þá var um leið virkjaður frestur sem hlut­aðeigandi starfs­menn slökkviliðsins höfðu til andmæla­réttar. Líkt og fram hefur komið, óskuðu yfir­mennirnir eftir því að hætta störfum og gerður þeir það um síðustu mánaðarmót.

„Það bera allir hag slökkviliðsins fyrir brjósti, þar með talið þessir yfirmenn. Því víkja þeir með hagsmuni slökkviliðsins að leiðar­ljósi,“ sagði Jóna Árný í samtali við Austur­frétt. Er hún var spurð nánar um hvort þeir hafi átt frumkvæði að því að víkja úr starfi svaraði hún: „Þetta er samkomulag, lyktir verða aldrei þessar nema að undan­gengnu samtali. Þetta ferli hefur tekið allan maí með andmæla­réttinum. Þegar leið á mánuðinn teiknaðist þessi niður­staða upp. Það er engum sagt upp, það er þeirra niður­staða og ósk að það væri öllum fyrir bestu að þeir stigju til hliðar.“

Ekki fyrstu vandræði slökkviliðsins

Jóna sagði aðspurð hvort gerðir hafi verið starfsloka­samningar við yfirmenninar, en það er ein af þeim spurningum sem Mannlíf hefur beðið eftir svarið við, svaraði hún: „Við tjáum okkur ekki um það. Þetta er bara niður­staðan – að þeir stigi út.“

Fram kemur í frétt Austur­fréttar að Vinnu­eftirlitið hafi eftirlit með vinnu­verndar­lögum, en bæði einelti og kynferðisleg áreitni falla undir þau. Aðspurð hvort einhverjum málum hafi verið vísað til eftirlitsins frá slökkviliðinu segjast Jóna og Þórður ekki geta tjáð sig um mál einstakra starfs­manna. Þó segja þau að engar áminningar hafa verið veittar í ferlinu.

Vandræða­gangurinn hjá slökkviliðinu í Fjarða­byggð er ekki nýr af nálinni en er þetta í annað skiptið á frekar stuttum tíma sem vandamál koma þar upp. Slökkviliðismanni var sagt upp sumarið 2019 og annar áminntur eftir kvartanir samstarfs­kvenna. Var Fjarða­byggð síðar dæmd til að greiða bætur til þess er sagt var upp, í ljósi þess að starfs­menn sveitar­félagsins höfðu ekki rannsakað málið nægilega vel. Á þessum tíma voru starfs­mannamál sveitar­félagsins til meðferðar innan bæjar­kerfisins en tvö ráðgjafar­fyrirtæki höfðu komið að því að reyna að laga starfs­andann innan slökkviliðins. Vegna aldurs hættu þáverandi yfirmenn hjá liðinu en vorið 2021 voru þeir stjórn­endur ráðnir sem nú voru að hætta.

„Okkur þykir mjög miður að vera komin á þennan stað, þetta er ekki staða sem neinn vill vera í. Ég get ekki tjáð mig um fortíðina að öðru leyti en því en allir sem að þessum málum koma hefðu viljað sleppa því að vera í þessari stöðu. Þessi staða endur­speglar ekki Fjarða­byggð sem vinnustað. Hjá okkur starfa yfir 400 manns í ýmsum stofnunum. Það er ekki mín upplifun eftir að hafa tekið við sem bæjar­stjóri að staðan sé svona víða, þetta er staðan í einni starfs­einingu. Við getum samt ekki annað en tekist á við það sem við erum með í höndunum núna og erum að gera það,“ segir Jóna Árný í samtali við Austur­frétt, um þá staðreynd að tveimur árum eftir síðustu umskipti innan liðsins virðist aftur vera komið á byrjunar­reit.

Júlíus Albertsson hefur verið settur aðstoðar­slökkviliðs­stjóri og Indriði Margeirsson yfir­varðstjóri, báðir til bráða­birgða. Þá hefur Fjarða­byggð aukreitis ráðið þrjá ráðgjafa til að vinna að úrbætum með sér og slökkviliðinu. Auk Eyþórs eru í hópnum sérfræðingur í mannauðs­málum sem og öryggis­ráðgjafi. Þá bætist við í haust sérfræðingur í málefnum slökkviliða. Þau Jóna og Þórður, ásamt bæjarráði, fóru á fund við slökkviliðið á mánudaginn.

„Þessi hópur er kominn í fullan gang við búa til skipulag og áætlanir. Það gengur vel. Allir sem koma að þessu verkefni vinna að því af heilum hug. Ráðgjafarnir voru hjá okkur síðast á fimmtudag og verða hjá okkur reglulega. Næsti fasi í uppbyggingunni hefst í haust þegar sérfræðingur um málefni slökkviliða kemur til okkar. Sérfræðingarnir sem eru með okkur nú hætta ekki þá heldur fylgja okkur það til okkur líður betur með stöðuna. Við höfum að undan­förnu skipulagt sumarfrí og annað sem þarf til að sumarið gangi upp eins og það eigi að gera. Það hafa allir unnið saman að því,“ segir Jóna Árný.

Segist Jóna finna fyrir stuðningi frá starfs­fólki slökkviliðins við vinnuna. „Já, mér finnst ég gera það. Við erum með lið sem vinnur að heilindum að því sem þarf.“

Mun taka tíma

Tekur Jóna Árný þó fram að umbreytingin gerist ekki með einum smelli heldur taki það sinn tíma.  „Við gefum okkur að þurfa að halda vel utan um liðið í tvö ár til að komast á rétt ról. Það er erfitt að gefa út tímalínur en ef ég horfi raunsætt á hlutina þá myndi ég segja að eftir ár værum við komin á góðan stað og eftir ár í viðbót geta sagt að við hefðum komist alla leið. Til þess þarf að fara í gegnum ýmsa þætti og þess vegna fáum við sérfræðinga úr ólíkum áttum með okkur.

Með þessari vinnu eru málin komin í ákveðinn farveg sem við vonumst til að skapi frið og grunn að góðri og uppbyggilegri vinnu. Það ætla allir að gera þetta vel. Ekkert okkar sem komum að þessu máli bað um að vera í þessari stöðu en við verðum að vinna okkur saman út úr því,“ segir Jóna Árný að lokum.

Spurning um starfslokasamning

Mannlíf ræddi við sérfræðing í stjórnsýslu­lögum sem sagði erfitt að segja til um starfsloka­samning í tilfellum sem þessum, það væri mögulegt að um væri einfald­lega að ræða uppgjörf vegna uppsagnar að ræða, sem yfir­mennirnir hafi áunnið sér. „Þó að það sé stundum talað um starfsloka­samning, það þýðir oft ekkert meira en þrír mánuðir. Þetta hugtak er bara notað svona. Ég held að það sé mjög sjaldgæft að fólki sé borgað eitthvað mikið umfram þennan þriggja mánaða uppsagnar­frétt,“ sagði sérfræðingurinn en tók fram að hann sé að tala almennt um svona mál, ekki mál Fjarða­byggðar enda hafi hann ekki sérstaka vitneskju um það mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp