Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Aftakaveður á Austurlandi – Myndir frá Seyðisfirði

Angross fór illa í veðurhaminum í dag Mynd/aðsend
Angross fór illa í veð­ur­ham­inum í dag Mynd/aðsend

Aftaka­veður hefur herjað á Austur­land og rauð veður­viðvörun verið í gildi. Töluvert tjón hefur orðið á Seyðis­firði af völdum veðursins og hefur sett mark sitt á hús og náttúru á svæðinu. Í samtali við Mannlíf, um klukkan hálf níu, segir Sólveig Sigurðar­dóttir Seyðfirðingur að veðrið sé ekkert mikið að skána: „Það koma svona rokur en þó búið að vera aðeins rólegra núna um og eftir kvöld­matinn.“

Eitt af elstu húsum bæjarins fór illa í veðrinu en húsið nefnist Angró og var byggt af Otto Wathne í kringum 1880. Á myndinni að dæma er engu líkara en að það hafi orðið fyrir sprengingu. „Eftir skriðuna 18. desember fyrir tæpum tveimur árum þá fór það ansi illa en það var búið að skipta um þak á því og hluta til búið að endurnýja en framkvæmdum var ekki lokið,“ segir Sólveig. En telur hún að stóra skipa­smíða­skemman sem áður stóð við hliðina á húsinu en fór í skriðunni hafi verið skjól. „En nú þegar engin skemma er að þá hefur vindurinn skollið á húsinu og húsið ekki þolað það.“

Angró fyrir tjónið Mynd/aðsend

Gríðar­legur fjöldi fiskikara eða um það bil 50 talsins samkvæmt Sólveigu fuku af landi þrátt fyrir að hafa verið kyrfilega reyrð saman. „Okkur þótti þetta ansi súrt að missa öll þessi kör,“ útskýrir Sólveig en tekur fram að mörg hafi skilað sér á Norður­strönd fjarðarins.

Hátt í 50 fiski­för fuku á haf út.
Reynitré í garði Sól­veigar fauk um koll í veð­ur­lát­unum. Mynd/aðsend
Litli Hóll er smá­hýsi sem fauk um koll og þvert yfir göt­una. Mynd/aðsend

Einhverjir bæjarbúar hafa gripið til þess ráðs að draga fyrir gluggana í von um að verja sig fyrir gler­brotum ef glerið skyldi brotna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning