Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Ógnar fólki í Fíladelfíu með ógeðfellda grímu á smettinu

Spurði konu hvort hún væri „tilbúin að deyja“

Þorparinn holdi klæddur
Þorp­ar­inn holdi klæddur

Lögreglan í Fíladelfíu í Banda­ríkjunum leitar nú að ungum manni sem grunaður er um að hafa ógnað og áreitt vegfarendur í miðborginni. Maðurinn bar grímu sem minnir á hryllings­mynda­persónuna Chucky þegar atvikin áttu sér stað.

Jason Smith, lögreglu­foringi í Fíladelfíu, segir manninn hafa veist að nokkrum einstaklingum í Center City-hverfinu. Atvikin áttu sér stað á um 20 mínútna tímabili.

Eitt atvikanna náðist á eftirlits­myndavél. Þar sést maðurinn elta konu sem var úti að hlaupa snemma morguns. Hann veitti henni eftirför áður en hann gekk að henni og er sagður hafa spurt hana hvort hún væri „tilbúin að deyja“.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu færði maðurinn jafnframt aðra höndina aftur fyrir bak með þeim hætti að konan taldi að hann kynni að vera með vopn.

Konan kallaði eftir aðstoð og hörfaði undan manninum. Við það hlaut hún minni­háttar meiðsl á fæti. Grímu­klæddi maðurinn flúði af vettvangi eftir að hún fór að öskra.

Konan er sú eina sem hefur tilkynnt atvik formlega til lögreglu en samkvæmt Smith er talið að maðurinn hafi einnig veist að eða reynt að hræða að minnsta kosti sex aðra vegfarendur. Bæði karlar og konur eru talin hafa orðið fyrir barðinu á honum.

Á upptökum sést maðurinn á einum tíma­punkti draga grímuna niður þannig að hluti andlits hans verður sýnilegur. Lögregla lýsir honum sem grönnum svörtum karlmanni, um 173 sentí­metra á hæð og á aldrinum 16 til 20 ára.

Lögregla vinnur nú að því að bera kennsl á manninn og hafa uppi á honum. Verði hann hand­tekinn gæti hann meðal annars átt yfir höfði sér ákærur vegna hótana, áreitni, líkams­árásar og ógnunar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs