Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Hannes féll eftir 10 ára bindindi: „Fjörutíu og fjögurra ára faðir gisti fangageymslu þá nótt“

Hannes Steindórsson.
Hannes Stein­dórs­son.

„Á næsta borði setjast tveir herramenn og eru að drekka. Á einhvern óskiljanlegan hátt þigg ég boð um að drekka með þeim, það endar ekki betur en svo að ég lendi í áflogum við þessa menn og við erum beðnir um að yfirgefa veitinga­staðinn,“ skrifar Hannes Steindórsson, bæjar­fulltrúi og fasteigna­sali, um ferð sína erlendis sem varð til þess að hann féll eftir 10 ára edrú­mennsku.

Hannes lýsir atburðinum í Svíþjóð af einlægni. Eftir að lögreglan kom á veitinga­staðinn var hann lokaður inni í fanga­klefa.

„Fjörtíu og fjögurra ára, þriggja barna faðir gisti fanga­geymslu þá nótt. Daginn eftir geng ég út eftir að hafa greitt sekt, ein til ríkisins og einnig til þessara ágætu manna. Það var ekki hátt á mér risið, skömmin ólýsanleg og líðanin eftir því. Ég fer beint í faðm fjöl­skyldu minnar og í raun trúi ekki að ég hafi lagt þetta á þau,“ skrifar Hannes.

Hann segist nú hafa tekið upp þráðinn að nýju eftir hliðar­sporið og rækti edrú­mennsku sína.

„Ég flýg til Íslands daginn eftir og tek ábyrgð á gjörðum mínum með viðeigandi hætti. Eftir það fór ég beint á þann stað þar sem ég á heima, 12 spora samtök sem gera mig að betri manni, betri föður, betri syni“.

Færsla Hannesar í heild sinni:

„Kæru vinir, það eru þung skref að skrifa þessa færslu, þið sem þekkið mig vitið að ég er bindindis­maður og alka­hólisti, ég hef skammast mín lengi fyrir það og ekkert verið að auglýsa það.

Ég hef verið allsgáður meira og minna síðan 2005 og alveg síðan 2009, í tæp 11 ár hef ég verið frjáls og laus við Bakkus. Í lífinu gerir maður mörg mistök og tekst á við allskonar verkefni sem manni eru falin, sum þægileg og falleg, önnur erfið og illviðráðanleg, þannig er jú lífið. Ég gerði stór mistök fyrir nokkru þar sem ég drakk sterkt áfengi, ég er með ofnæmi fyrir áfengi og mér er fullljóst að það á ekki að fara inn fyrir mínar varir. Ástæða þessa skrifa er í fyrsta lagi að koma hreint fram og sætta mig við þá stöðu að ég er alka­hólisti, önnur ástæða er að fjöl­miðlar hafa hringt í mig með vel kryddaðar sögur og undir rós hótað að birta lygasögur og kjafta­sögur. Rétt skal vera rétt, undir­ritaður sat einn inná veitinga­stað í svíþjóð að svara tölvu­póstum og símtölum, á næsta borði setjast tveir herramenn og eru að drekka. Á einhvern óskiljanlegan hátt þigg ég boð um að drekka með þeim, það endar ekki betur en svo að ég lendi í áflogum við þessa menn og við erum beðnir um að yfirgefa veitinga­staðinn, stuttu seinna kemur lögreglan og fylgir okkur út af staðnum, Fjörtíu og fjögurra ára þriggja barna faðir gisti fanga­geymslu þá nótt. Daginn eftir geng ég út eftir að hafa greitt sekt, ein til ríkisins og einnig til þessara ágætu manna. Það var ekki hátt á mér risið, skömmin ólýsanleg og líðanin eftir því. Ég fer beint í faðm fjöl­skyldu minnar og í raun trúi ekki að ég hafi lagt þetta á þau. Ég flýg til Íslands daginn eftir og tek ábyrgð á gjörðum mínum með viðeigandi hætti. Eftir það fór ég beint á þann stað þar sem ég á heima, 12 spora samtök sem gera mig að betri manni, betri föður, betri syni.

Ég ákvað að segja frá þessu sjálfur þar sem ég sætti mig ekki við hótanir fjölmiðla.

Ég er kominn á réttan stað aftur og ætla að vera þar. Kærleiks­kveðja Hannes Steindórsson sem er svo langt frá því að vera full­kominn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið