Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Jón Viðar veit hvað veldur vanheilsu ungmenna: „Hnignun kristins uppeldis og kristinnar trúrækni “

Leiklistar­gagn­rýnandinn Jón Viðar Jónsson ritar áhuga­verða færslu og deilir tengli á frétt ruv.is sem fjallar um fjölgun unglinga sem líður illa andlega; í þeirri grein er fjallað um niður­stöður rannsókna, Rann­sóknar og greiningar, sem rannsakað hefur líðan barna og ungmenna á Íslandi síðusta áratuginn; er rætt við Ingibjörgu Evu Þóris­dóttur, sem er doktor í sálfræði, og spurt er hver sé þáttur samfélags­miðla þegar kemur að andlegri heilsu ungmenna, og það hvort full­orðnir einstaklingar séu nægilega góðar fyrir­myndir.

Jón Viðar virðist hins vegar gefa lítið fyrir ummælin í viðtalinu og nefnir aðra möguleika.

„Þetta er mjög athyglis­vert en um leið óhugnanlegt viðtal. Það er í sjálfu sér gott að ábyrgir aðilar skuli reyna að fylgjast með andlegri líðan ungmenna og þær skýringar sem eru hér settar fram eru allrar athygli verðar. Af mörgu ætla ég hér aðeins að nefna eitt: það er sú skylda ekki bara uppalenda heldur allra full­orðinna að vera æsku­lýðnum góð fyrirmynd.“

Hann bendir á að „Ingibjörg Eva nefnir sem dæmi að fullorðið fólk leyfi sér á miðli sem þessum að viðhafa ljótt orðbragð; og því miður féllu sumir í þá gryfju á þessum þræði þegar rætt var hér um eineltismál um daginn; þá viðhöfðu sumir (sem betur fer fáir en einn er einum of mikið) heldur ófagurt orðbragð um þau börn sem gerast sek um einelti; ég lét það að vísu standa en hefði etv átt að eyða því, eins og ég leitast við að gera þegar fólk fer yfir strikið hér.“

Segir einnig að „mig langar bara að segja að eins þótt sálfræðingurinn komi hér með ýmsar skýringar, þá nefnir hún ekki það sem að mínu viti og (sem betur fer) margra annarra er höfuð­meinið og undir­rótin að þessu öllu saman og það er veikari staða kristinnar trúar með íslensku þjóðinni, hnignun kristins uppeldis og kristinnar trúrækni.

Ég var sjálfur svo lánsamur að alast upp af kristnu fólki og í samfélagi sem var ekki orðið jafn gegnsýrt af hreinni vanþekkingu og fordómum í garð kristindómsins og það sem við lifum í nú.“

Hann færir í tal að „sú trúfræðsla sem ég fékk í KFUM og skólanum (þar var kristnin ekki orðin bannorð eins og hún er nánast orðin nú) nú eða í fermingar­undir­búningi, hún var vissulega ekki fullkomin, það sá ég svo löngu síðar, en það skiptir ekki öllu máli. Þegar ég á full­orðins aldri mótaði afstöðu mína til þessara hluta, þá stóðu mér margir vegir opnir, og svo er um okkur öll. En sem sagt: það er sjálfsagt að ræða fram og aftur um andlegt heil­brigði okkar unga fólks á félags- og sálfræði­legum nótum – en undir­staðan að heil­brigðu mannlífi er og verður sá kristni trúar­grunnur sem vestræn menning er reist á og þeir góðu ávextir sem hún hefur í tímans rás borið. Það mun að endingu koma okkur öllum í koll, ef hann er rofinn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning