Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Læknaleysi í Snæfellsbæ: „Það er draumurinn að þú sért með þinn heimilislækni“

Kristinn Jónasson bæjarstjóri.
Kristinn Jónasson bæj­ar­stjóri.

Í einn og hálfan mánuð hafa íbúar í Snæfellsbæ búið við mikla óvissu um hvort hægt sé að leita til læknis í heima­byggð.

Segir bæjar­stjóri von á bættri og meiri þjónustu eftir áramót, en sumir íbúar hafa orðið að keyra alla leið til Reykja­víkur til að komast til læknis, eins og fram kemur á ruv.is.

Kemur fram að í haust var bæjar­yfirvöldum í Snæfellsbæ sagt frá því að ekki næðist að manna vaktir læknis á heilsu­gæslu­stöðinni á Ólafsvík; þangað hafa læknar komið frá höfuð­borgar­svæðinu og unnið tvær vikur í senn.

Talið var að þjónustan yrði skert um fjögurra vikna tímabil, en nú eru vikurnar orðnar sex:

„Þetta er náttúru­lega bagalegt að geta ekki leitað til læknis ef það þarf á læknis­þjónustu að halda. Ef eitthvað alvarlegt kemur upp, þó við höfum frábært heilbrigðis­starfsfólk hérna hjá okkur á heilsugæslustöðinnisem er að reyna sitt besta, þurfum náttúru­lega að hafa líka lækni til að bregðast við ef það kemur upp alvarlegt ástand,“ segir Kristinn Jónasson bæjar­stjóri í Snæfellsbæ.

Kristinn segist vita til þess að veikt fólk hafi orðið að keyra 200 hundruð kílómetra leið til Reykja­víkur til þess eins að komast til læknis; bæjar­stjórinn segir sveitar­félögin á Snæfellsnesi alfarið sammála um að breytinga sé þörf:

„Það er draumurinn að þú sért bara með þinn heimilis­lækni og þú getir sótt þjónustu til hans. Ég held að það sé það sem allir vilja.“

Ríkið hefur lofað bættri þjónustu við svæðið eftir áramót:

„Það er náttúru­lega komið fram á þennan árstíma þar sem það er ekkert víst að það berist bjargir vegna þess að það getur orðið ófært. Þannig þetta er náttúru­lega lang­versti tími ársins til að vera með stöðuna eins og hún er núna,“ sagði Kristinn bæjar­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis