Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Anna og Brynjar loksins vinir: „Að finna skemmtilegt fólk fer ekki endilega eftir flokkslínum“

Anna Kristjáns­dóttir rifjar upp útgöngu­bannið á Tenerife árið 2020 vegna Covid-faraldurins, í nýjust dagbókar­færslu sinni á Facebook. Þá segir hún einnig frá nýrri Facebook-vináttu sinnar og Brynjars Níels­sonar.

Í færslunni lýsir hún hversu spennandi henni hafi þótt að vera föst í ókunnu landi þó hún hafi vissulega fengið að sjá „hið versta og neikvæða við slíkt bann“ eins og hún orðaði það. Þá líkti hún útgöngu­banninu við langan túr í Smugunni, svona fyrir utan það að hún komst í búð einu sinni á dag og veltingurinn var enginn. Anna segir einnig frá því er öryggis­vörður „skaut á hana“ með hitabyssu til að athuga hvort hún væri með Covid-einkenni en hún lét sig við það falla í gólfið með tilþrifum, í stríðni.

Í lok færslunnar talar hún um nýja Facebook-vináttu hennar og Brynjars Níels­sonar en hún hafði vonað lengi að hann sendi henni vina­beiðni, því henni þykur hann fyndinn. Að lokum ákvað hún að senda honum beiðni. „Að finna skemmtilegt fólk fer ekki endilega eftir flokks­línum, sem betur fer.“

Færsluna má lesa hér að neðan:

„Dagur 1393 – Um útgöngu­bann.

Ég fór að rifja upp útgöngu­bannið 2020 fyrir sjálfri mér.Það var svo seint sem í mars 2020 þegar kórónu­veiran færðist eins og mara yfir heims­byggðina og öllu var skellt í lás. Þegar stefndi í útgöngu­bannið átti ég pantað far til Íslands og heim aftur viku síðar, en svo brast útgöngu­bannið á og ljóst að ef ég færi á ætluðum degi til Íslands, kæmist ég ekki heim aftur. Ég myndi lokast inni á Íslandi og þurfa að bíða, kannski í marga mánuði uns ég fengi að fara heim aftur, enda var ég ekki enn komin með fasta búsetu hér í Paradís.Ég hætti við ferðina til Íslands og lét útgöngu­bannið yfir mig ganga og sá ekki eftir því. Þarna var ég að prófa eitthvað nýtt og framandi í ókunnu landi og fyrir mig var þetta fyrst og fremst spennandi þótt vissulega fengi ég að sjá hið versta og neikvæða við slíkt bann, en um leið var þetta eins og langur túr í Smuguna þó að því frátöldu að ég mátti skreppa í búðina einu sinni á dag og það var enginn veltingur og enginn hafði áhyggjur af því ef ég drykki óþarflega mikið af göróttum drykkjum eða bjór.Það var vissulega óþægilegt þegar ég ætlaði að smygla nokkrum íslenskum bókum heim til mín og herinn rak mig heim, en af því að ég var sammála verkum yfirvalda, reyndi ég einnig að hafa gaman af hlutunum. skemmtilegasta dæmið var samt þegar öryggis­vörðurinn í búðinni tók upp hita­byssuna og skaut mig með henni til að sannfæra sig um að ég væri ekki með hita af völdum Cóvið og ég lét mig falla til jarðar, augnablik sem ég mun aldrei gleyma, vesalings öryggis­vörðurinn. Ég held samt að hann sé búinn að fyrirgefa mér leikara­skapinn, enda hefði Neymar ekki getað leikið hlut­verkið betur en ég á þeirri stundu.Svo leið heilt ár á eftir þar sem allt lífið á Tenerife var í lamasessi, útgöngu­bann á nóttunni, Ameríska ströndin steindauð og lífið var lengi að ná sér í Los Cristianos og þvílík dásemd að aka um göturnar á suður­hluta Tenerife og nánast engin umferð.Síðan eru liðin einhver ár, flest hótel opnuðu haustið 2021 og smám saman fór allt í sitt eðlilega horf, og þó. Sólar­þyrstir Norður-Evrópu­búar ruddust inn árið 2022 og allt í einu varð umferðin slík að gatna­kerfið bar hana enganveginn og er svo enn.Ég er farin að sakna útgöngu­bannsins.—–Ég sækist ekki oft eftir vináttu á Facebook við fólk sem ekki er mér tengt á einhvern hátt. Einn er samt sá maður sem er með svo skemmtilegan húmor að ég saknaði þess að hann hefði aldrei sóst eftir vináttu við mig á Facebook, auk þess sem við eigum marga sameiginlega vini, þá helst frá Vestmanna­eyjum enda konan hans þaðan. Að lokum braut ég odd af oflæti mínu og sóttist eftir vináttu við hann. Að finna skemmtilegt fólk fer ekki endilega eftir flokks­línum, sem betur fer.Meðfylgjandi mynd er frá þeim tíma í ársbyrjun 2020 er Brynjar reyndi að kristna mig í Flokkinn, en Oddný Harðar­dóttir flokks­systir mín stillti sér upp á milli okkar og kom þannig í veg fyrir óþægilega flokka­drætti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt