Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Limmubílstjóri gaf börnum áfengi í Mosfellsbæ: „Tel að mamman sé að gera úlfalda úr mýflugu“

Mosfellsbær – Myndin tengist fréttinni ekki beint
Mos­fells­bær – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Ungir krakkar djömm­uðu í limmu árið 2000.

„Það er skelfi­legt að ell­efu ára börn geti pantað sér limósínu með kampa­víni án nokk­urra mála­leng­inga,“ sagði Þórdís Gunn­ars­dóttir í Mos­fellsbæ í sam­tali við DV en sonur hennar leigði limósínu af fyr­ir­tæk­inu Glæsi­vögnum og bauð tíu börnum með sér í bíltúr á Þor­láks­messu­kvöldi árið 2000. Á sama tíma var Þórdís að versla jóla­gjafir í Kringl­unni. Þórdís sagði að bíl­stjór­inn hafi gefið og selt börn­unum áfengi.

Seldi 15 ára barni bjór

„Það var ekk­ert öðru­vísi en að bíl­stjór­inn kom upp í Snæ­landsvídeó í Mos­fellsbæ og spurði um son minn sem svar­aði og var þá boðið ásamt gestum inn í lim­mósín­una. Þar dró bíl­stjór­inn upp kampa­víns­flösku og skenkti í þau tíu glös sem voru í bílnum. Sonur minn fékk ekk­ert því vinur hans, sem var næstyngstur, fékk síð­asta glasið. Eftir að bíl­stjór­inn hafði rún­tað með börnin niður í bæ seldi hann fimmtán ára strák bjór og ók svo öllum heim,“ segir Þórdís en sagði sonur hennar upp­haf­lega henni að honum hefði verið boðið í stuttan bíltúr en hún komst að því milli jóla og nýárs að krakk­arnir hefðu fengið áfengi frá bíl­stjór­anum.

„Þá fékk ég að vita að það væri sonur minn sem limósínan var pöntuð á. Ég hringdi í Glæsi­vagna og bíl­stjór­inn við­ur­kenndi að hafa skenkt þeim vínið en sagði sér til afsök­unar að það hefði verið svo lítið,“ sagði Þórdís sem til­kynnti atvikið til lög­regl­unnar en sonur Þórdísar borg­aði ferð­ina með pen­ingum sem hann vann sér inn með heldur óvenju­legum hætti.

„Fimmtán ára strákur, sem lög­reglan lýsir sem mafíósa, borg­aði honum tíu þús­und krónur fyrir að taka á sig sök fyrir að hafa stolið rán­dýrri far­tölvu skömmu fyrir jól. Lög­reglan segir að í Mos­fellsbæ séu nokkrir mafíósar á aldr­inum 15 til 16 ára sem not­færi sér þá yngri til að fremja þjófn­aði og taka á sig sakir gegn greiðslu.“

Bílstjórinn rekinn

Ragnar Ólafur Magn­ús­son, eig­andi Glæsi­vagna, harm­aði atvikið en sagði móður drengs­ins vera gera úlf­alda úr mýflugu. Þá greindi hann frá því að bíl­stjór­inn hafi verið rek­inn.

„Mér finnst þetta leitt en bíl­stjór­inn lét undan krökk­unum. Þetta á auð­vitað ekki að koma fyrir og mun ekki ger­ast aftur,“ sagði Ragnar. „En þessir sömu krakkar hafa reyndar tekið bíl­inn hjá mér áður og þá haft áfengi um hönd sem þau fengu frá for­eldrum sínum,“ bætir hann við. „Það verður eng­inn drukk­inn ef einni freyði­víns­flösku er skipt á milli átta barna. Og ég tel að mamman sé að gera úlf­alda úr mýflugu, miðað við að ung­lingar langt undir aldri ganga inn á skemmti­staði og drekka sig fulla þar. Þetta var ekki svo­leiðis.“

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist fyrst 6. sept­em­ber 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni