Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Olena Nikitenko flúði Úkraínu: „Áfallið sem ég varð fyrir er meira en orð geta lýst!“

Olena Nikitenko
Olena Nikitenko

„Að morgni 24. febrúar fengum við öll SMS frá vinnunni: „Ekki fara í vinnuna! Stríðið er hafið! Áfallið sem ég varð fyrir er meira en orð geta lýst! Histería, ótti og ég grét,“ segir Olena Nikitenko sem flúði heimaland sitt, Úkraínu, og er komin til Íslands. Hún segist vera 45 ára hagfræðingur, fráskilin og eiga 24 ára gamlan son.

Hún er frá borginni Konstantinovka á Donetsk-svæðinu en var búin að búa í Kyev í átta ár þegar Rússar réðust inn í landið í febrúar. Hún bjó í Donetsk þegar stríðið braust út árið 2014. Skrif­stofan þar sem hún vann þá var í nágrenni flug­vallarins og eftir að stríðið skall á flutti hún til Kyiv þar sem hún vann í banka.

„Um mánuði fyrir innrás Rússa í febrúar síðastliðnum fengum við starfs­mennirnir upplýsingar um hvað ætti að gera ef til innrásar kæmi; hvert ætti að hlaupa og hvar sprengju­skýlin væru. Ég trúði ekki að af þessu yrði fyrr en undir það síðasta.“

Sonur Olena bjó í næsta húsi og þremur dögum eftir innrásina bað hún hann um að koma til sín þar sem henni fannst skelfilegt að vera ein í íbúðinni sinni.

Á sjötta degi stríðs­ins voru spreng­ing­arnar svo öfl­ugar að húsið hrist­ist.

„Sprengjum var varpað á borgirnar Irpen og Bucha sem eru nálægt Kyiv og það heyrðist mjög vel í þeim og 26. febrúar reyndu Rússar að ná Kyiv. Skot­bardagar voru í borginni og eldflaugum var skotið á borgina. Eftir því sem dagarnir liðu þá féllu sprengjur sífellt nær húsinu og á sjötta degi stríðsins voru sprengingarnar svo öflugar að húsið hristist.“

Olena segist hafa hætt að borða og sofa. „Hendur mínar fóru að titra og ég var hrædd við að loka augunum á kvöldin. Ég svaf í einn til tvo tíma á sólar­hring.“

Til í hvað sem er

Foreldrar Olena eru frá Rússlandi og fluttu til Donbass á sínum tíma. Hún segist upplifa svik vina og ættingja í Rússlandi.

„Þegar Rússar fóru að varpa sprengjum á Úkraínu þá sögðu allir ættingjar mínir í Rússlandi að það væri í lagi og að Pútín væri að gera allt rétt. Þau tóku ekkert mark á því sem ég sagði, við rifumst og við tölum ekki lengur saman. Þau styðja fullkomlega yfirgang Pútíns.“

Olena segir að vinir sínir hafi allir yfirgefið Kyiv en að enginn hafi boðið sér aðstoð.

„Á 10. degi stríðsins áttaði ég mig á því að ég gæti ekki lengur verið í Kyiv. Mig langaði til að flýja en ég gat það ekki. Lestar­stöðvarnar voru troðfullar af fólki og í fyrstu voru það konur og lítil börn sem fóru. Ég á full­orðinn son og tvo hunda og okkur var ekki leyft að fara í lestina. Ég hafði samband við yfirmann minn og bað um hjálp og hann gaf mér símanúmer hjá konu sem sagðist myndu hjálpa mér upp á að komast að landa­mærum Moldóvu. Ég var til í hvað sem var. Ég setti niður í töskur og beið eftir að við yrðum sótt.“

Svo var náð í Olena, son hennar og hundana tvo. Meðferðis hafði hún þrjár ferða­töskur.

Enginn bauð hins vegar fram aðstoð sína.

„Við komum að kvöldi til í lítið þorp ekki svo langt frá landa­mærum Moldóvu og gistum á gólfi tónlistar­skólans í bænum. Svo var mér sagt að ég gæti farið hvert sem ég vildi. En ég þekkti engan. Ég var svo langt að heiman og á eigin spýtur. En eitthvað í mér hafði breyst. Ég var hugrökk og tók mig saman. Ég fann rútu og við lögðum af stað til borgarinnar Chernivtsi sem er í suðvestur­hluta Úkraínu. Ég hringdi í neyðar­línuna þar og þar var okkur komið fyrir á leikskóla. Eftir tvo daga hringdi ég í alla vini mína og bað þá um að aðstoða mig við að finna húsnæði. Enginn bauð hins vegar fram aðstoð sína. Við gátum ekki fengið íbúð í Chernivtsi þar sem við vorum flótta­menn og var því haldið fram að við gætum þess vegna átt erfitt með að standa að greiðslum.Ég varð mjög æst og bað son minn að hringja í alla vini sína. Yfirmaður hans gaf honum símanúmer vinar síns sem bjó í Lvov sem átti íbúð sem var mannlaus. Við tókum þess vegna lest þangað. Þarna hjálpaði okkur bláókunnugur maður.“

Mæðginin voru komin til Lvov um klukkan eitt eftir miðnætti.

„Það var kalt úti og um fjögurra stiga frost. Það var útgöngu­bann og við máttum ekki fara út úr lestar­stöðinni þannig að við vorum þar til morguns. Sonur minn svaf á gólfinu með ferða­tösku undir höfðinu og ég stakk hundunum tveimur undir jakkann minn og gekk með þá fram á morgun svo þeir dræpust ekki úr kulda.“

Olena segist hafa verið í Lviv í tvo mánuði. Hún segir að bankinn þar sem hún vann hafi sagt starfs­fólki upp.

Til Íslands

Olena segist hafa farið að spjalla við ókunnugan mann á netinu og að hann hafi stungið upp á því að hún færi til Íslands þar sem margir Úkraínu­menn væru komnir. Og hún ákvað að fara til Íslands. 10 dögum eftir komuna til landsins fékk hún vinnu við að þrífa hótel­herbergi.

Mér finnst ég alls ekki vera flótta­maður hérna.

„Ég er ánægð,“ segir hún. „Ég er mjög þakklát Íslendingum fyrir að hafa tekið við mér og að ég hafi allan rétt eins og Íslendingar. Mér finnst ég alls ekki vera flótta­maður hérna. Ísland og Íslendingar eru frábærir.“

Sonur Olena býr í Kyiv. Móðir hennar hafði búið í Donbass en vegna árása Rússa þar flutti móðir hennar til Kyiv.

„Hún er þar með hundana mína sem ég ætla að sækja í desember. En mamma vill fara heim.“

Ég á engin orð til að lýsa til­finn­ingum mínum til þeirra.“

Olena segist hata Rússa.

„Ég á engin orð til að lýsa tilfinningum mínum til þeirra.“

Hún segist dreyma um að Rússar yfirgefi Úkraínu svo að fjöl­skyldan geti sameinast á ný; hún, sonur hennar og móðir.

„Ég er stolt af sjálfri mér fyrir að hafa ekki grátið heldur orðið sterkari eftir að stríðið hófst og þegar vinir mínir sviku mig. Og ég yfirgaf ekki hundana mína. Ég tók málin í mínar hendur og bjargaði fjöl­skyldunni minni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning