Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fimm hákarlaárásir með stuttu millibili við New York: „Hann náði í kálfann á mér“

Ferða­maður var bitinn af hákarli við strendur Long Island í vikunni, einungis nokkrum klukku­stundum eftir að einstaklingur á brim­bretti varð fyrir árás á sama svæði. Þar með hafa verið fimm hákarla­árásir í New York á einungis tveimur vikum.

Á vef The Sun kemur fram að brimbretta­maðurinn Shawn Donnely kastaðist af bretti sínu þegar Tígur­háfur réðist á hann undan ströndum Smith Point Beach á miðvikudag.

„Hann náði í vinstri kálfann á mér. Þegar ég var að detta af brettinu sá ég uggann og bakið á honum.“ Bit hákarlsins á kálfa Donnely skildi eftir sig rúmlega tíu sentí­metra sár. Honum tókst að koma sér í land með næstu öldu.

Síðar þennan sama dag var ferða­maður að vaða í sjónum við Seaview ströndina þegar hákarl réðist á hann. Samkvæmt lögreglu á svæðinu kom hákarlinn aftan að ferða­manninum og beit hann í vinstri úlnlið og rass­kinnar. Maðurinn gat gengið en var þó flogið á spítala vegna meið­slanna, sem voru ekki lífs­hættuleg.

Tveir lífverðir sem voru við störf á nærliggjandi ströndum urðu einnig fyrir hákarla­árásum fyrr í mánuðinum. Annar þeirra, Zach Gallo, var við æfingar á Smith Point Beach þegar hann var bitinn sunnu­daginn 3. júlí. Hann hafði verið í hlutverki einstaklings í háska í sjónum á æfingunni þegar hann fann fyrir snörpum sársauka. Hann sagðist hafa fundið gúmmí­kennda áferð og þannig áttað sig á því að hann væri í návist hákarls. Hann kýldi hákarlinn til þess að verjast árásinni og komst í land.

Þann 7. júlí var annar lífvörður, John Mullins, við æfingar á nærliggjandi strönd þegar hann varð fyrir árás hákarls.

Annar maður hlaut sár eftir kynni við hákarl þann 30. júní síðastliðinn þegar hann var að synda við Jones Beach.

Á miðvikudag var sund bannað við Smith Point Beach vegna hættulegra sjávar­dýra.

Bitið eftir hákarl­inn á Zach Gallo.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“