Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fjársýsla ríkisins svarar óánægju röddum launhafa: „Ekki um breytta framkvæmd að ræða“

Mynd/samsett
Mynd/sam­sett

Fjársýsla ríkisins hefur gefið út tilkynningu vegna seinkunar á útborgun launa ríkis­starfsmanna. Hávær óánægja er meðal launhafa þar sem ekki verður unnt að greiða út laun fyrr en eftir Verslunar­manna­helgi en venja hefur verið að útborgunar­dagur sé síðasti virki dagur mánaðarins ef fyrsti lendir á helgi.

Í tilkynningunni er vísað í laga­ákvæði í ráðninga­samningi auk þess að uppfærsla á greiðslu­kerfum viðskipta­bankanna sé um að kenna:

„Laun ríkis­starfsmanna skulu greidd fyrsta virkan dag hvers mánaðar samkvæmt 10. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfs­manna ríkisins og ákvæði ráðningar­samninga ríkis­starfsmanna. Launa­greiðslur hafa verið framkvæmdar í samræmi við það frá setningu laganna. Því er ekki um breytta framkvæmd að ræða nú enda hefur Fjár­sýslan engar heimildir til að gera annað.

Viðskipta­bankarnir hafa unnið að uppfærslu á greiðslu­kerfum sínum á síðustu árum. Í eldri greiðslu­kerfum voru stórar greiðslu­skrár s.s. launa­greiðslur ríkisins, keyrðar handvirkt utan hefð­bundins álagstíma til að tryggja að greiðslur næðu örugglega að skila sér á réttum tíma. Þetta þýddi að í einhverjum tilfellum gerðu bankarnir þessar greiðslur aðgengilegar fyrir fyrsta dag mánaðar þótt greiðslu­dagur launa væri fyrsta virka dag næsta mánaðar. Á undan­förnum árum hefur verklag þeirra verið að breytast og frá febrúar 2022 hafa laun alfarið verið greidd með nýju greiðslu­kerfi bankanna þar sem greiðslur berast viðtak­endum fyrsta virka dag hvers mánaðar.

Fjársýsla ríkisins mun koma ábendingum og athuga­semdum sem henni berast vegna gildandi launa­greiðslu­fyrir­komulags til fjármála- og efnahags­ráðuneytisins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið