Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sölvi ræðir við Söru Odds: „Erum enn að vinna úr sameiginlegri áfallastreitu fyrri kynslóða“

Margrét Sara Odds­dóttir, mark­þjálfi og lögfræðingur, er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggva­sonar. Margrét Sara, oftast kölluð Sara Odds, segist finna það sterkt í störfum sínum við að mark­þjálfa fólk að fólk yfir ákveðnum aldri á Íslandi sé upp til hópa að díla við afleiðingar af tilfinniningalega lokuðu uppeldi. Ísland hafi í gegnum tíðina verið samfélag þar sem ekki mátti ræða tilfinningar og allt átti að vera fullkomið á yfir­borðinu.

Tók U-beygju eftir að hún sá að það vantaði ástríðuna

„Það átti allt að vera fínt og hreint heima. Ef að amma þurfti að sækja afa fullan úti í bæ var beðið eftir að það væri búið að slökkva öll ljósin í götunni áður en honum var dröslað inn um útidyrnar og daginn eftir var svo látið eins og ekkert hefði gerst. Það mátti ekki ræða um neitt óþægilegt, en samt var fólk uppfullt af brestum í hverju einasta húsi. Við megum ekki gleyma því að þetta er staðurinn sem við erum að koma frá. Lífið var hart á Íslandi fyrir ekki svo löngu síðan og þessi þjóð er enn að vinna úr sameiginlegri áfalla­streitu,“ segir Sara, sem segist sjá að yngri kynslóðiðin hafi upp til hópa fengið allt annars konar tilfinningalegt uppeldi og sé á margan hátt mun heilbrigðari.

Sara hefur unnið með miklum fjölda fólks undan­farin ár og segir algengt að fólk kveiki á því á milli þrítugs og fertugs að það vilji ekki starfa við það sem það menntaði sig til, en oftar en ekki sé óttinn við hið óþekkta of sterkur til að taka stökkið.

„Það getur auðvitað verið mjög erfitt að taka áhættu þegar fólk er með börn og þarf að borga reikninga, en ef við leyfum okkur að gera það sem við elskum falla hlutirnir oftar en ekki með okkur ef við erum þolinmóð,“ segir Sara, sem sjálf hefur oftar en einu sinni tekið stökkið út í óvissuna. Meðal annars þegar hún sagði skilið við fata­hönnun eftir að hafa verið komin inn í drauma­námið sitt:

„Ég ólst upp í tísku­geiranum af því að mamma og pabbi ráku tísku­verslanir og fór til dæmis ekki í unglinga­vinnu, heldur vann í búðunum. Svo fór ég sjálf að reka tísku­verslun og hélt að ég yrði í þessu það sem eftir væri, eftir að ég fékk inngöngu í nám í drauma­skólann í fata­hönnun í Bretlandi. En svo á einhverjum punkti í náminu úti fattaði ég að þetta var ekki það sem ég vildi gera til framtíðar. Ég áttaði mig á því að þetta var bara eitthvað sem ég var alin upp við og mér hafði verið kennt, en í hjartanu fann ég að ég vildi gera eitthvað annað,“ segir Sara, sem þurfti ung að læra að taka ábyrgð, eftir að hún varð ólétt aðeins 18 ára gömul. Það hjálpaði henni að skipta um takt í lífinu:

„Ég fékk reyndar smá aðstoð við að taka þá ákvörðun að hætta í þessum geira, þar sem ég varð ólétt á meðan ég var í náminu. Það gerði mér auðveldara að ákveða að skilja við þetta. Ég var bara nýorðin 19 ára þegar ég átti dóttur mína og það breytti mjög miklu. En það var skrýtið að átta sig á því að draumurinn sem ég hafði átt svona lengi um að komast í einn flottasta hönnunar­skóla í Evrópu, var ekki það sem ég raun­verulega vildi. En eins og ég segi áttaði ég mig á því á ákveðnum punkti að þetta var bara gamall draumur sem tengdist minni­máttarkennd úr æsku.“

Hægt er að nálgast viðtalið við Söru og öll viðtöl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið