Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Allt um hryðjuverkamálið – „Trumpistar. Illa upplýstir bjánar“

Fjórir íslenskir karlmenn á þrítugsaldri voru hand­teknir í gær. Þeir eru grunaðir um að hafa ætlað að fremja hryðju­verk á Íslandi, mögulega gegn Alþingi. Mennirnir eru taldir hafa haft tengsl við hægri öfgahópa á hinum Norður­löndunum.

Lögregla boðaði til blaðamanna­fundar í gær vegna málsins en rann­sóknin er sögð á frum­stigum. Lagt var hald á fjölda skotvopna, síma og tölva, sem nú verður rann­sakaður. Tveir voru úrskurðaðir í gæslu­varðhald vegna málsins, annar í viku og hinn í tvær vikur.

Erlendir fjöl­miðlar á borð við CNN og The Guardian hafa fjallað um aðgerðir lögreglu hér á landi í vikunni.

Ef marka má Morgun­blaðið er talið að hugsanlegar árásir mannanna hafi verið yfir­vofandi á næstu dögum. Svo lítið bar á var gæsla hert við Alþingis­húsið og höfðu mennirnir einnig sérstakan áhuga á árshátíð lögreglu­manna sem haldin verður í næstu viku.

Rithöfundurinn Illugi Jökulsson vill að lögreglan gefi tafar­laust frekari upplýsingar um hryðjuverka­málið. „Lögreglan þarf að gefa umsvifa­laust frekari upplýsingar um þá handteknu og hvað vitað er um þá. Hún þarf ekki að kjafta öllu – ef einhverja rannsóknar­hagsmuni þarf enn að vernda – en þögn og pukur um svo ógnvænlegar fréttir ganga ekki,“ segir Illugi ákveðinn.

Og Samfélags­rýnirinn úr Grindavík, Björn Birgisson, tjáir sig um málið á vegg sínum á Facebook. Honum virðist nokkuð heitt í hamsi:

„Trumpistar. Hægri sinnaðir öfgamenn – er það fyrsta sem manni dettur í hug. Svipaðir skrílnum sem réðist á bandaríska þinghúsið. Illa upplýstir bjánar,“ segir Björn.Í samtali við Frétta­blaðið segir Jón Gunnarsson dómsmála­ráðherra að til skoðunar sé aukin vopna­burður lögreglunnar. „Staða skipulagðrar glæpa­starfsemi er alvarlegri en fólk gerir sér grein fyrir,“ segir Jón.

Hér fyrir neðan eru molar um það sem vitað er í hryðjuverka­málinu:

  • Fjór­ir ís­lensk­ir karl­menn á þrítugs­aldri voru hand­tekn­ir af sér­sveit­inni í gær í um­fangs­mikl­um aðgerðum í Holta­smára í Kópa­vogi og á iðnaðar­svæði í Mos­fells­bæ.
  • Menn­irn­ir eru grunaðir um að und­ir­búa hryðju­verk og ann­ars veg­ar inn­flutn­ing skot­vopna, íhluta í skot­vopn og skot­færa og hins veg­ar fram­leiðslu skot­vopna.
  • Menn­irn­ir eru grunaðir um að hafa fram­leitt íhluti í vopn með þrívídd­ar­prent­ara.
  • Tveir þeirra, báðir 28 ára gamlir, hafa verið úr­sk­urðaðir í gæslu­v­arðhald, ann­ar í viku, hinn í tvær vik­ur.
  • Hús­leit hef­ur verið fram­kvæmd á níu stöðum.
  • Lög­regla hef­ur lagt hald á tugi skot­vopna, þar á meðal hálf­sjálf­virk­ar byss­ur, ásamt þúsund­um skot­færa.
  • Brot­in varða grein hegn­ing­ar­laga þar sem kveðið er á um að fyrir hryðju­verk skuli refsa með allt að ævi­löngu fang­elsi. Fyrir að hót­a að fremja slík brot fæst sama refsins.
  • Þjóðarör­ygg­is­ráð var upp­lýst um aðgerðir lög­reglu um það leyti sem þær hóf­ust í gær.
  • Lög­regl­an hef­ur einnig lagt hald á tölv­ur og síma.
  • Lög­regla tel­ur sig vera með stærsta hluta vopn­anna í sinni vörslu.
  • Allt að 50 lög­reglu­menn voru að störf­um vegna máls­ins.
  • Lög­regl­an úti­lokar ekki að fleiri ein­stak­ling­ar teng­ist mál­inu.
  • Lík­lega í fyrsta skipti sem lög­regl­an á Íslandi hef­ur rann­sakað und­ir­bún­ing að hryðju­verk­um.
  • Rann­sókn á al­var­legu vopna­laga­broti var upp­hafið að mál­inu.
  • Við rann­sókn lög­reglu komu fram upp­lýs­ing­ar sem leiddu til gruns um að í und­ir­bún­ingi væru árás­ir gegn borg­ur­um rík­is­ins og stofn­un­um þess.
  • Ætla má að árás­ar­menn­irn­ir hafi beint sjón­um sín­um að Alþingi eða lög­reglu.
  • Lög­regl­an á Íslandi er í sam­tali við er­lend lög­gæslu­yf­ir­völd en verið er að skoða hvort að ein­stak­ling­arn­ir teng­ist er­lend­um öfga­sam­tök­um.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning