Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Ekki hættur að hrauna yfir Gísla Martein: „Hvenær hefur þessi maður verið talinn listamaður?“

Gísli Marteinn þáttastjórandi og fyrrverandi borgarfulltrúi fékk boðskort
Gísli Marteinn þátta­stjór­andi og fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi fékk boðskort

Fyrr í dag ætlaði allt að verða vitlaust á Alþingi þegar Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, sagði Gísla Marteini Baldurs­syni til syndanna í ræðupúlti. Ásmundur sagði Gísla og gesti hans í Vikunni á RÚV dóna með pólitíska slagsíðu. Aðrir þingmenn brugðust illa við þessu og voru fluttar margar ræður, Gísla til varnar.

Það virðist þó ekki hafa mildað skoðun Ásmundar ef marka má stöðu­færslu sem hann birti nú síðdegis á Facebook. Á Alþingi var haft orð á því að Ásmundur væri að gera tilraun til að þagga niður listræna tjáningu Gísla Marteins. Því svarar Ásmundur:

„Er Gísli Marteinn lista­maður?

Í dag var ég hund­skammaður í þinginu fyrir að ræða um landlægan dónaskap dagskrár­gerðar­mannsins Gísla Marteins. Því var jafnvel haldið fram af formanni Viðreisnar og þing­mönnum að ég hefði reynt að þagga niður í listrænnni, já listræanni tjáningu dagskrár­gerðar­mannsins. ÉG spyr. Hvenær hefur þessi maður verið talinn lista­maður? Aldrei mér vitandi. Ég var líka skammaður fyrir að dagskrár­gerðar­maðurinn gæti ekki svarað fyrir sig úr púlti Alþingis,“ segir Ásmundur.

„Hvað hefur fólk mátt þola af hans hálfu árum saman þar sem það er sakað um upplognar sakir, atvinnuníð og róg. Enginn af þeim hefur fengið tækifæri til að svara fyrir sig. Yfirburðar­staða hans í skjóli Ríkis­útvarpsins er misnotkun af verstu gerð.“

Hann lætur svo ræðuna umdeildu sem hann flutti fyrr í dag fylgja með:

„Hér kemur þessi viðkvæma ræða sem á erindi við alla þjóðina

Vl. forseti; Misnotkun, óskammfeilni og dóna­skapur er orðinn viðtekin venja dagkrár­gerðar­mannsins Gísla Marteins og gesta hans í Ríkis­reknum fjölmiðli.

Þar er engu eyrt og þeir sem verða fyrir niður­lægingu og rudda skap dagskrár­gerðar­mannsins hafa engin tækifæri til að svara fyrir sig eða bera hendur fyrir höfuð sér. Þess vegna tala ég hér.

Nýlega var ráðist á forstjóra Útlendinga­stofnunar í jóla­dagatali barnanna á RÚV.

Þátta­gerðarkona, gestur í þætti GM ræddi áramóta­heit að léki vonda konu á árinu. Hún lýsti því að hafa fengið það uppfyllt þegar hún fékk að leika forstjóra Útlendinga­stofnunar í jóla­dagatali barnanna á RÚV. Hvers eiga börn og forstöðu­menn að gjalda af hendi Ríkis­fjöl­miðilsins.

Gísli Marteinn, sem fannst þetta greini­lega algjör snilld, lýsti þessu þannig að þarna væri verið að blanda saman list og pólitík.

Vl. forseti; Þarna var ráðist með grófum hætti að starfs­heiðri ríkis­starfsmanns sem vinnur embættis­störf sín samkvæmt þeim lögum og reglum sem við setjum og um það gilda.

Það er ekki aðeins á Ríkis­útvarpinu sem uppi veður fólk sem misnotar og mistúlkar.

Hér á Alþingi viðurkenna píratar brot á trúnaðar­reglum Alþings. Það er útilokað annað vl. forseti en að siðanefnd Alþingis taka fyrir trúnaðar­brot þingmanna og snupri fyrir gróft brot á trúnaðar­reglum Alþingis.

Við erum þjóð­kjörin og getum ekki orðið uppvís að því að brjóta trúnað gagnvart gestum okkar, samstarfs­fólki – gagnvart þjóðinni.

Vl. forseti; Það er orðinn lítil þolinmæði í samfélaginu fyrir því að dagskrár­gerðar­fólk á ríkis­fjölmiðli og þingmenn kosnir af þjóðinni misfari með stöðu sína og vald á jafn grófan hátt og hér hefur gerst.

Það er krafa okkar að Ríkis­útvarpið rétti af pólitíska slagsíðu og fari að þeim lögum og reglum sem um starfsemina gilda“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis