Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ópíóíðafaraldur á Íslandi: „Á síðasta ári voru andlátin fleiri en nokkru sinni“

Marín Þórsdóttir.
Marín Þórs­dóttir.

Marín Þórs­dóttir deildar­stjóri Rauða krossins á höfuð­borgar­svæðinu spyr einfald­lega í grein sinni:

Þekkir þú Nal­oxone og kanntu að nota það? 

„Árlega látast tugir einstaklinga vegna lyfja­eitrana hér á landi. Á síðasta ári voru andlátin fleiri en nokkru sinni, en þá létust 46 einstaklingar.“

Marín nefnir að „algengasta lyfið sem fannst í þeim látnu voru ópíóíðinn Oxycontin og flogaveiki­lyfið Pregabalin; níu þeirra látnu voru einstaklingar undir þrítugu, jafn mörg og öll þau er létust í umferðinni hér á landi sama ár.“

Hún bendir á að „þrátt fyrir þennan gífurlega fjölda fólks á öllum aldri sem lætur lífið vegna ofskömmtunar á ópíóíðum, svo sem Contalgini, Heróíni, Methadoni, Fentanýli, Oxykódoni eða Búprenorfíni, var mótefni við því ekki aðgengilegt hér á Íslandi fyrr en nú á þessu ári, en þá var eitt stærsta mann­réttinda­skref fyrir einstaklinga sem nota ólögleg vímuefni stigið og lyfið Nyxoid gert aðgengilegt fyrir öll, þeim að kostnaðar­lausu.“

Marín nefnir að Nyxoid lyfið, sem inni­heldur virka efnið Naloxone, „hefur verið til í áratugi og marg­sannað gildi sitt víða um heim; mótefnið fæst meðal annars sem nefúði og það er ekki hægt að misnota.

Dreifing á Nyxoid hófst hér á Íslandi fyrir alvöru þegar skaða­minnkunar­verkefni Rauða krossins, Frú Ragn­heiður og neyslu­rýmið Ylja, hófu dreifingu á því í mars­mánuði fyrir tilstuðlan styrks frá fjár­sterkum einstaklingum.“

Hún segir að „fljótlega tók heilbrigðis­ráðuneytið við sér og um haustið var mótefnið gert aðgengilegt öllum þeim sem það þurfa, sem og viðbragðs­aðilum. Þessu mikilvæga mann­réttinda­skrefi í heilbrigðis­þjónustu á Íslandi ber að fagna.

Skaða­minnkunar­verkefni Rauða krossins hafa nú dreift tæplega 200 skömmtum til notenda og kennt þeim að nota lyfið. Lyfið er í raun er afar einfalt í notkun og allir Íslendingar ættu að þekkja einkenni ofskömmtunar og kunna að bregðast við þeim. Áður en lyfið er gefið skal ganga úr skugga um hvort einstaklingurinn sé með meðvitund, en helstu einkenni ofskömmtunar eru:

Skortur á viðbrögðum við snertingu og/eða hljóði. Öndunin verður hæg eða jafnvel stöðvast. Hrotur, hrygglur eða köfnunar­hljóð koma frá viðkomandi. Neglur og varir verða bláar. Auga­steinar verða agnars­máir (e. pinpoint).

Ef grunur liggur á ofskömmtun er mikilvægt að hringja strax í 112. Síðan er nefúðinn gefinn í aðra nösina, en í hverju hylki er einn skammtur. Ef sjúklingur sýnir engan bata eða einkenni ofskömmtunar hafa komið aftur skal gefa annan skammt af nefúðanum 2-3 mínútum síðar og þá í hina nösina og úr öðru hylki.“

Hún segir að lyfið virki nokkuð skjótt, og að hjá einstaklingum sem eru háðir ópíóíðum geta fráhvarfs­einkenni frá þeim gert vart við sig:

„Líkt og hjarta­stuðtæki sem hanga uppi á flestum opinberum stofnunum og fjölmennum vinnu­stöðum ætti lítil gul Naloxone taska með tveimur nefúðum að hanga á sama stað. Almenningur ætti einnig að þekkja einkenni ofskömmtunar og kunna að bregðast rétt við. Með samheldnu átaki getum við fækkað ótíma­bærum dauðsföllum af völdum ópíóíðum, því hvert mannslíf skiptir máli og við missum því miður alltof marga einstaklinga á þennan hátt á hverju ári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning