Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sigur Rós sendir frá sér nýja smáskífu – Uppselt á alla tónleika fram á haust – Myndband

Sigur Rós – 2023 – ljósmynd Tim Dunk
Sigur Rós – 2023 – ljós­mynd Tim Dunk

Í dag, mánudaginn 12. júní sendir Sigur Rós frá sér glænýtt lag í aðdrag­anda að uppseldu tónleika­ferðalagi um Evrópu og Norður Ameríku sem hefst föstu­daginn 16. júní á Meltdown festi­valinu með tónleikum í Royal Festival Hall í London þar sem hljóm­sveitin kemur fram ásamt The London Contemporary Orchestra.

Album credit Rúrí

“Blóðberg” er fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu Sigur Rósar sem kemur út 16. júní. Hljóð­heimur lagsins er tilþrifa­mikill og áferðar­fagur þar sem strengja­sveit fléttast saman við sjö mínútna tónsmíð þríeykisins. Laginu fylgir myndband eftir Johan Renck en hann leik­stýrði HBO þátta­seríunni Chernobyl og tónlistar­myndböndum fyrir Madonnu, Robyn og Beyoncé. Renck segir sjálfur um mynd­bandið: „Ég hef níhilíska sýn á fram­tíðina. Við erum algjör­lega vanmáttug gagnvart okkar eigin heimsku. Sumar hliðar þessara sjónar­miða fléttuðust saman við upplifun mína á þemum Blóðbergs. Tónlistin varð að undirleik minna eigin vesælu hugsana, en litaði þær fegurð eins og tónlistinni einni er máttur til“.

The London Contemporary Orchestra spilar inn á lagið undir stjórn Robert Ames. Það er hljóð­blandað af Paul Corley en hann kom einnig að upptöku­stjórn. LCO og Ames koma fram með Sigur Rós á tónleikunum 16. júní sem og Evrópu hluta tónleika­ferða­lagsins. Í Norður-Ameríku spilar The Wordless Music Orchestra undir stjórn Ames með hljóm­sveitinni. 

Sigur Rós Tónleika­dagsetningar

6/16 London, UK — Royal Festival Hall – UPPSELT

6/17 Amsterdam, Nether­lands — Concertgebouw – UPPSELT

6/18 Hamburg, Germany — Elbphilharmonie – UPPSELT

7/3 Paris, France — Philharmonie Main Hall – UPPSELT

8/14 Toronto, ON — Roy Thomson Hall – UPPSELT

8/16 New York City, NY — Beacon Theatre – UPPSELT

8/18 Brooklyn, NY — Kings Theatre – UPPSELT

8/19 Boston, MA — Wang Theatre – UPPSELT

8/21 Minneapolis, MN — State Theatre – UPPSELT

8/24 Seattle, WA — The Paramount Theatre – UPPSELT

8/26 Berkeley, CA — The Greek Theatre at UC Berkeley – UPPSELT

8/27 Los Angeles, CA — The Greek Theatre – UPPSELT

SIGUR RÓS

INSTAGRAM / TWITTER / FACEBOOK / WEBSITE

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt